Morgunblaðið - 22.03.2021, Síða 23

Morgunblaðið - 22.03.2021, Síða 23
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2021 Raðauglýsingar Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Álit Skipulagsstofnunar Urðunarstaður Stekkjarvík, aukin urðun, land- mótun og rekstur brennsluofns Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam- kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Norðurá bs. er einnig að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss - Kraftur í KR kl.10:30, rútan fer frá Vesturgötu kl.10:10, Grandavegi 47 kl.10:15 og Aflagranda kl.10:20 – Útskurður kl.13:00 - Kaffi kl.14:30-15:20 - Grímuskylda er í Samfélagshúsinu og bera gestir ábyrgð á ð koma með eigin grímu og að passa upp á sóttvarnir - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir. Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Leikfimi með Hönnu kl. 10. Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Enskukennsla kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:30-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411-2600. Boðinn Myndlist með leiðb. kl. 13:00-16:00. Munið sóttvarnir. Sund- laugin er opin fá kl. 13:30-16:00. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi í kaffi- horninu kl. 10. Smíðaverkstæðið er opið frá 09:30-13.30. Samprón kl. 13:00-14:30. Leikfimi með sjúkraþjálfara kl. 13:50. Vegna sóttvarna- regla biðjum við ykkur að skrá ykkur fyrirfram í alla viðburði hjá okkur í síma: 535-2760 Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opið frá kl. 8:10-16. Kaffisopinn er góður kl. 8:10-11. Opin Listasmiðja kl 9-12. Hádegismatur kl. 11:30- 12:30. Mannamál með Helgu Margréti kl. 12:40-13:30.Tálgun með Valdóri kl. 13-15:30. Handavinnuhornið kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30- 15:30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Hjá okkur er grímuskylda og vegna fjöldatakmarkanna þarf að skrá sig fyrirfram. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabæ Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá Jóns- húsi kl. 10:00. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13:00. Stólajóga í Jóns- húsi kl. 10:00 og 11:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12:40. Zumba í sal í kjallara Vídalínskirkju kl. 16:30 og 17:15. Vatnsleikfimi Sjál. kl. 14:00 og 14:40. Litlakot opið kl. 13:00-16:00. Munið sóttvarnir og grímuskyldu. Gerðuberg Opin handavinnustofa frá kl. 8:30-16:00, alltaf heitt á könnunni. Dansleikfimi kl. 10 -10:40 með Auði Hörpu. Línudans kl. 11- 12:00 með Sólrúnu. Hádegismatur frá kl. 11:30. Kóræfing í Háholti frá kl. 13:00. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13 -16:00. Nánari upplýsingar í síma 664 4011. Gjábakki Kl. 8.30 til kl. 10.45 er handavinnustofan opin fyrir hand- verk og spjall - munið að tilkynna ykkur daginn áður (eða í lúgunni á leiðinni inn)! Kl. 8.45 til kl. 10.45 postulínsmálun (fullbókað). Kl. 10.50 til kl. 12.05 jóga (fullbókað). Kl. 13.30 til kl. 16.00 handavinnustofan opin fyrir handverk og spjall. Munið að enn gildir 2ja metra reglan og grímuskylda! Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 23. mars verður opið hús fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju kl. 13:00-15:30. Í upphafi er söngstund inni í kirkjunni. Boðið er upp á handavinnu, spil og spjall fyrir þau sem vilja. Samverunni lýkur með kaffiveitingum. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir. Kyrrðarstund hefst í kirkjunni kl. 12:00. Að henni lokinni er í boði léttur hádegisverður gegn vægu gjaldi. Gullsmára Handavinna kl. 9.00 og 13.00, skráning í síma 4419912. Jóga kl. 9.30 og 17.00. Munið sóttvarnir og grímuskyldu. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30. Samsöngur kl. 13:15 -14:00 Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga með Ingibjörgu kl. 8:30 í Borgum, ganga kl. 10 frá Borgum, inni í Egilshöll og frá Grafarvogskirkju. Dans- leikfimi í Borgum kl. 11:00 í dag. Prjónað til góðs og frjáls skartgripa- gerð kl. 13 í Borgum, Línudans með Guðrúnu í Borgum kl. 14:00. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum frá kl. 13:00 í umsjón Gylfa. Grímuskylda. Seltjarnarnes Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9.00 og 13.00. Leir á Skólabraut kl. 9.00. Billjard í Selinu kl. 10.00. Krossgátur og kaffi í króknum fyrir hádegi. Jóga á Skólabraut kl. 11.00. Handavinna, sam- vera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13.00. Virðum almennar sóttvarnir. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-369 www.tresmidjan.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur Laga ryðbletti á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Anna Þóra fæddist á Hala í Suðursveit, 28. apríl 1917, og lést á Hrafnistu við Brúnaveg, 12. mars 2021. For- eldrar hennar voru Steinþór Þórð- arson, bóndi á Hala, f. 10. júní 1892, d. 10. janúar 1981, og Steinunn Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 25. nóvember 1888, á Borg á Mýrum í Austur Skaftafells- sýslu, d. 14. maí 1981. Bróðir Önnu Þóru var Torfi Stein- þórsson, skólastjóri og hrepp- stjóri, f. 1. apríl 1915, d. 17. apríl 2001. Anna Þóra giftist Ólafi Sigurgeir Guðjónssyni húsgagnasmíðameistara þann 9. ágúst 1941. Ólafur var fædd- ur 23. febrúar 1911, sonur dórsdóttir, f. 1961. Synir þeirra eru Guðjón Ingibergur, f. 1994, sambýliskona Svandís Sveins- dóttir, sonur hennar er Aron Elí. Steindór Már, f. 2002. Anna Stella, f. 1974, maki Guðmundur Árni Gunnarsson, f. 1974. Börn þeirra: Alexander Þór, f. 1996, Guðrún Þorbjörg, f. 2008, og Gunnar Logi, f. 2010. Valdimar, f. 1980, maki Hild- ur Ævarsdóttir, f. 1979. Börn þeirra eru Dagur Örn, f. 2001, Jakob Máni, f. 2007, og Elín Sif, f. 2013. Anna Þóra stundaði nám í héraðskólanum á Laugarvatni 1936-1938. Að loknu námi flutt- ist hún til Reykjavíkur og lærði kjólasaum hjá Guðrúnu Arn- grímsdóttur og starfaði við það nokkur ár, síðar starfsmaður Olíuverslunar Íslands í 27 ár, uns hún lét af störfum 1989. Útförin fer fram frá Laug- arneskirkju í dag, 22. mars 2021, kl. 13. Slóð á streymi: https://youtu.be/a euy- ya8io Hlekk á streymi má finna á www.mbl.is/andlat/ hjónanna Guðjóns Jónssonar, bónda á Litlu-Brekku í Geiradal í Austur- Barðastrand- arsýslu, og Guð- rúnar Magn- úsdóttur húsfreyju. Börn Önnu Þóru og Ólafs eru: 1) Óskar Már, f. 20. mars 1943, maki (skilin) Erla Páls- dóttir, f. 1944 í Vestmanna- eyjum. Börn þeirra: Bjarni, f. 1968, dóttir hans er Birgitta, f. 1994. Anna Þóra, f. 1970, maki Kristófer Ásmundsson (skilin). Börn þeirra eru Tumi Snær og Melkorka Fanný. Steinþór, f. 1978, ókvæntur og barnlaus. 2) Guðrún, f. 28.9. 1946, maki Guðjón Þór Valdimarsson, f. 1.12. 1946. Börn þeirra: Ólafur Þór, f. 1963, maki Hildur Stein- Elsku mamma, þá hefur þú loks fengið hvíldina. 