Morgunblaðið - 29.03.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021
60 ára Kalman ólst
upp á Útgörðum í Hvol-
hreppi, Rang., en býr í
Reykjavík og er auglýs-
ingateiknari frá Mynd-
lista- og handíðaskól-
anum. Kalman er
sjálfstætt starfandi
grafískur hönnuður en vann í 25 ár hjá
Rúv. Kalman er einn af stofnendum
Myndstefs og sat í stjórn Bókagerðar-
manna til fjölda ára.
Maki: Fjóla Kristín Árnadóttir, f. 1956,
kennari í Tækniskólanum.
Sonur: Alexander, f. 1991.
Foreldrar: Joam le Sage de Fontenay, f.
1929, d. 1987, bústjóri á Stórólfsvalla-
búinu, og Ólöf Kristófersdóttir, f. 1937,
kennari. Hún er búsett á Útgörðum.
Kalman le Sage
de Fontenay
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það er engin lausn að stinga
höfðinu í sandinn því erfiðleikarnir hverfa
ekkert við það. Forðastu að dæma aðra.
20. apríl - 20. maí +
Naut Sjálfsöryggi þitt hjálpar þér til að
vinna fólk á þitt band. Gættu þess að
falla ekki í þá freistni að þykjast vita allt.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er eðlilegt að vera smá
taugatrekktur. Andaðu bara djúpt og
teldu upp að tíu. Allir sem eru í þínum
innsta hring eru þar vegna þess að þeir
vilja það.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Með hjálp góðra vina tekst þér að
sigla þínum málum í höfn. Það er komið
að viðhaldi heima fyrir. Byrjaðu á ein-
hverju.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú þarft að hrista af þér slenið,
bretta upp ermarnar og taka þinn þátt í
því sem gera þarf. Símtal í dag á eftir að
koma þér ánægjulega á óvart.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Einmitt þegar þú ert alls ekki í
skapi fyrir krefjandi manneskju stingur
hún upp kollinum. Mundu að gera líka
kröfur til annarra, ekki bara þín.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú ættir að láta það eftir þér að
kaupa eitthvað sem getur bætt heilsu
þína til lengri tíma litið. Látið ekki ykkur
sjálf sitja á hakanum.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú býrð yfir ýmsum hæfi-
leikum sem nýtast þér þegar á reynir.
Settu í þig kraft og láttu svo verkin tala.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Hugur þinn er dálítið í fortíð-
inni núna og líklegt að þrá eftir liðinni tíð
grípi þig annað veifið. Mundu að það
finna allir til minnimáttarkenndar svona af
og til.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Vertu opinn fyrir hugmyndum
sem geta haft jákvæð áhrif á starfsframa
þinn. Börnin þín koma þér á óvart.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Að vera á öndverðum meiði
eykur spennuna í sambandinu. Peninga-
málin líta vel út, ekki klúðra þeim með
vanhugsuðum kaupum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þér er nauðsynlegt að brydda upp
á einhverju nýju til þess að gefa lífinu lit.
Fólk ber virðingu fyrir þér, því þú stendur
alltaf við allt sem þú lofar.
formaður í stjórn auk þess að sinna
nefndarstörfum hjá Landsbjörgu.
„Ég er föst í hlutverki sunnudaga-
skólakonunnar og nýt þess að hitta
litlu vini mína í kirkjunni yfir vetr-
armánuðina, er í sóknarnefnd og sé
um alla almenna umhirðu og slátt á
um túristum að koma til mín. Eftir
sumarið var ég með lista yfir það
sem ég þurfti að vinna og senda frá
mér.“
Anna hefur verið mjög virk í
Slysavarnadeildinni Hafdísi á Fá-
skrúðsfirði og setið þar sem vara-
A
nna Ólafsdóttir er fædd
29. mars 1971 í Reykja-
vík og bjó þar fyrstu
fjögur ár ævinnar. Hún
flutti þá á Hvolsvöll og
bjó þar næstu fimm árin. Níu ára
gömul flutti hún með fjölskyldu
sinni til Patreksfjarðar þar sem hún
bjó þar til hún flutti að heiman.
