Morgunblaðið - 29.03.2021, Page 6

Morgunblaðið - 29.03.2021, Page 6
húsum félagsins en að fylgst verið náið með stöðunni og að ákvörðun verði tekin í vikunni í samráði við sóttvarnayfirvöld. Gissur Kolbeinsson, staðgengill framkvæmdastjóra Bandalags há- Ljósmynd/VR Sívinsæl Aldrei hafa fleiri sótt um að komast að í orlofshúsunum. Mikill fjöldi hefur afbókað orlofshús hjá stéttarfélögum sínum fyrir páskana. Þórarinn Eyfjörð, fram- kvæmdastjóri kjara- og reksturs hjá Sameyki, að það sé augljóst að fólk sé að bregðast við þeirri stöðu sem uppi er í faraldrinum. Þeir sem af- bókuðu með stuttum fyrirvara fá endurgreitt að fullu. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur sömu sögu að segja en mikill fjöldi hefur afbókað orlofshús á þeirra vegum fyrir páskana. Hann segir að sú ákvörðun hafi verið tek- in að loka orlofshúsunum ekki yfir páskana heldur leggja áherslu á aukin þrif og sótthreinsun. Viðar Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Eflingar, segir að ekki standi enn til að loka orlofs- skólamanna, segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort eigi að loka orlofshúsunum yfir páskahátíð- irnar eða ekki. Stjórnin muni fylgj- ast náið með ástandinu og grípa til aðgerða ef þess er þörf. Eitthvað hefur verið um afbókanir um páskana en telur Gissur að þær séu tengdar lokunum á skíðasvæðum og annarri þjónustu. BHM hefur aldrei fengið jafn margar umsóknir um úthlutun or- lofshúsa og nú í ár. Tæplega 2.600 umsóknir bárust fyrir sumarið en heildarfjöldi vikna sem voru í boði núna var rúmlega 500. Hjá Sameyki var einnig mikill áhugi en Þórarinn sagðist ekki hafa séð að áhuginn hafi aukist milli ára þar sem hann væri alltaf mikill. sonja@mbl.is Fjöldi afbókað orlofshús - Stéttarfélögin loka ekki orlofshúsum yfir páska - Fylgj- ast grannt með stöðunni - Aldrei fleiri bókanir fyrir sumarið 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Kosið verður um sameiningu sveitar- félaga í þremur landshlutum á þessu ári. Ákveðnir hafa verið tveir kjör- dagar, kosið verður á tveimur svæð- um 5. júní en á Suðurlandi á kjördegi til Alþingis í haust. Umræður um val- kosti og vinna að sameiningu er víða að hefjast, meðal annars á Norðaust- urlandi og á nokkrum stöðum við Breiðafjörð. Tillaga um sameiningu fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatns- sýslu þar sem Blönduós og Skaga- strönd eru þéttbýliskjarnarnir verður lögð fyrir íbúana í atkvæðagreiðslu 5. júní næstkomandi. Nú hafa sveitar- stjórnir Þingeyjarsveitar og Skútu- staðahrepps ákveðið að láta kjósa um sameiningu á sama degi. Miðað er við að málin verði kynnt og útskýrð fyrir íbúunum í apríl. Ef það tekst ekki vegna samkomutakmarkana gæti þurft að fresta atkvæðagreiðslu því margt fólk í sveitum hefur öðrum hnöppum að hneppa yfir sauðburð- inn. Nú hefur sameiningarnefnd sveitarfélaganna fimm á Suðurlandi, Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rang- árþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps, lagt til við sveitar- stjórnir að greidd verði atkvæði um sameiningu samhliða kosningum til Alþingis, 25. september. Með því eru taldar líkur á að góð þátttaka fáist. Annast allan rekstur Vinna við aðrar sameiningar sem væntanlega mun ekki