104 ár er ansi langur tími í lífi hvers manns. Mér er í barnsminni hvað hún gekk allt- af rösklega þegar ég var lítil og var að reyna að fylgja henni eftir í fiskbúðina eða matvöru- búðina, því enginn bíll var til á heimilinu. Fyrstu búskaparárin bjuggum við í Miðtúni 58 og síðar í Sigtúni 25. Hún hafði lært kjólasaum og tók að sér að sauma fyrir konur og síðar fór hún að sauma pils fyrir versl- unina Best á Vesturgötu. 1958 fór hún að vinna í Olíuverslun Íslands, síðar Olís, sem aðstoð- arkona í eldhúsi og síðar sím- vörslu og umsjón með spjald- skrá og vann hún við það til starfsloka. Upp úr 1960 eignuðust þau sinn fyrsta bíl, en það leið lang- ur tími þar til hún lærði á bíl. Þegar pabbi veiktist langaði hana til að taka bílpróf og það gerði hún 65 ára gömul. Hún naut þess að vera sjálfstæð og geta farið til vinkvenna þegar svo bar undir. Hún fór í kvennaleikfimi í Laugarnes- skóla og stundaði það í 30 ár hjá Ástbjörgu Gunnarsdóttur. Eftir að pabbi lést 1993 kom hún oft með okkur Gulla í sum- arbústaðinn okkar Hraunból. Þar leið henni vel. Þá var oft farið í bíltúra um Suðurlandið og sveitirnar skoðaðar, þar þekkti hún mörg bæjarnöfn. Stundum bauð hún upp á kaffi og hnallþórur í Kaffi Krús eða upp á ís. Hún hafði mjög gaman af að spila rommý við okkur og Valda okkar, sem hafði mjög gaman af að spila. Svo voru það myndatökurnar af kvöldsólinni og sólarlaginu í Grímsnesinu sem var alveg einstakt. Hún flutti úr Espigerðinu eftir þrjátíu ára veru þar yfir í Furugerði 1 og var þar í tæp þrjú ár en var svo óheppin að detta og lærbrotna og lenti þá á sjúkrahúsi í sex vikur, þaðan fór hún á Landakot í aðrar sex vikur. Síðan var hún svo lánsöm að komast á Mánateig á Hrafn- istu við Brúnaveg, þar sem hún naut frábærrar umönnunar í tæp 10 ár. Færum öllu því góða fólki hjartans þakkir fyrir. Hvíldu í friði elsku mamma. Guðrún Ólafsdóttir (Systa). Nú fékk hún hvíldina lang- þráðu, eftir tæplega 104 ára veru í þessum heimi. Hver veit nema hún sé komin til endur- fundar við Ólaf eiginmann sinn, sem lést árið 1993. Þau voru erfið síðustu árin hjá henni, þrátt fyrir frábæra umhyggju starfsfólksins á Mánateig á Hrafnistu sem gerði allt til að láta henni líða sem best. Ég kynntist Þóru fyrir rúm- um 50 árum, þegar ég fór að gera hosur mínar grænar fyrir dótturinni á heimilinu. Ég komst fljótt að því að Þóra hafði ákveðnar skoðanir á þjóð- málunum, ég var ekki alltaf á sama máli, en gætti þess vel að styggja ekki væntanlega tengdamóður mína og lét því lítið fara fyrir skoðunum mín- um. Mér var vel tekið af þeim hjónum Þóru og Ólafi, ég var varla kominn inn fyrir þrösk- uldinn á Háaleitisbrautinni, þar sem þau bjuggu á þeim tíma, þegar mér var boðið í mat. Eft- ir að Ólafur féll frá árið 1993 kom hún oft með okkur í sum- arbústaðinn okkar og þá skipt- um við um hlutverk því þá gat ég boðið henni í mat, mér til mikillar ánægju. Hún sótti mik- ið á sínar gömlu æskuslóðir meðan heilsan leyfði, og átti þar hauk í horni sem var heiður- skonan Ingibjörg Zophanías- dóttir mágkona hennar, sem var fyrr á árum bóndi og hús- freyja á Hala í Suðursveit. Ég þakka Þóru samfylgdina, megi hún hvíla í friði. Guðjón Þór. Nú er kær föðursystir mín, Anna Þóra Steinþórsdóttir, fall- in frá eftir rúmlega aldarlangt lífshlaup, en hún hefði orðið 104 ára í lok næsta mánaðar. Þóra frænka, eins