Morgunblaðið - 29.03.2021, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
farið að ræða um að gera þáttaröð
númer tvö að mestu á Íslandi og
þannig tengjumst við þessu verkefni
enn frekar.“
Í Trom segir af blaðamanninum
Hannis Martinsson sem Thomsen
leikur. Hann fær skilaboð frá dóttur
sinni um að hún sé í hættu. Í kjölfarið
snýr hann aftur heim til Færeyja og
finnur lík dóttur sinnar í blóði drifn-
um sjó eftir grindhvaladráp heima-
manna. Leit Martinsson að svörum
veltir við ýmsum steinum í samfélag-
inu, leiðir til deilna hans við lögreglu
og ljóstrar upp um vel falin leynd-
armál. Þættirnir verða frumsýndir á
næsta ári.
vinnu við Rikke Ennis fyrir REinvent
Studios auk Kyk Pictures. Meðfram-
leiðandi er hinn færeyski Jón Ham-
mer.
Gerð sjónvarpsþáttanna hefur vak-
ið mikla athygli í Færeyjum enda eru
um fimmtíu manns í tökuliðinu og
mikið umstang. Þar af er um helm-
ingur Íslendingar en auk þeirra
heimamenn, Danir og Norðmenn.
Kvikmyndatímaritið Variety
fjallaði um gerð þáttanna fyrir
skemmstu og greindi frá því að þeir
yrðu sýndir á Viaplay. Leifur segir að
auk þess sem verkefnið sjálft sé
spennandi sé mikilvægt fyrir Íslend-
inga að tengjast því. „Það er þegar
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er virkilega gaman að fara í
samframleiðslu með frændum okkar,
Færeyingum,“ segir Leifur B. Dag-
finnsson, framleiðandi hjá Truenorth.
Tökur standa nú yfir á færeysku
spennuþáttaröðinni Trom og er Leif-
ur einn framleiðenda. Fjöldi Íslend-
inga kemur að gerð þáttanna sem eru
þeir fyrstu sinnar tegundar sem gerð-
ir eru í Færeyjum.
Leifur segir í samtali við Morgun-
blaðið að tökur hafi hafist fyrir tveim-
ur vikum og standi fram í júní. Höf-
undur Trom er Torfinnur Jákupsson
en byggt er á glæpa- og spennusög-
um Jógvan Isaksen. Hinn kunni
danski leikari Ulrich Thomsen fer
með aðalhlutverkið. Tveir leikstjórar
skipta með sér að stýra þáttunum sex
í fyrstu þáttaröðinni. Það er Kasper
Barfoed sem stýrir fyrstu þremur en
seinni þrír eru undir stjórn Davíðs
Óskars Ólafssonar sem gat sér gott
orð fyrir þættina Brot, eða Valhalla
Murders eins og þeir kölluðust á
ensku. Leifur segir við Morgunblaðið
að Trom séu álíka stór framleiðsla og
Brot voru.
„Bækur Jógvans Isaksen hafa
ferðast víða og þetta er allt saman
tekið í Færeyjum. Fyrir vikið er mas-
sífur áhugi á þáttunum á alþjóðlegum
vettvangi,“ segir Leifur sem fram-
leiðir fyrir hönd Truenorth í sam-
Ljósmynd/Metúsalem Björnsson
Tökur Yfir 20 Íslendingar vinna nú að gerð spennuþáttanna Trom í Færeyjum. Mikil spenna er fyrir þáttunum.
Horfa til Íslands fyrir
næstu þáttaröð Trom
- Fjölmargir Íslendingar í tökum í Færeyjum fram í júní
Ljósmynd/Aðalræðisskrifstofa Íslands í Færeyjum
Fagnaðarfundir Benedikt Jónsson, aðalræðismaður Íslands í Færeyjum,
heilsaði upp á landa sína þegar tökur á Trom hófust fyrir tveimur vikum.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég er að reyna að mæta í vinnuna
þótt það sé stundum erfitt. Ég geri
ekkert skemmtilegra en að vinna
og langar að geta unnið þarna
áfram. Það verður erfitt ef heilsan
fer. Ég er kvíð-
in,“ segir kona
sem starfar á
fósturgreiningar-
deild kvenna-
deildar Landspít-
alans. Grunur
leikur á að
mygla í húsnæð-
inu hafi valdið
veikindum starfs-
fólks og jafnvel
sjúklinga.
Birgir Þórarinsson, þingmaður
Miðflokksins, hefur lagt fram á Al-
þingi skriflega fyrirspurn um
myglu í húsnæði Landspítalans,
hvar hennar hafi orðið vart, hversu
margir veikindadagar séu vegna
þess og hvað hafi verið gert til að
uppræta mygluna. Segir Birgir við
Morgunblaðið að tilefnið sé að
hann hafi frétt af veikindum starfs-
fólks í húsnæði kvennadeildar.
Konan sem rætt var við starfar í
elsta hluta húss kvennadeildar.
Hún hefur átt við veikindi að stríða
frá árinu 2018 og verið í veik-
indaleyfi langtímum saman. Hafa
veikindin gengið nærri henni.
Tengir hún veikindi sín við myglu-
vandamál enda bendi einkennin til
þess.
