Morgunblaðið - 22.03.2021, Síða 22

Morgunblaðið - 22.03.2021, Síða 22
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2021 ✝ Steinunn Guð- björg Valdi- marsdóttir fæddist í Reykjavík 13. mars 1944. Hún lést á heimili sínu 11. mars 2021. For- eldrar Steinunnar voru hjónin Sigrún Guðbjörnsdóttir, f. 28. desember 1921, d. 17. apríl 2004, og Valdimar Þórhallur Karl Þorsteinsson, f. 2. febrúar 1921, d. 26. október 1981. Systur Steinunnar eru: Mar- grét, f. 27. janúar 1943, Þor- björg, f. 29. nóvember 1945, og Unnur Hildur, f. 19. nóvember 1953. ágúst 2000, og Kristinn Þór, f. 3. janúar 2008. Eiginkona Þór- halls er Rosa Maria Stein- grimsson, f. 17. september 1968. 2) Kristín Steingríms- dóttir, f. 18. apríl 1973, gift Elvari Daða Eiríkssyni, f. 24. febrúar 1972. Börn þeirra eru: Auðunn Orri, f. 17. október 1998, Steinunn Silja, f. 2. jan- úar 2002, og Andri Hrannar, f. 26. maí 2008. Steinunn ólst upp hjá for- eldrum sínum og systrum við Sörlaskjól 60 í Reykjavík. Hún gekk í Melaskóla og Hagaskóla og lék handbolta með KR. Steinunn fór sem skiptinemi á vegum AFS til Bandaríkjanna eftir gagnfræðapróf. Hún lauk námi við Ljósmæðraskólann 1968. Steinunn starfaði í mörg ár á Heilsuverndarstöð Reykja- víkur. Útför Steinunnar fer fram frá Lindakirkju í dag, 22. mars 2021, klukkan 15. Steinunn giftist 21. mars 1970 Steingrími Dag- bjartssyni, f. 20. janúar 1942. For- eldrar hans voru Dagbjartur Lýðs- son, f. 10. febrúar 1906, d. 9. júlí 1958, og Jórunn Ingimundardóttir, f. 29. janúar 1911, d. 24. júlí 2008. Börn Steinunnar og Steingríms eru: 1) Þórhallur, f. 22. ágúst 1970. Börn Þórhalls og fyrrver- andi sambýliskonu hans, Loft- veigar K. Einarsdóttur, eru: Hallgrímur Jón, f. 26. ágúst 1998, Steingrímur Karl, f. 9. Elsku amma okkar hefur nú kvatt þennan heim og er hennar sárt saknað. Hún var svo yndis- leg, góð og falleg í alla staði. Einnig var hún brosmild, hress og var alltaf til staðar fyrir okkur. Við erum svo heppin með það hversu margar góðar minningar hún skildi eftir sig. Við höldum fast í minningarnar sem við eig- um með henni uppi í bústað, þar sem við eyddum ótal mörgum helgum og frídögum með henni. Við munum vel eftir öllum páska- eggjaleitunum og rabarbaraleið- öngrunum sem við fórum í. Þegar við vorum veik fórum við alltaf í pössun til ömmu og afa og gerði það veikindadagana mun betri. Við gleymum seint þeim huggu- legu stundunum þar sem amma dekraði við okkur. Hún gaf okkur alltaf allskyns góðgæti og við gát- um horft á okkar uppáhaldsspól- ur eða spilað við hana olsen-olsen og veiðimann. Amma var algjör skvísa, henni fannst gaman að vera í fínum skóm með fallegt veski og skart. Hún var svo umhyggjusöm og passaði alltaf að öllum liði vel. Við erum svo heppin að hafa átt svona hressilegar stundir með henni þar sem við fengum að fífl- ast með henni og hlæja. Við erum mjög sorgmædd yfir því hversu skyndilega hún fór frá okkur en við erum óendanlega þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum með henni. Elsku amma, þú munt ávallt eiga stað í hjarta okkar og mun minning þín alltaf fylgja okkur. Hvíldu í friði elsku amma. Við elskum þig. Auðunn Orri, Steinunn Silja og Andri Hrannar. Í dag kveðjum við móðursyst- ur okkar með hlýju og söknuði. Steinunn var ein fjögurra systra sem hafa alla tíð verið mjög sam- rýndar. Við frændsystkinin nut- um góðs af því og eigum