Morgunblaðið - 29.03.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021
HLÍÐASMÁRI 19, 2.HÆÐ · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 534 9600
Hljóðnemi í hlustinni notar hæfni eyrans til að safna upplýsingum sem heilinn þarf til að skilja hljóðin.
Auðveldara að taka þátt í samræðum í virku hljóðumhverfi.
Betri talgreining um leið og bakgrunnshávaði er lágmarkaður í háværu hljóðumhverfi.
Fjarþjónusta. Fáðu heyrnartækin þín stillt án þess að mæta á staðinn.
NÝ TÆKNI!
NÝ BYLTINGARKENND HEYRNARTÆKI
MEÐ ÞREMUR HLJÓÐNEMUM
FAGLEG ÞJÓNUSTA HJÁ LÖGGILTUM HEYRNARFRÆÐINGI
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Líklega hafa fá skip strandað á verri
stað en risaskipið MV Ever Given, sem
strandaði á þriðjudaginn í Súez-
skurðinum, einni fjölförnustu sigl-
ingaleið heims og stíflaði skurðinn fyrir
allri umferð í báðar áttir. Reynt var um
helgina að losa skipið af strandstað, og
bauðst Bandaríkjaher til þess á föstu-
daginn að senda sérfræðinga sína til að
losa skipið ef ekkert gengi. Þá reyndu
minnst 14 dráttarbátar að toga skipið
aftur á flot á laugardaginn.
Þörfin er enda brýn, þar sem nú
þegar bíða rúmlega 300 skip við sitt-
hvorn enda skurðarins, og er farm-
urinn sem nú situr fastur metinn í
milljörðum bandaríkjadala.
Frá því að framkvæmdum við Súez--
skurðinn lauk árið 1869 hefur hann
verið einn mikilvægasti hlekkurinn í
sjóflutningum í heiminum. Um 12% af
öllum viðskiptum heimsins fara í gegn-
um skurðinn, sem styttir siglingaleið-
ina milli Evrópu og Asíu um tæpa
9.000 kílómetra.
Þá styttir skurðurinn flutningatím-
ann um tvær vikur eða svo, sem getur
skipt miklu máli, til dæmis í flutningum
á vörum sem geta runnið út eða eyði-
lagst. Því fara um 15 milljónir gáma á
hverju ári um Súez-skurðinn, en það
eru um 30% af öllum gámum sem not-
aðir eru í flutningum.
Umferð um skurðinn hefur stöðvast
eða verið stöðvuð einungis fimm sinn-
um á þeim 152 árum sem hann hefur
verið opinn, en skurðurinn var m.a.
lokaður í kjölfar þjóðnýtingar hans árið
1956, sem aftur leiddi af sér Súez-
deiluna, og svo var skurðurinn lokaður
árin 1967-1975 í kjölfar sex daga stríðs
Ísraels gegn Egyptalandi og fleiri
Arabaríkjum.
Ekki víst um orsakir strandsins
MV Ever Given siglir undir pan-
ömskum hentifána, en það tilheyrir
skipafyrirtækinu Evergreen sem starf-
ar frá eyjunni Taívan. Það er 400 metra
langt, eða sem nemur rúmum fimm
Hallgrímskirkjuturnum, og 59 metra
breitt. Þá vegur skipið 224.000 tonn og
ber um 20.000 gáma í hverri ferð. Til
samanburðar eru ný skip Eimskips,
Brúarfoss og Dettifoss, 2.150 gámaein-
ingar að stærð, 180 metra löng og 31
metra breið. Þetta þýðir að risaskipið
er um tvöfalt lengra og breiðara en
þessi skip og ber nær tífaldan gáma-
fjölda þeirra.
Í fyrstu var talið að sandstormur
hefði byrgt skipstjóranum sýn og ýtt
skipinu af leið. Sú skýring þótti senni-
leg, þar sem áður hefur verið varað
við því að stormasamt geti verið við
skurðinn, og um leið að lítið megi út
af bera þegar risaskipi af þessu tagi
sé stýrt í gegnum hann.
Vegna stærðar skipsins er við-
bragðstíminn sem þarf til að rétta
kúrsinn mjög skammur, og er þetta
ekki í fyrsta sinn sem risaskip af
þessu tagi strandar í skurðinum.
Osama Rabie, stjórnarformaður
stofnunarinnar sem rekur skurðinn,
sagði hins vegar á blaðamannafundi á
laugardaginn, að talið væri mögulegt
að mannleg mistök hefðu átt meiri
þátt en veðurskilyrði þegar strandið
varð. Þá væri stefni skipsins farið að
losna og skrúfa þess virkaði.
Hver dagur sem líður er dýr
Það er skiljanlegt, því að áætlað er
að á hverjum degi fari verðmæti upp á
3 til 9,5 milljarða bandaríkjadala í
gegnum skurðinn, eða sem nemur um
380 til 1.200 milljörðum íslenskra
króna.