reyna á fyrr en á næsta kjörtímabili er á ýmsum stig- um. Það er að gerast þrátt fyrir að óvissa ríki um afdrif stjórnarfrum- varps þar sem kveðið er á um um lág- marksfjölda íbúa sveitarfélaga. Sveitarstjórn Svalbarðshrepps á Norðausturlandi hefur lagt til við ná- granna sína í Langanesbyggð að tekið verið upp samstarf um mat á því hvort rétt sé að sameinast. Kosnar hafa verið viðræðunefndir í báðum sveitarfélögum, rætt hefur verið við fulltrúa sveitarstjórnarráðuneytis og óformlegar viðræður hefjast eftir páska. Jónas Egilsson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, segir að samein- ing ætti ekki að vera flókin því Langa- nesbyggð reki flesta málaflokka fyrir Svalbarðshrepp, meðal annars skóla, gegn því að hreppurinn greiði sinn hluta kostnaðar. Sameinist sveitar- félögin eiga þau von á 550 milljóna kr. framlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfé- laga til skuldajöfnunar og innleiðing- ar nýrra verkefna. Strandabyggð er að hefja vinnu við greiningu á valkostum til sameining- ar. Þorgeir Pálsson sveitarstjóri segir að markmiðið sé að draga upp mynd af kostum, göllum og tækifærum við sameiningu við nágrannasveitarfélög. Þar er annars vegar átt við Kald- rananeshrepp og Árneshrepp sem liggja norðar á Ströndum og hins veg- ar Reykhólahrepp sem er vestan við fjallveginn Þröskulda. Öll þessi sveit- arfélög og raunar einnig Dalabyggð eiga í margvíslegri samvinnu. Dala- byggð hefur að lokinni valkostagrein- ingu ákveðið að óska eftir viðræðum við Húnaþing vestra annars vegar og Stykkishólmsbæ og Helgafellssveit hins vegar. Jákvæð svör hafa borist og hefjast viðræður eftir páska. Reykhólasveit vinnur einnig að val- kostagreiningu með aðstoð RR ráð- gjafar, eins og Strandabyggð. Þorgeir segir að hin sveitarfélögin viti af vinnu Strandabyggðar og telur hann eðlilegt að láta niðurstöðu valkosta- greiningar ráða því til hvaða sveitar- félaga verði leitað. Reynt við Tálknafjarðarhrepp Vesturbyggð vinnur að valkosta- greiningu vegna sameiningar við Tálknafjarðarhrepp sem er land- fræðilega eins og eyja í Vesturbyggð. Sá galli er hins vegar á gjöf Njarðar að lítill áhugi hefur verið á Tálknafirði á sameiningu við Vesturbyggð og sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps vildi ekki taka þátt í þessari vinnu. Hugsanlegt er að aðrir kostir komi upp við valkostagreiningu, þótt þeir liggi ekki í augum uppi. Verið er að kanna kosti og galla við sameiningu Svalbarðsstrandar- hrepps og Eyjafjarðarsveitar. Þá vinna Kjósarhreppur og Sveitarfélag- ið Vogar að valkostagreiningu, hvort sveitarfélag fyrir sig. Morgunblaðið/Líney Þórshöfn Óformlegar viðræður eru að hefjast um möguleika á sameiningu Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps. Tveir kjördagar sameiningar - Atkvæðagreiðslur um sameiningu verða á tveimur svæðum 5. júní og þær þriðju samhliða alþingiskosningum - Undirbúningur hafinn að viðræðum á nokkrum stöðum Um 1.500 manns voru í sóttkví í gær, sunnudag, en aftur á móti losnuðu yfir hundrað manns. Það voru 80 nem- endur og 25 starfsmenn Laugarnesskóla sem fóru í seinni sýnatöku á laug- ardag og reyndust þeir allir nei- kvæðir. Áfram eru sex starfsmenn og 22 nemendur í Laugarlækjar- skóla í sóttkví. Hópurinn