margar góðar minningar þar sem systra- börnin og stórfjölskyldan hafa hist og haft gaman saman. Heim- ili Steinunnar og Steina var oft og tíðum miðpunktur slíkra sam- verustunda. Í Hagaselið var alltaf gaman að koma og fannst okkur krökkunum við vera komin í æv- intýraheim þar sem margt var að skoða og hægt að leika endalaust. Þar var spilað, leikið og brallað og hvergi var skemmtilegra að fara í feluleik – í okkar augum var Hagaselið eins og stórt völundar- hús og af ævintýrum var nóg. Steinunn og Steini tóku alltaf vel á móti okkur og hafa ófá jólaboðin þar verið haldin, þar sem syst- urnar léku á als oddi. Einkenni systranna er einstaklega smit- andi hlátur sem fær alla til að hlæja með þeim og gleðjast á góðri stund. Hlátur systranna er svo einkennandi að hann þekkja allir sem þekkja til þeirra. Í gegnum tíðina höfum við frændsystkinin öll fengið að njóta hins hvella, dillandi og smitandi hláturs frá blautu barnsbeini og drukkið hann með móðurmjólk- inni. Í minningunni hló Steinunn ávallt hæst og mest, en eflaust hefur ætíð einungis verið sjónar- munur þar á. Í móðurlegginn erum við ætt- uð frá Byggðarhorni í Flóa. Langamma okkar og amma Steinunnar, Margrét eldri Giss- urardóttir, var elst 16 Byggðar- hornssystkina. Haft hefur verið fyrir satt að ekki einungis hafi Byggðarhornsfólkið verið margt, heldur hafi einnig verið svo mikið af því. Sem dæmi um þetta er stutt sögukorn sem gjarnan hef- ur verið sagt af þeim systrum. Eitt skipti um miðja síðustu öld voru þær þrjár, Margrét, Stein- unn og Þorbjörg, í heimsókn austur á Byggðarhorni og fengu far í bæinn með frændfólki til for- eldra sinna. Einhvers staðar á ómalbikuðum Kömbunum, Hellisheiði eða Sandskeiði hrist- ist pústkerfið undan bílnum. Eigi var það fyrr en vestur í Sörla- skjóli sem það uppgötvaðist, þeg- ar búið var að skila systrunum af sér, slíkir voru hlátra- og bjöllu- skellirnir í þeim alla leiðina vest- ur um. Á þessa lund minnumst við helst okkar ástkæru móðursyst- ur. Hún var hrókur alls fagnaðar sem naut sín best á góðra vina stundu. Elsku Steingrímur, Þórhallur, Kristín og fjölskyldur, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu og krefjandi tím- um. F.h. systrabarna í Álfheimum og Stykkishólmi, Benedikt Eyþórsson Þuríður Ósk Sigurjónsdóttir. Margs er að minnast og margs er að sakna þegar elskuleg frænka er kvödd. Það var oft glatt á hjalla þegar Byggðar- hornsfjölskyldan kom saman og við krakkarnir lékum okkur í fall- in spýtan og fleiri útileikjum. Þar lá mín ekki á liði sínu þótt ekki væri hún hæst í loftinu. Alltaf vissum við hvor af annarri. Hún fór í ljósmæðranámið og ég í söngbransann og ekki var það leiðinlegt að sjá hver var dans- herrann í Víkingasalnum, þegar einn af sumarstrákunum í Stóru- Sandvík reyndist vera kærastinn. Steini Dagbjarts var kominn til að vera og þegar þau fóru síðar að huga að húsbyggingu komu þau í Hagaselið þar sem við urðum ná- grannar. Þar smullum við aftur saman eins og vera bar, og þau urðu ein af okkar hjóna bestu og traustustu vinum. Margt hefur verið brallað og brasað, og ferðast saman innanlands sem er- lendis. Og eftirminnileg var ferð- in okkar norður að Víðum í Reykjadal um Jónsmessuna 1992 með pabba gamla, þegar Steini og Steina sýndu okkur leyndar- dóma Blönduvirkjunar, og ekki eru minningarnar síðri úr ferðum okkar hjóna í þeirra dásemdar- sumarbústað. Alltaf var hún til taks, og tilbúin til skrafs og ráða- gerða. Þegar við svo fluttum í Mosó og síðar í Kópavoginn var bara komið reglulega í heim- sóknir, og mikið var það notalegt að fá þau aftur í nágrennið þegar þau svo fluttu í Boðaþingið. Elsku Steini, Kristín, Þórhall- ur og fjölskyldur og elsku stelp- ur Dúu og Kalladætur og fjöl- skyldur. Við hjón og börn sendum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur til ykkar allra. Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér og hlýhug allra vannstu er fengu að kynnast þér. Þín blessuð minning vakir og býr í vinahjörtum á brautir okkar stráðir þú, yl og geislum björtum. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Far þú í friði elsku frænka. Hjördís Geirsdóttir (Dísa frænka). Í dag er móðursystir mín Steinunn borin til grafar. Allt of fljótt að mér finnst. Steinunn var önnur í röð fjögurra systra, fæddra 1943, 1944, 1945 og ör- verpið 1953. Ólust þær upp í Vesturbænum og hversu æðis- legt hefur það verið að alast upp í svona hópi, já og hver annarri glæsilegri og fjörugri. Öfundaði þær alltaf af þessu, eigandi sjálf bara einn bróður sem er svo í þokkabót 10 árum eldri en ég. Á öllum gömlu myndunum sem maður sér af systrunum eru þær alltaf í heimasaumuðum kjólum og mjög fallegar. Allar Valdi- marsdæturnar. Sem fengu þó oft að heyra: Ha, ertu Valdimars- dóttir, ertu ekki dóttir hans Kalla? Jú jú, einn og sami mað- urinn. Þau voru ekki mörg heimilin þar sem ég vildi fara í næturgist- ingu sem barn en heimili Stein- unnar og Steina var eitt þeirra. Ég var svo heppin að fá að fara til þeirra í Búrfell og gista meðan foreldrar mínir fóru til Kanarí, líklega verið 1979, jafnvel 1978. Þetta var algjört ævintýri fyrir mig borgarbarnið, í minningunni var ein gata með fimm húsum í Búrfelli. Allt var á kafi í snjó og maturinn kom til þeirra í stórum pappakössum. Ekki skemmdi fyrir að þarna voru auðvitað líka frændsystkini mín Þórhallur og Kristín en ekki er nema tæpur mánuður á milli okkar Kristínar í aldri. Mikið var brallað þessa daga í Búrfelli og enginn tími fyrir heimþrá. Steinunn hélt vel utan um sitt fólk og hélt heimili af miklum myndarbrag. Fyrir ekki svo löngu eða í nóv- ember 2018 ákváðum við, syst- urnar og dætur þeirra að skella okkur til útlanda saman svona meðan allir hefðu heilsu til þess. Edinborg varð fyrir valinu. Þar áttum við saman frábæra helgi. Steinunn var hressasta mann- eskjan á svæðinu, alltaf til í að fara allt með okkur og sló aldrei slöku við. Enda alla tíð verið lítil og létt. Mikið sem var hlegið og talað og sungið og vesenast þessa helgi. Yndisleg minning sem lifir með okkur. Elsku Steini, Þórhallur, Krist- ín og fjölskyldur, missir ykkar allra er mikill, guð gefi ykkur styrk til að takast á við tímann sem er fram undan. Það er erfitt að fá ekki að kveðja, þegar fólk er hrifið frá manni með engum fyr- irvara. Enginn er undir það búinn og það tekur tíma að vinna úr þeirri lífsreynslu. Mörgum spurningum ósvarað og þeim mun ekki fást svar við og það versta er að maður vissi ekki einu sinni að maður vildi spyrja. Lífið í hnotskurn. Innilegar samúðarkveðjur. Sigrún Þorsteinsdóttir og fjölsk. Kær mágkona mín er fallin frá og mikill harmur að kveðinn. Kveðjuorðin eru fátækari en minningarnar. Þær voru fjórar systurnar sem ólust upp í Sörlaskjólinu en nú er einni færri. Steinunn var