Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 2
Sjórinn kælir á góðviðrisdögum
Þegar hitastigið er í líkingu við það sem Íslendingar hafa fengið að kynnast undanfarið er gott að kæla sig með söltum sundspretti. Undanfarnir dagar hafa
verið góðir en í gær greindi bandaríska haf- og loftslagsstofnunin frá að júlí hafi verið heitasti mánuður á heimsvísu frá upphafi mælinga. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
svavamarin@frettabladid.is
ELDGOS Far þegar Icelandair á leið
frá Evrópu hafa margir hverjir
verið svo heppnir að fá út sýnis flug
yfir gos stöðvarnar í Geldinga dölum
og sjá hraunið og eld tungurnar af
himnum ofan. Ás dís Ýr Péturs dóttir,
upp lýsinga full trúi Icelandair, segir
þetta vera gert ef veður leyfi.
„Við höfum verið að gera þetta
til að gefa fólki kost á að sjá gosið
úr lofti og það mælist of boðs lega
vel fyrir. Far þegum er til kynnt um
þetta þegar á flugi stendur, en það er
metið hverju sinni og í sam ráði við
Isavia og flug mála stjórn á svæðinu.“
Einar Dag bjarts son, flug stjóri hjá
Icelandair, segir farþega glaða.
„Við erum að gera þetta fyrir far
þegana þegar við fljúgum yfir gosið
og látum vita hvorum megin úr vél
inni það sjáist. Þetta vekur gríðarlega
lukku. Við gerum þetta rétt og förum
varlega á samt því að fara ekki niður
fyrir þrjú þúsund fet.“
nánar á frettabladid.is
Farþegar Icelandair hafa fengið
útsýnisflug yfir eldgosið í aðflugi
Eldgosið sést vel úr lofti.
MYND/AÐSEND
Guðni Ágústsson leiddi 50
manna hóp sem gapti þegar
frændur okkar í Færeyjum
drápu á þriðja tug hvala.
ser@frettabladid.is
FÆREYJAR Guðni Ágústsson, fyrr
verandi landbúnaðarráðherra og
formaður Framsóknarflokksins, fór
fyrir 50 manna hópi íslenskra ferða
langa í Færeyjum í vikunni sem er
að líða – og má heita, að hans sögn
að mannskapurinn hafi dottið í
lukkupottinn þegar hann frétti
óvænt af því að verið væri að smala
2030 grindhvölum inn Skálafjörð,
rétt sunnan við bæinn Rúnavík.
Rútu hópsins var snarlega snúið
við og haldið niður að bryggju, þar
sem hópur Færeyinga var mættur
til að taka á móti hvölunum og
landa þeim með viðeigandi hætti.
Ákveðnar reglur gilda um meðferð
dýranna eftir að þeim hefur verið
slátrað og urðu Íslendingarnir á
kajanum vitni að því þegar vörpu
legur hópur atvinnumanna stjórn
aði þeim aðgerðum af reynslunnar
kúnst.
Meðal þess sem þarf að sinna,
þegar dýrin eru tekin á land, er að
merkja þau eftir fjölda skinna sem
af þeim hljótast, áður en skurðurinn
hefst með þar til bærum amboðum,
en að því loknu er kjötið og spikið
skolað með sverum og kraftmiklum
vatnsslöngum – og gengur þá mikið
á. Í þessu tilviki var verkefnið líka
ærið, því alls var 24 dýrum slátrað
við bryggjuna í Skálafirði þennan
dag.
Guðni stóð þarna á hafnarbakk
anum í Skálafirði jafn gapandi og
hinir íslensku ferðalangarnir, öllu
vanari því að eigin sögn að vera
viðstaddur smalamennsku í návígi
við fjórfætta sauðkindina en öllu
stærri skepnur hafdjúpanna. Guðna
þótti mikið til koma eins og öðrum í
hópnum, einkum hversu faglega var
að verki staðið.