Konan segir að búið sé að ræða
málið mikið á deildinni og við þá
sem stjórna húsnæðismálum spít-
alans. Tekur hún fram að yfirmað-
ur hennar hafi staðið eins og klett-
ur með starfsfólkinu. Að komið hafi
verið með alls konar mælitæki en
ekki mælst nein mygla. Að lokum
hafi gólfdúkur verið tekinn af stofu
sem hún var hætt að geta komið í
og þá hafi gosið upp viðbjóðsleg
lykt. Sama hafi gerst síðar í ann-
arri stofu sem hún hafi átt erfitt
með að koma í. Ekkert hafi mælst
en þegar dúkurinn var tekinn kom
í ljós opið holræsi.
Fleiri starfsmenn deildarinnar
hafa veikst og auk þess þunguð
kona sem þar var til meðferðar í
lok síðasta árs. Veikindi skjólstæð-
ingsins voru skráð í atvikaskrá
spítalans.
Telur starfsmaðurinn rétt að
bregðast við með því að flytja
starfsemina í annað hús á meðan
húsnæðið verði tekið vel í gegn,
þannig að starfsfólk og skjólstæð-
ingar þess geti verið þar öruggir
um heilsu sína.
Rekur veikindi til
myglu í húsnæði
- Þingmaður óskar upplýsinga vegna
frétta um myglu á kvennadeild LSH
Birgir
Þórarinsson
Andrés Magnússon
Stefán E. Stefánsson
Halldór Kristmannsson, einn nán-
asti samstarfsmaður Róberts
Wessman, forstjóra Alvogen til
tveggja áratuga, telur að rannsókn
stjórnar fyrirtækisins á starfshátt-
um og framkomu Róberts í starfi
beri vott um hvítþvott. Þar hafi m.a.
verið litið fram hjá háttsemi, sem
stjórn Alvogen hafi verið kunnugt
um og Róbert þurft að biðjast afsök-
unar á. Rannsóknin átti rætur að
rekja til þess að starfsmaður félags-
ins sendi kvörtun til stjórnarinnar
vegna starfshátta forstjórans.
Í liðinni viku sendi stjórn Alvogen
frá sér tilkynningu eftir átta vikna
rannsókn lögmannsstofu félagsins
vegna umkvartana starfsmanns
þess.
„Niðurstaðan er skýr og ljóst að
efni kvartananna á sér enga stoð.
Ekkert bendir til þess að starfs-
hættir Róberts Wessman séu þess
eðlis sem greint er frá í bréfinu og
engin ástæða er til að aðhafast neitt
vegna þessa máls,“ sagði þar meðal
annars.
Margháttaðar umkvartanir
Halldór kveðst hafa ákveðið að
stíga fram sem uppljóstrarinn í mál-
inu eftir að nafni hans hafi verið lek-
ið, þrátt fyrir þá vernd sem upp-
ljóstrurum sé ætluð í slíkum málum.
Hann finnur að því að honum hafi
ekki verið gert viðvart um niður-
stöðuna, heldur lesið um hana í fjöl-
miðlum.
Þá þyki honum merkilegt að lesa
að hann hafi átt að hafa gert fjár-
kröfu á félagið, þar sem hann hafi
sérstaklega tekið fram að svo væri
ekki. Morgunblaðið hefur séð bréf
þess efnis. Umkvartanir Halldórs
voru að hans sögn margþættar og
sneru m.a. að ofstopa í garð undir-
manna og fyrrverandi samstarfs-
manna, þar sem Róbert hafi tvisvar
beitt líkamlegu ofbeldi.
„Ég var beinlínis kýldur kaldur í
andlitið án fyrirvara í vitna viður-
vist,“ segir Halldór og bætir við:
„Mér var augljóslega ekki skemmt,
og hef ekki orðið var við það al-
mennt séð að forstjórar fari í kýl-
ingaleiki við samstarfsmenn.“
Morgunblaðið hefur rætt við vitni
að umræddu atviki, sem átti sér stað
í París, sem staðfestir atvikalýsingu
Halldórs.
Einna alvarlegastar hafi þó verið
fólskulegar hótanir í garð fyrrver-
andi starfsmanna Actavis, sem hafi
haft ástæðu til þess að óttast um ör-
yggi sitt og fjölskyldna sinna fyrir
vikið.
Þá tíundaði Halldór að Róbert
hafi lagt á ráðin um rógsherferðir í
fjölmiðlum gegn ýmsu fólki, sem
hann hafi borið kala til, þar á meðal
viðskiptakeppinautum og embættis-
mönnum hins opinbera.
„Ég tel að morðhótanir, líkams-
árásir og svívirðilegar ásakanir, er
varða meinta óvildarmenn og æru-
meiðingar í þeirra garð, sé í raun
óverjandi hegðun forstjóra alþjóð-
legra fyrirtækja. Þetta hlýtur að
vekja upp spurningar um hæfi hans
sem stjórnanda.“
Ber Róbert Wessman þungum sökum
- Hægri hönd forstjóra Alvogen stígur fram sem uppljóstrari - Segir vafa leika á hæfi hans sem stjórnanda
Halldór
Kristmannsson
Róbert
Wessman