næst- elst þeirra systra. Hún fæddist fyrir tímann og var það smávaxin að móður hennar fannst að hún kæmist fyrir í skókassa. Hún var því alltaf nett og létt á fæti. það hefur verið líflegt á númer 60 með þær þrjár elstu hverja á sínu árinu og nánast eins og þríburar og litla systir kom svo nokkrum árum síðar. Steinunn gekk í skóla í Vest- urbænum og lék handbolta með KR. Seinna útskrifaðist hún sem ljósmóðir og vann við það mikil- væga starf í mörg ár, en þó með hléum vegna búsetu. Svo hitti hún Steina. Ungu hjónin Steinunn og Steingrímur hófu búskap í ný- byggðri íbúð sinni í Marklandi 6, en vegna starfa Steingríms við uppbyggingu virkjana Lands- virkjunar bjuggu þau í mörg ár á bökkum Þjórsár með börnum sínum tveimur. Þau aðlöguðust heimamönnum vel og vinguðust mörgum Gnúpverja. Síðar eign- uðust þau sumarbústað í hreppn- um og áttu þar góðar stundir. Eftir veruna fyrir austan byggðu þau sér myndarlegt par- hús í Hagaseli og síðar eignuðust þau íbúð með stórkostlegu útsýni yfir Elliðavatn. Þess hefði Stein- unn þurft að fá að njóta miklu lengur. Á öllum þessum stöðum var heimili þeirra snyrtilegt og þangað var gott að koma. Steinunn var mjög drífandi og vildi að hlutirnir gengju, bæði hjá sér og öðrum. Sérstakan áhuga hafði hún á verklegum fram- kvæmdum. Hún fylgdist vel með hvað var í gangi hjá vinum og vandamönnum. Hún gat líka tek- ið til hendinni til hjálpar öðrum. Hún hafði næmt auga fyrir verk- lagi og hefði orðið góður verk- fræðingur ef hún hefði valið þá braut. Verklagni hefur eflaust hjálpað henni við ljósmæðra- störfin og það var til gamans sagt að hún væri jafnvíg á kúbein og fæðingatöng. Steinunn var geðgóð og glað- vær í söng og dansi og brosti fal- lega. Hún var hreinskiptin og sagði meiningu sína á jákvæðan hátt. En hún átti einnig erfiða tíma vegna veikinda í maga, en kom alltaf sterk til baka eins og sagt er í handboltanum. Þær voru nánar systurnar og góðar vinkonur, mörg voru sím- tölin og ekki öll stutt. Söknuður þeirra er því mikill. Steingrími og fjölskyldu er vottuð samúð. Minningin lifir. Sigurjón Svavar Yngvason. Leiðir okkar Steinunnar lágu fyrst saman fyrir um tuttugu og fimm árum þegar börnin okkar, þau Kristín og Elvar kynntust. Á þessum árum hefur myndast sterkt vinasamband milli okkar og þeirra hjóna, Steinunnar og Steingríms. Það má þakka það öðru fremur að Kristín og Elvar hafa verð óþreytt við að bjóða okkur foreldrunum til sín um jól og áramót og við ýmis önnur til- efni. Alltaf var gaman að koma í sumarbústað þeirra Steinunnar og Steingríms að Króki og vel tekið á móti okkur. Þar var grill- að læri og bearnaise í hávegum haft og alltaf gaman að kíkja í heita pottinn. Í fyrrasumar fórum við öll saman í ferð um norðanverða Vestfirði. Skemmtum við okkur vel saman og verður sú ferð okk- ur ógleymanleg. Þegar við hittum Steinunni í lok febrúar sl. í Kleifakór áttum við ekki von á að þetta yrði okkar síðasta samveru- stund. Steinunn var kát og glöð og lék á als oddi. Við borðuðum saman og Steinunn Silja okkar söng svo fallega fyrir okkur. Steinunn var einstaklega fal- leg og glæsileg kona og alltaf vel til höfð. Hún var mikill fagurkeri og bar heimili þeirra hjóna vott um það. Steinunn bar alltaf mikla umhyggu fyrir börnum sínum og barnabörnum og var alltaf til staðar fyrir þau. Við erum þakk- lát fyrir þær stundir sem við átt- um með elsku Steinunni