Grindhvalirnir tilheyra minnstu
tegundum hvala og eru 710 metra
langir. Grindhvalaveiðar hafa verið
eins konar þjóðaríþrótt Færeyinga
um langa hríð og má heita að allir
Færeyingar, allt frá blautu barns
beini að öldruðum eyjaskeggjum,
þekki til þessara tilburða, sem leika
lykilþætti í ímynd og sögu færeysku
þjóðarinnar.
„Það væri miklu auðveldara að
selja aðgang að þessu frekar en að
upplifa Norðurljósin,“ segir Sigurð
ur K. Kolbeinsson hjá Ferðaskrif
stofu eldri borgara, en þessi óvænta
uppákoma varð að hápunkti vel
heppnaðrar ferðar eldri borgara
til Færeyja að þessu sinni, þeirrar
fjórðu á þessu ári, en þess má geta
að engin smit hafa mælst í Fær
eyjum undanfarna daga og aðeins
eru sex smitaðir á öllum eyjunum
og enginn inniliggjandi á spítala. ■
Urðu vitni að slátrun á
grindhvölum í Færeyjum
Guðna þótti mikið til koma þegar hann stóð á hafnarbakkanum. MYND/AÐSEND
Það væri miklu auð-
veldara að selja aðgang
að þessu frekar en að
upplifa Norðurljósin.
Sigurður K. Kolbeinsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu
eldri borgara.
Guðjón, forstjóri Reita, ásamt Degi.
kristinnpall@frettabladid.is
SKIPULAGSMÁL Geðhjálp segir
óánægju fasteignafélagsins Reita
vegna hugmynda um smáhýsi í
Laugardalnum litast af fordómum.
Um sé að ræða sorglega og ósmekk
lega tilraun til að tengja geðrænar
áskoranir við fasteignamat og ýtt
sé undir fordóma um að sumt fólk
sé hættulegra en annað.
Reitir og Reykjavíkurborg sömdu
í vor um byggingu um 440 íbúða við
Orkuhúsið. Áform borgarinnar um
byggingu fimm smáhýsa í Laugar
dalnum fyrir skjólstæðinga vel
ferðarsviðs eru á borði skipulagsyfir
valda þessa dagana. Í erindi Reita til
borgarinnar er lýst yfir „alvarlegum
athugasemdum“ við tillöguna.
Geðhjálp bendir á að það sé ekk
ert sem bendi til þess að fólk með
geðrænar áskoranir áreiti börn eða
aðra frekar en aðrir. Því óskar Geð
hjálp þess að íslenskt samfélag haldi
áfram að auka tillitssemi, umburðar
lyndi, samkennd og kærleika í garð
fjölbreytilegs samfélags. ■
Athugasemdirnar
litaðar fordómum
Námskeið fyrir matsmenn
Lögmannafélag Íslands og dómstólasýslan standa fyrir námskeiði fyrir
dómkvadda matsmenn. Farið verður yfir hlutverk matsmanna og starf
þeirra frá dómkvaðningu og þar til þeir skila matsgerð og/eða mæta
fyrir dóm. Þá verður farið yfir ákvæði einkamálalaga sem varða störf
matsmanna og samningu matsgerða, undirbúning matsfunda,
uppsetningu matsgerða og störf á vettvangi.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa verið matsmenn eða
vilja gefa kost á sér sem matsmenn fyrir dómi.
Handbók með ítarlegum leiðbeiningum fyrir dómkvadda matsmenn
er innifalin í námskeiðsgjaldi.
Kennarar: Viðar Lúðvíksson lögmaður hjá Landslögum og Ragnar
Ómarsson byggingafræðingur á Verkfræðistofunni Verkís, formaður
Matsmannafélags Íslands.
Staður: Kennslustofa Lögmannafélags Íslands, Álftamýri 9,
108 Reykjavík og Héraðsdómur Reykjavíkur.
Tími: Alls 7 klst. Miðvikudagur 1. september kl. 13.00-16.00
og fimmtudagur 2. september kl. 12.30-16.30
Verð: kr. 47.000,-
Nánari upplýsingar og skráning á www.lmfi.is
2 Fréttir 14. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