og við í fjölskyld- unni kölluðum hana ævinlega, var fædd á öðrum tug síðustu aldar þegar nútímaþægindi voru óþekkt og véla- og tækni- væðing okkar tíma var langt handan við hornið. Hún ólst upp í hefðbundnu bændasamfélagi þess tíma, hjá ástríkum foreldr- um og bróður einum systkina. Það var sérkennilegt að hlusta á þau systkinin, föður minn og hana, lýsa lífinu í sveitinni, þar sem ekkert virtist í raun skorta og börnin voru þá sem nú söm við sig. Þar sem kirkjuferðir gátu orðið viðburðarík manna- mót og kærkominn samfundur fólksins í Suðursveit, vettvang- ur samskipta þar sem fólk skiptist á fréttum af sér og sín- um og fylgdist með ungviðinu vaxa úr grasi, að ekki sé talað um tækifæri unga fólksins til að kynnast og gefa hvert öðru auga. Stundum upphófust jafn- vel hnippingar eða slagsmál á milli krakkanna á kirkjulóðinni. Skautaferðir á Lóninu voru hin- ar dásamlegustu vetraríþróttir barna og unglinga og rómantík- in lá í loftinu á björtum tungl- skinskvöldum. Við Þóra áttum saman marg- ar ánægjulegar samverustundir eftir að ég flutti til Reykjavík- ur. Hún var skemmtileg og gestrisin heim að sækja, fé- lagslynd og alla jafna orðheppin og hafði unun af að spjalla. Hún naut þess að skreppa í bíltúra og á kaffihús, hringdi gjarnan í mig og spurði hvort mig langaði ekki að koma og slúðra svolítið. Þetta sagði hún í hálfkæringi og með nokkurs konar vandlæt- ingu, því slúður var ekki hennar stíll. Á efri árum eftir að Ólafur eiginmaður Þóru féll frá, kom hún gjarnan til sumardvalar að Hala á hverju sumri. Þar var oft glatt á hjalla og mikið hleg- ið. Þóra kunni þá list að láta fleyg orð falla. Hún var skemmtileg en gat verið berorð án þess þó að troða öðrum um tær vísvitandi, og enginn oflát- ungur var hún og lítið fyrir að hreykja sér. Þau systkinin, fað- ir minn og hún, voru ekki alltaf sammála. Bæði voru þau minn- ug og höfðu gaman af að rifja upp viðburði fyrri ára, um fólk og fyrirbæri. Faðir minn var stríðinn og átti til að espa syst- ur sína upp en allt var það þó í miklu glensi og gamni og aldrei minnist ég þess að upp úr hafi soðið. Á móti var hún lagin við að veiða upp úr honum hin ýmsu leyndarmál frá fyrri tíð, sem við systkinin skemmtum okkur yfir. Kæra Þóra frænka. Ég veit að þú hefur fengið góðar mót- tökur þarna í sælustraffinu hin- um megin. Þú valdir þér góðan dag til að kveðja, afmælisdag Þórbergs föðurbróður þíns. Þakka þér fyrir allar góðu gleðistundirnar okkar, elsku frænka, ég vildi bara að þær hefðu verið miklu fleiri síðustu árin. Það var alltaf svo augljóst hversu ættartengslin voru sterk og þræðirnir áþreifanlegir, sem gerði samveru þína með stór- fjölskyldunni svo merkingar- bæra og ómissandi. Ég hlakka til endurfundanna, við eigum eftir að slúðra svo miklu miklu meira. Innilegar samúðarkveðjur til Óskars, Guðrúnar og fjöl- skyldna. Steinunn Torfadóttir. Í dag verður hún „Þóra frænka“, eins og hún var alltaf kölluð, borin til grafar og vant- aði bara mánuð eða svo, að hún næði 104 ára aldri. Okkar kynni hófust fyrir allmörgum árum, um það leyti sem ég var að bera mig eftir frænku hennar, dóttur Torfa á Hala bróður hennar. Nú nú, það mun hafa verið á vordögum 1983, þegar ég, í einni af mínum fyrstu ferðum í heimahaga kærustunnar, sá hana koma stormandi niður af- leggjarann, með flaksandi úlp- una, og gekk hratt, minnti svo- lítið á skip á fullu ferðinni, til að halda áætlun, þegar hún nálg- aðist þá heilsaði ég og kynnti mig, „komdu sæll, ert þú nýi tengdasonurinn á Hala?