fer í seinni skimun á morgun, þriðjudag. Alls greindust tíu smit innanlands á föstudag og laugardag, fjórir á föstudag og sex á laugardag, þar af var einn utan sóttkvíar. Unnið var að því að rekja þetta eina smit í gær en rakningu er lokið á öllum öðrum smitum. „Þetta er sama fólkið og er að vinna í Covid, þetta er fólkið okk- ar hjá sóttvarnalækni sem er að vinna í þessu,“ sagði Rögnvaldur. Ekki eru tölur birtar á covid.is um helgar og verða þessar tölur stað- festar í dag, mánudag. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislög- reglustjóra, sagði í samtali við mbl.is um helgina að ekki stæði til að fara að birta tölur um helgar þar sem það væri mikil handavinna og verið væri að hvíla starfsfólk. „Þetta er alltaf viðbúið, að þegar svona rosalega margir eru í sóttkví er alltaf hættan á að það haldi áfram að bætast í hópinn. Fólk er náttúrlega í sóttkví vegna þess að það hefur verið útsett,“ sagði Rögn- valdur. Á annað þúsund í sóttkví - 10 innanlandssmit og eitt utan sóttkvíar Rögnvaldur Ólafsson Reykur kom upp í P-8-kafbátaeft- irlitsflugvél á vegum bandaríska sjóhersins í gær. Hún lenti á Kefla- víkurflugvelli eftir atvikið, að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsinga- fulltrúa Landhelgisgæslunnar. Níu menn voru um borð og var flugvélin nýtekin á loft frá Kefla- víkurflugvelli þegar hættuástandi var lýst yfir. Flugvélin lenti um klukkustund síðar eftir að hafa hringsólað til að brenna eldsneyti. Að sögn Ásgeirs eru að jafnaði tvær kafbátaeftirlitsflugvélar á vegum bandaríska sjóhersins stað- settar hér á landi til þess að sinna kafbátaeftirliti. „Það er til skoð- unar hvað það var sem þarna gerð- ist,“ segir Ásgeir. Reykur kom upp í kafbátaeftirlitsvél Ýmis atriði geta orðið til þess að íbúar sveitarfélags vilja ekki sameiningu við nágranna. Hér verður aðeins eitt atriði nefnt, það er eignarhald á jörðum og þar með einhver stjórn á því hvernig þær nýtast til þróunar samfélagsins. Hugsanlegt er að slíkt mál verði til þess að koma í veg fyrir sameiningu Svalbarðshrepps og Langanesbyggðar. Samhliða ósk um óformlegar viðræður við Langanesbyggð ákvað sveitarstjórn Svalbarðshrepps að undirbúa stofnun sjálfseignarstofn- unar utan um þær eignir sem ekki eiga að tilheyra sveitarfélaginu heldur íbúasamfélagi við Þistilfjörð. Þar mun átt við þrjár laxveiðijarðir sem hreppurinn hefur lengi átt. Umræður urðu um þetta á íbúafundi um sam- einingarviðræður og kemur fram í fundargerð að þær hafi endað á þeirri skoðun að búa þyrfti þannig um hnútana að jarðirnar yrðu áfram í eigu byggðarlagsins, í hvað svo sem arðurinn yrði notaður. Arðurinn mun vera eitthvað á annað tug milljóna á ári og hefur runnið í sveitarsjóð. Eitthvað stendur þetta skilyrði í sveitarstjórn Langanesbyggðar því þegar hún tók fyrir ósk Svalbarðshrepps um óformlegar viðræður um sameiningu var bókað að ákvörðun um formlegar viðræður verði því að- eins tekin að fullnægjandi upplýsingar liggi frammi um tilgang og mark- mið með stofnun sjálfseignarfélags um eignir Svalbarðshrepps. Beiðni þess efnis var afhent sveitarstjórn Svalbarðshrepps en svar hefur ekki borist. helgi@mbl.is Vilja eiga jarðirnar áfram SVALBARÐSHREPPUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.