Morgunblaðið - 29.03.2021, Síða 1
Þúsundir nýttu gærdaginn til að sjá eldgosið í Geld-
ingadölum með eigin augum. Vel viðraði til slíks er-
indis í gær, ólíkt laugardeginum þegar svæðinu var
lokað vegna óveðurs. Yfirvöld byggja nú upp inn-
viði á staðnum, af því að allt eins eru líkur á að gos-
ið laði áfram að ferðamenn um ókomna tíð. »4
Morgunblaðið/Ásdís
Ágangur forvitinna
á viðkvæmt svæði
M Á N U D A G U R 2 9. M A R S 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 74. tölublað . 109. árgangur .
ER DRAUMURINN
UM SÆTI Á HM
ÞEGAR ÚTI? Í TÖKUM Í FÆREYJUM
VÖRUÞRÓUN
SKAPAR NÝ
TÆKIFÆRI
ÍSLENDINGAR AÐSTOÐA FRÆNDUR SÍNA 2 SIGURÐUR ÓLI 11SLÆMT TAP Í ARMENÍU 27
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
e
v
a
0
2
8
0
6
2
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | www.fi.is
Sjáumst á fjöllum
Albanski maðurinn sem játaði að
hafa skotið samlanda sinn, Arm-
ando Bequiri, í Rauðagerði í febr-
úar var þegar eftirlýstur af alb-
önskum stjórnvöldum vegna glæps
í heimalandi sínu. Albönsk stjórn-
völd höfðu lagt fram framsalskröfu
til íslenskra stjórnvalda nokkru
áður en morðið í Rauðagerði átti
sér stað en við henni hafði ekki ver-
ið brugðist. Sigríður J. Friðjóns-
dóttir ríkissaksóknari staðfestir í
samtali við Morgunblaðið að fram-
salskrafan hafi legið fyrir í ein-
hvern tíma en bjó ekki yfir upplýs-
ingum um hve lengi. Hún hafi þó
borist áður en morðið átti sér stað.
Margeir Sveinsson yfirlögreglu-
þjónn sagði fyrir helgi að með játn-
ingu mannsins væri gátan um fram-
kvæmd málsins leyst, en enn hefur
ekki verið komist til botns í skipu-
lagningu verknaðarins eða eftir-
málum hans. Játningin þykir þó
trúverðug. snorrim@mbl.is
Framsals-
krafa barst
fyrir morðið
- Ekki brugðist við
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt
hefur undirritað samning um kaup á
Domino’s á Íslandi. Þetta herma
heimildir Morgunblaðsins. Seljandi
fyrirtækisins er Domino’s Group í
Bretlandi sem auglýsti hlutinn til sölu
í október síðastliðnum. Domino’s Gro-
up, sem er stærsta pítsukeðja Bret-
lands, keypti starfsemina hér á landi í
tveimur skrefum árin 2016 og 2017 af
Birgi og öðrum þáverandi hluthöfum.
Líkt og greint var frá í Viðskipta-
Mogganum þann 17. mars síðastlið-
inn var fjárfestingarsjóður á vegum
Alfa Framtaks einn eftir í viðræðum
við Domino’s Group um kaup á starf-
seminni hér á landi í kjölfar þess að
fjárfestahópur með Birgi í farar-
broddi og annar hópur með Þórarin
Ævarsson í Spaðanum í fararbroddi,
höfðu helst úr lestinni.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að í þeirri stöðu hafi Alfa Framtak
gert talsverðar breytingar á tilboði
sínu í fyrirtækið og í kjölfarið hafi
fjárfestahópi undir forystu Birgis
verið hleypt að borðinu að nýju.
Samningar hafi svo náðst nú um liðna
helgi. Blaðið hefur ekki upplýsingar
um hvert kaupverðið var en í fréttinni
17. mars var talið að verðmat á fyrir-
tækinu hlypi nærri 2,5 milljörðum
króna. Domino’s Group keypti fyrir-
tækið fyrir hálfum áratug á u.þ.b. átta
milljarða króna. Þrír öflugir fjárfest-
ar koma að kaupum fyrirtækisins að
þessu sinni samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Það munu vera fé-
lagið Sjávarsýn ehf., sem er í eigu
Bjarna Ármannssonar, Kristinn ehf.,
sem er í eigu Guðbjargar Matthías-
dóttur, og Lýsi hf., sem er m.a. í eigu
Gunnlaugs S. Gunnlaugssonar, Eyj-
ólfs Sigurðssonar og Katrínar Péturs-
dóttur. Með kaupunum skrifar Birgir
Þór nýjan kafla í langri sögu sem
tengir hann rekstri Domino’s á Ís-
landi. Hann kom að stofnun þess á
sínum tíma. Árið 2005 hvarf hann frá
því en keypti það að nýju árið 2011 í
kjölfar þess að Landsbankinn hafði
tekið það yfir í uppgjöri við fyrri eig-
endur. Í fyrra var greint frá því að
Birgir hefði, ásamt konu sinni, Eygló
Björk Kjartansdóttur, keypt rekstur
Domino’s í Noregi. Þá var tilkynnt
um það fyrr á þessu ári að þau hefðu
keypt að nýju starfsemi fyrirtækisins
í Svíþjóð, sem þau áttu hlut í en létu í
skiptum fyrir reksturinn í Noregi í
fyrra.
Birgir kaupir Domino’s
- Birgir Þór Bieltvedt leiðir fjárfestahóp sem kaupir Domino’s á Íslandi
- Þriðja sinn sem hann eignast fyrirtækið - Miklar sviptingar í söluferlinu