og minn- umst hennar með hlýju og þakklæti. Við vottum Steingrími, Krist- ínu, Þórhalli og fjölskyldum inni- legustu samúð. Hallfríður og Þórður. Erfitt er að koma orðum að því þegar svo stórt og snöggt skarð er höggvið í vinahópinn. Steinunni hef ég þekkt síðan við Maggý urðum bestu vinkonur í upphafi okkar skólagöngu. Steinunn og Tobba voru litlu systur hennar en Unnur ófædd. Á þeim árum voru þær mun yngri en við stóru stelpurnar þótt Steinunn næði mér alltaf í aldri tvo mánuði á ári. Okkar mikli samgangur og vinátta leiddi af sér vinskap foreldra okkar sem varð til þess að mér fannst þeirra fólk vera mitt fólk. Tíminn leið og við Gestur bjuggum í Odense þegar Stein- unn kom þangað til að undirbúa sig fyrir ljósmæðranám, því mik- ið af námsefninu var á dönsku. Á þeim tíma bjó hjá okkur skóla- félagi og frændi Gests, Stein- grímur Dagbjartsson. Þegar ég kynnti þau þá sagði ég á léttum nótum að ég yrði alveg ánægð með þau handa hvort öðru, því bæði voru mér kær, en það tók þau nokkurn tíma að skilja það. Steinunn fór heim og lauk sínu ljósmæðranámi og við fluttum öll heim nokkru seinna. Þau Steini og Steinunn urðu hjón og sam- skipti okkar þróuðust í dýrmæta og trausta vináttu. Eftir að við keyptum Minna- Hof voru þau miklar hjálparhell- ur og voru mikið hjá okkur þar, þangað til þau eignuðust Krók, sitt sumarhús skammt frá. Þau, ásamt Maggý og Sigurjóni, voru ávallt reiðubúin að koma og hjálpa okkur hvort heldur var til að flytja hús, halda veislur og allt þar á milli. Öll samvera einkennd- ist af gleði og ánægju. Ekki minnkaði ánægja samverustund- anna þegar börnin bættust í hóp- inn. Svona vinskapur er ómetan- legur og munum við sakna Stein- unnar og hennar snöggu athuga- semda um hvað betur mætti fara. Elsku Steini, Kristín, Þórhallur og ykkar makar og börn, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Steinunn- ar. Valgerður (Vala) og Gestur. Steinunn Guðbjörg Valdimarsdóttir Elskuleg móðir mín, HEBA ÁRNADÓTTIR THERIAULT, lést á líknardeild Landspítalans 13. mars. Sérstakar þakkir fær starfsfólk líknardeildar Landspítalans og Heru fyrir umhyggju og alúð. Útförin fer fram frá Háteigskirkju 26. mars klukkan 13. Vinir og aðstandendur velkomnir. Belinda Theriault Ástkær móðir, amma, dóttir, systir og mágkona, GUÐMUNDA MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR, Eskivöllum 9b, Hafnarfirði, lést í faðmi fjölskyldunnar 12. mars á líknardeild Landspítalans. Útförin fer fram í Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 24. mars klukkan 13. Melkorka Jenný Gunnarsd. Elmar Eron Sindrason Guðmundur Hjörleifsson Jenný Þórisdóttir Helga Laufey Guðmundsd. Arnar Borgar Atlason Róbert Atli Guðmundsson Valgerður María Sigurðard. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, TÓMAS GUNNAR SÆMUNDSSON frá Hrútatungu, síðast búsettur á Selfossi, lést á Selfossi 18. mars. Útförin fer fram föstudaginn 26. mars kl. 11 í Selfosskirkju. Vegna aðstæðna eru jarðarfarargestir beðnir um að skrá sig á www.mbl.is/andlat eða vera með nafn, kennitölu og símanúmer á miða og afhenda við inngang. Fjöldatakmarkanir miðast við 200 manns. Útförinni verður streymt á vefsíðunni selfosskirkja.is. Sigrún E. Sigurjónsdóttir Sigurjón Tómasson Þorgerður Tómasdóttir Guðmundur E. Jóhannesson Arndís Tómasdóttir Frímann B. Baldursson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.