“ spurði hún, og þar með var strákurinn samþykktur. Hún var þannig gerð, að hún sagði sína skoðun umbúðalaust, á kjarnyrti íslensku og var ekk- ert að pakka því neitt í eitt- hvert silki, en hún gat líka hrósað, átti það til að fylgjast með því sem ég var að dytta að, því oft féll eitt og annað til á Hala sem þarfnaðist lagfæring- ar og þá hrósaði hún mér óspart. En svona var hún bara, yndisleg kona sem ekkert lét fram hjá sér fara. Á milli þeirra systkina var mjög kært, þau höfðu víst verið iðin í æsku að stríða hvort öðru, þau fengu sér oft og iðulega miðdagslúr eftir matinn, var þá yndislegt að sjá þau steinsofandi hvort í sínum stofustólnum. Þau spiluðu mikið á spil, höfðu rangt við, þó að- allega tengdapabbi en alltaf var glettnisglampi í beggja augum og væntumþykjan leyndi sér ekki, en það gat líka hvesst, þegar verið var að spila, og heilu lægðardrögin lögðust yfir Halabæina, en það tók fljótt af. Það var ekkert leiðinlegt að hitta á hana Þóru frænku í sveitinni, en þangað sótti hún mikið seinni árin og sennilega var hugurinn oft og iðulega á æskustöðvunum. Þá var tekið spjall, sjaldan vorum við sam- mála, hvorki í pólitík né öðru, enda gaman að vera á hinum vængnum í umræðunni, og átti hún þá til að láta baneitraðar athugasemdir falla þannig að oftast átti hún síðasta orðið, enda betra að eiga hana sem vin frekar en öflugan óvin. Nú sitja þau systkinin í sumarland- inu, í sólskini, naga puntstrá, og spjalla um landsins gagn og nauðsynjar, hvort sú golsótta sé borin, hvernig nytin sé nú í henni Gránu, og hvernig hey- fengur komi til með að verða, og mjög líklega halda þau áfram að stríða hvort öðru, með glettnisglampa í augum og ef það finnst spilastokkur þar, þá eru þau að svindla hvort á öðru, og skamma hvort annað, en bara í góðu eins og þau gerðu í jarðvistinni. Sendum kærar kveðjur í sumarlandið. Sendum Óskari og fjölskyldu og Guð- rúnu og fjölskyldu okkar inni- legustu samúðarkveðjur, ykkar missir er mikill, en minningin lifir og er falleg. Þórir og Súsanna. Anna Þóra Steinþórsdóttir hefur kvatt og er nú horfin til eilífðarlandsins, þangað sem við munum öll fara að lokum. Hún var vinkona mömmu okkar, sú allra skemmtilegasta að öðrum ólöstuðum. Þóra hafði ríka kímnigáfu og frásagnargáfan var ekki síðri. Þær mamma gerðu sér líka oft að leik að lát- ast vera á öndverðum meiði um menn og málefni, þá gátu um- ræðurnar orðið ansi líflegar. Því lá alltaf tilhlökkun í loftinu þeg- ar von var á henni í heimsókn. Þóra kom til dyranna eins og hún var klædd og sagði sína skoðun umbúðalaust. Við viss- um því alltaf hvar við höfðum hana, það er mikið öryggi í því. Hún sýndi okkur systrunum væntumþykju en stríddi okkur stundum ef þannig lá á henni. Þegar þær vinkonurnar voru orðnar einar í heimili hittust þær oft til að spjalla og spila rommí með tár af einhverju ljúfu með. Þóra lifði vinkonu sína um fjölmörg ár en hélt sambandi við okkur systurnar. Háöldruð var hún enn með á nótunum um okkar hagi, spurði frétta af börnunum okkar og mundi öll nöfn. Um leið og við samhryggj- umst fólkinu hennar Þóru þökk- um við forsjóninni fyrir að hafa þekkt hana. Ágústa, Anna Þóra, Sigrún og Margrét Árnadætur. Anna Þóra Steinþórsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.