Morgunblaðið - 29.03.2021, Page 8

Morgunblaðið - 29.03.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann. Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið HÁTT HITAÞOL Þórarinn Hjaltason, samgöngu-verkfræðingur og talsmaður hópsins Áhugafólks um samgöngur fyrir alla, fjallaði um samgöngu- sáttmála og borgar- línu í grein í Morgunblaðinu á laugardag. Þar benti hann á að við blasi að „borgar- línan í óbreyttri mynd er ekki þjóðhagslega hag- kvæm og því full ástæða til að skoða fýsileika ódýrara hraðvagnakerf- is.“ - - - Þetta ódýrara hraðvagnakerfikallar hann BRT-Lite og það á ekki að taka akreinar frá annarri umferð heldur verði gerðar nýjar akreinar þar sem því verði við kom- ið. Og Þórarinn segir að kostnaður við BRT-Lite kerfið yrði um 20 milljarðar króna, eða um 80 millj- örðum króna ódýrara en borgar- línan en gerði nánast sama gagn, auk þess að þvælast ekki fyrir ann- arri umferð. - - - Þórarinn nefnir að slík kerfi séuþekkt í bílaborgum í Norður- Ameríku og tekur dæmi af borginni Saskatoon í Kanada, „en þar er fyrirhugað að byggja 38 km BRT- Lite-kerfi á tímabilinu 2022-2025. Einungis 3,5 km verða með sérrými. Áætlaður stofnkostnaður er um 120 milljónir kanadadollara, eða um 12,5 milljarðar ISK +/- 25%.“ - - - Hvernig stendur á því að hér álandi er ekki skoðað í fullri al- vöru að taka upp almennings- samgöngur sem kosta 80% minna en borgarlínan en gera nánast það sama? - - - Getur verið að Íslendingar séuorðnir svona ríkir eða er eitt- hvað annað og verra sem veldur þessu? Þórarinn Hjaltason Vill einhver spara 80 milljarða? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á dögunum tillögu borgarráðsfulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna um að verja 500 milljónum króna í endurgerð og lag- færingar á 18 leik- og grunnskólalóð- um víðsvegar um borgina. Leik- skólalóðir sem verða endurgerðar eru Hálsaskógur, Klambrar, Mána- garður og Vesturborg. Leikskólalóð- ir sem fara í endurbætur og átaks- verkefni eru Dalskóli, Fífuborg, Klettaborg, Langholt-Sunnuborg, Laugasól-Lækjarborg, Lyngheimar, Nes-Hamar, Sunnufold-Frosti og Sunnufold-Logi. Lóðin við Breiðholtsskóla verður endurgerð og átaksverkefni fara fram við Engjaskóla, Melaskóla, Sel- ásskóla og Víkurskóla. Áhersla verð- ur lögð á að taka mið af algildri hönn- un við val á leiktækjum og hönnun svæðanna. Þá er sú hugmynd einnig lögð fram að leita til barna í viðkom- andi skólum um hugmyndir á út- færslu skólalóðanna. Borgarráð samþykkti einnig að verja um 120 milljónum króna í end- urgerð á sjö opnum leiksvæðum í borginni. Þau leiksvæði sem verða endurgerð eru Víðihlíð, Grænahlíð, Ljósheimar, Vesturás, Þverás, Deildarás og Kleifarvegur. sonja@m- bl.is 500 milljónir í skólalóðir í sumar - Fjórar leikskólalóðir endurgerðar - 120 milljónir króna í opin leiksvæði Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Endurbætt Lóðin við leikskólann Ægisborg var tekin í gegn í fyrra. Alls hlutu 206 verkefni styrk úr Ný- sköpunarsjóði námsmanna árið 2021. Í heildina var 311 milljónum úthlutað í verkefnin en 351 nemandi hlaut styrk úr sjóðnum í alls 1.037 mann- mánuði. Sjóðnum bárust alls 642 umsóknir fyrir 950 háskólanema og árangurs- hlutfall miðað við fjölda umsókna og veitta styrki er því 32%. Í ár eru verkefnin eru eins fjöl- breytt og þau eru mörg en verkefnið Is there a large ant supercolony un- der Reykjavík? eða á íslensku Er of- urstórt maurabú undir Reykjavík? hlaut 1,8 milljónir í styrk. Þá hlaut Útgáfufélagið Stundin styrk til tveggja verkefna. Annars vegar hlaut verkefnið Myndræn miðl- un um umhverfismál fyrir ung börn styrk upp á 2,7 milljónir fyrir þrjá nemendur og hins vegar verkefnið Ósýnileiki kvenna í grafískri hönnun á Íslandi 900 þúsund krónur í styrk fyrir einn nemanda. Innan úthlutunarreglna sjóðsins rúmast fjölbreytt verkefni að sögn Kolbrúnar Bergmundardóttur, sér- fræðings hjá Rannís. Miðlun verkefn- anna getur meðal annars verið mjög fjölbreytt, allt frá ritrýndri fræða- grein til gjörnings eða hlaðvarps- þátta. Kolbrún segir að einnig sé sér- staklega litið til þess ef verkefni leiða saman fjölbreyttan hóp frá mismun- andi fræðasviðum. Verkefnið MOM air áhrifin hlaut til að mynda styrk upp á 3,6 milljónir króna. Verkefnið fjallar um gjörning listamannsins Odds Eysteins Frið- rikssonar á síðasta ári þegar hann þóttist stofna flugfélagið MOM air. Í verkefninu verða áhrif gjörningsins á almenning, áhrifavalda og fagfólks í flugiðnaðinum könnuð. sonja@mbl.is 351 nemandi hlaut styrk frá Rannís - 32% umsækjenda hlutu styrk - Fjöl- breytt verkefni Ljósmynd/Oddur Eysteinn Friðriksson Gjörningur Verkefni um listgjörn- inginn Mom air hlaut styrk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.