Þeir sérfræðingar sem AFP-
fréttastofan ræddi við sögðu hins veg-
ar ómögulegt að setja verðmiða á
tjónið sem myndi fylgja strandinu,
þar sem það hefði áhrif á gríðarlegan
fjölda fyrirtækja, bæði beint og
óbeint. Þá muni skaðinn að einhverju
leyti ráðast af birgðastöðu viðkom-
andi fyrirtækis, og því hversu lengi
það mun taka að losa skipið. Óttast er
að það ferli gæti tekið margar vikur,
því ef ekki næst að draga það á flot,
muni þurfa að létta á því með því að
afferma það. Það kallar á krana, sem
getur náð allt að 60 metra hæð, og
slíkt ferli gæti tekið margar vikur.
Sú töf hefur þegar rekið nokkur
flutningafyrirtæki, þar á meðal Ma-
ersk og Hapaq-Lloyd, til að íhuga al-
varlega að senda flutningaskip sín
lengri leiðina, en líkt og fyrr sagði
myndi það bæta um tveimur vikum
við siglingatíma þeirra. Það þýðir aft-
ur að skipin eyða meiri olíu við flutn-
ingana, og gæti það þýtt um 15-20%
hærri sendingarkostnað á vörum.
Segja má að strandið komi á einum
versta tíma sem mögulegt var, þar
sem kórónuveirufaraldurinn leikur að
sjálfsögðu hlutverk. Vegna faraldurs-
ins hafa kaup á vörum aukist mjög og
sett mikinn þrýsting á birgðakeðjur
heims. Allar tafir á sendingum, að
ekki sé talað um ef skurðurinn er stífl-
aður lengi, munu því hafa jafnvel enn
meiri áhrif en í venjulegu árferði.
Lengri leiðin um Góðrarvonarhöfða
Rotterdam
Súez-skurðurinn
Stíflaður af
MV Ever Given
Siglingaleiðinmilli Sjanghaí og Rotterdam er um 6.000 km umSúez-skurðinn og styttir farartímann um tvær vikur
Sjanghaí
Singapúr
Góðrarvonarhöfði
INDLANDSHAF
KYRRAHAF
ATLANTSHAF
1 000 km
Miðjarðarhaf
Á röngum stað, á röngum tíma
- Strand risaskipsins MV Ever Given getur dregið langan dilk á eftir sér - Vörur upp á tugmillj-
arða kr. sitja fastar - Íhuga að senda skip sín suður fyrir Afríku - Áhrifin meiri vegna faraldurs
AFP
Stífla Reynst hefur hægara sagt en gert að losa MV Ever Given, en það er á
lengd við rúmlega fimm Hallgrímskirkjur. Á meðan bíða önnur skip.
Yfirmenn hermála hjá 12 löndum,
þar á meðal Bandaríkjunum, Bret-
landi, Japan og Ástralíu, sendu frá
sér sameiginlega yfirlýsingu í gær,
sunnudag, þar sem þeir fordæmdu
aðgerðir herforingjastjórnarinnar í
Mjanmar. Að minnsta kosti 107
týndu lífi í aðgerðum stjórnarinnar á
laugardag, þar af nokkur börn, sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Samein-
uðu þjóðanna. Gert er ráð fyrir að sú
tala muni hækka.
Laugardagurinn var sá blóðugasti
síðan mótmælin í Mjanmar hófust en
að minnsta kosti 423 hafa verið drep-
in síðan þau hófust.
„Við hvetjum herforingjastjórnina
í Mjanmar til að hætta að beita of-
beldi og reyna frekar að koma aftur
á þeirri virðingu og þeim trúverðug-
leika sem hún hefur misst með að-
gerðum sínum,“ sagði í sameigin-
legri yfirlýsingu ráðamannanna.
Mikill órói hefur ríkt í Mjanmar
síðan herforingjastjórnin framdi
valdarán þann 1. febrúar og handtók
fyrrverandi leiðtoga landsins, Aung
San Suu Kyi. Valdaráninu hefur ver-
ið mótmælt harðlega af íbúum lands-
ins sem krefjast þess að lýðræði
verði komið aftur á. Þrátt fyrir gríð-
arlegt mannfall mótmælenda hættu
þeir sér aftur út á götur borganna
Dawei, Bago, Myingyan og Monywa
á sunnudag.
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra hefur einnig gagnrýnt
herforingjastjórnina á Twitter-síðu
sinni á laugardag. „Mér ofbýður
grimmdarverkin sem voru framin í
Mjanmar í dag, þar sem óvopnaður
almenningur, jafnvel börn, voru
myrt,“ skrifaði Guðlaugur Þór og
bætti við að stöðva yrði ofbeldi gegn
friðsömum mótmælendum.
Fordæma blóð-
baðið í Mjanmar
- Yfir 100 týndu lífinu á laugardag
AFP
Blóðbað Að minnsta kosti 107 létu
lífið í Mjanmar á laugardag.