Grunskólaganga Önnu fór fram á
Hvolsvelli, Patreksfirði og í Héraðs-
skólanum í Reykjanesi við Ísafjarð-
ardjúp. Hún fór 17.ára sem barn-
fóstra til Noregs og var þar í tvö ár,
lærði blómaskreytingar í Garð-
yrkjuskólanum að Reykjum í Ölfusi,
flutti aftur til Noregs og vann þar í
blómabúð í níu ár.
Anna flutti til Íslands 2004. „Ári
seinna var ég lokkuð austur á firði af
núverandi eiginmanni, vann á leik-
skólanum á Fáskrúðsfirði til að
byrja með en svo við verslunarstörf
á Reyðarfirði. Ég hef titlað mig sem
húsmóður frá því að húsið fylltist af
börnum árið 2011.“
Anna hefur rekið vinnustofu í húsi
sem heitir Hruni í rúm sjö ár, en
verkstæðið heitir Frú Anna. „Þar
sauma ég og dunda mér hverja lausa
stund, endurnýti gamlan útsaum og
gömul efni, geri við vinnugalla fyrir
fiskvinnslu staðarins, stytti buxur
og falda gardínur fyrir fólkið í bæn-
um. Mér finnst öll endurnýting rosa-
lega skemmtileg, hvort sem það eru
gamlir diskar sem breytast í smá-
kökufat, gömul púðaborð sem breyt-
ast í tösku eða hvað það nú er. Svo
er ég búin að gera í nokkur ár
tuskudúkkur sem eru kanínur og
þær seljast alltaf upp strax. Ég hef
gaman af öllu sem varðar blóma-
skreytingar og elska að vera í eld-
húsinu. Ég hef alltaf haft gaman af
handavinnu og að dunda mér, nema
að púsla. Mér finnst það algjörlega
tilgangslaust að gera eitthvað sem
þú þarft að pakka saman aftur.“
Verkstæði Önnu hefur spurst út
víða og er fólk í nærliggjandi bæjar-
félögum duglegt að heimsækja
hana. „Ef ég set síðan eitthvað á
Fésbókina sem ég hef verið að gera
þá er það farið um leið. Það er rosa
gaman og síðasta sumar var æðis-
legt, en þá var endalaust af íslensk-
kirkjugörðum sóknarinnar,“ en þeir
eru tveir, í bænum sjálfum og svo á
Kolfreyjustað. „Ég hef mína
barnatrú, eins og aðrir, og er dugleg
að halda henni við.
Að vera stjúpmóðir, fósturmóðir
og húsmóðir hefur verið mitt helsta
Anna Ólafsdóttir, húsmóðir og saumakona – 50 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Jens, Kifah, Júlíus, Elísa Huld og Anna um jólin 2014.
Öll endurnýting er skemmtileg
Kanínur Meðal þess sem má finna hjá Önnu í Hruna. Afmælisbarnið Frú Anna.
40 ára Halldór er
Reykvíkingur, ólst upp
í Vesturbænum en býr
í Hvassaleiti. Hann er
viðskiptafræðingur frá
Háskóla Íslands og er
með meistaragráðu í
reikningshaldi og
endurskoðun frá HÍ. Halldór er fram-
kvæmdastjóri Atlas fjármála.
Maki: Hildigunnur Helgasdóttir, f. 1983,
vinnur á verlferðarsviði Reykjavíkur-
borgar.
Börn: Hekla Margrét 2006 og Helgi
2012.
Foreldrar: Úlrik Ólason, f. 1952, d. 2006,
organisti, og Margrét Árný Halldórs-
dóttir, f. 1951, hjúkrunarfræðingur og
kennari. Hún er búsett í Kópavogi.
Halldór Óli
Úlriksson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is