Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 8

Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 8
Við viljum fá að sjá um svæðið því við treyst- um ekki lengur Umhverfisstofnun. Ólöf Hallgríms- dóttir, land- eigandi. Landeigendur eru komnir með nóg af aðgerðarleysi Umhverfis stofnunar við Hver­ fjall í Mývatnssveit og vilja taka svæðið yfir. Salernishús stóð lokað í hartnær 18 mán­ uði, en er komið aftur í gagnið að frumkvæði landeigenda. benediktboas@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Eftir að hafa verið lokað í 18 mánuði rennur nú vatn loks aftur um salernisaðstöðu við náttúruperluna Hverfjall í Mývatns­ sveit. Landeigendur tóku til sinna ráða eftir að hafa beðið eftir aðgerð­ um Umhverfisstofnunar. Stefnt er á að bora nýja borholu í lok mánaðar­ ins en sú fyrri fylltist af sandi – eins og spáð hafði verið. Hverfjall hefur verið friðlýst í ára­ tug og árið 2016 var opnuð salernis­ aðstaða, útbúin nýjasta hreinsi­ búnaði. Fyrir Covid­faraldurinn var talað um að 100 þúsund manns kæmu árlega að fjallinu. Til að fá rennandi vatn í salernis­ aðstöðuna var ákveðið að bora bor­ holu lágt í landslaginu. Heimamenn bentu á að þegar snjóa leysti myndi holan fyllast af sandi og eyðileggja þannig lagnir og jafnvel blöndunar­ tæki. Á það var ekki hlustað, en eftir snjóþungan síðasta vetur gerðist það sem heimamenn spáðu fyrir um. Umhverfisstofnun reyndi að hreinsa dælur og annað í húsinu en allt kom fyrir ekki og var því ein­ faldlega skellt í lás. Í ár hefur verið stöðugur straumur af erlendum ferðamönnum og horfði blaðamað­ ur Fréttablaðsins á þegar tvær rútur komu með farþega í spreng  sem komu að lokuðum dyrum. Þurftu þeir því að kúldrast út í hraun og gera þarfir sínar þar. Ólöf Hallgrímsdóttir, einn land­ eigenda, viðurkennir að vera komin með nóg af hægagangi stjórnsýsl­ unnar og ákvörðunarfælni hennar. „Þetta gengur ekki lengur. Hægri hendin veit ekkert hvað sú vinstri er að gera og við viljum fá að sjá um svæðið því við treystum ekki lengur Umhverfisstofnun. Hún hefur ekk­ ert verið að sinna hlutverki sínu við fjallið,“ segir Ólöf. Hún bendir á að landeigendur hafi einfaldlega fengið nóg og tekið málið í sínar hendur. Útvegað vatns­ tank sem yfirborðsvatni er dælt í og þannig sé hægt að halda salernishús­ inu opnu – í bili að minnsta kosti. Þá hafi landeigendur meira að segja keypt nokkra varahluti til að halda húsinu gangandi. „Við getum ekki horft upp á þetta lengur. Við erum búin að vera ýta á stofnunina því við viljum sjá um svæðið og ég er bjartsýn að það gerist um áramótin,“ segir Ólöf. Starfsmað­ ur Umhverfisstofnunar í Mývatns­ sveit segir að stefnt sé á að bora nýja holu í lok mánaðarins. Von sé að hún gangi betur en síðasta hola. n Loks hægt að sturta niður á ný við perluna Hverfjall Frístandandi kömrum var komið fyrir í sumar framan við óvirkt salernishús Umhverfisstofnunar. FRÉTTABLAÐIÐ/BENEDIKT BÓAS Landeigendur vilja taka við hinu friðlýsta svæði af Umhverfisstofnun. Ferða- menn hafa gert þarfir sínar í sumar við nýja salernishúsið sem var opnað 2016. Kosningar til Alþingis Kosningar til Alþings fara fram 25. september 2021 og getur kosning utan kjörfundar hafist föstudaginn 13. ágúst 2021. Innanlands fer kosning utan kjörfundar fram hjá sýslumönnum um allt land, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Þá getur sýslumaður einnig ákveðið að atkvæðagreiðsla fari fram á sérstökum kjörstað í umdæminu. Nánari upplýsingar verður að finna á vefsvæði sýslumanna syslumenn.is. Erlendis fer kosning utan kjörfundar fram á skrifstofu sendiráðs, í sendiræðisskrifstofu eða hjá kjörræðismanni samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur þó ákveðið að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fari fram á öðrum stöðum erlendis. Kjósendum er bent á að hafa samband við sendiskrifstofur og/eða sendiherra sem hafa yfirlit yfir hvar unnt er að kjósa. Vegna þess ástands sem ríkir í heiminum vegna COVID-19 farsóttarinnar geta þau tilvik komið upp, vegna sóttvarnaráðstafana stjórnvalda á hverjum stað, að aðgengi kjósenda að kjörstöðum erlendis verði takmarkað. Dómsmálaráðuneytinu, 13. ágúst 2021 Afgreiðslutímar á www.kronan.is 3399 kr.pk. BBQ Picanha steik 450 g Úúú ... Grillaðu eins og BBQ kóngurinn! 2899 kr.pk. BBQ Skirt steik 400 g 999 kr.stk. BBQ Chimichurri 250 g arib@frettabladid.is COVID -19 K ínver jar þr ýstu á Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, WHO, að útiloka allar vangaveltur um að veiran sem veldur Covid­19 hafi átt uppruna sinn á rannsóknar­ stofu í Wuhan, í skýrslu WHO um uppruna veirunnar. Peter Emba rek, sem leiddi hóp WHO í Wuhan, sagði við dönsku stöðina TV2 að það væri „líkleg kenning“ að starfsmaður rann­ sóknarstofu hafi borið veiruna í menn eftir að hafa safnað sýnum úr leðurblökum. Nefndi hann sérstak­ lega stofu sem flutti í húsnæði nálægt matarmarkaði í lok árs 2019. n Rannsóknarstofa líklegur uppruni arib@frettabladid.is VÍSINDI Efnaskipti líkama fullorð­ inna einstaklinga haldast stöðug frá tvítugsaldri til sextugs, þá fer að hægja á þeim. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem birt var í vís­ indatímaritinu Science í gær. Þar kemur fram að efnaskipti eru hröðust í ungabörnum. Þau brenna hitaeiningum rúmlega helmingi hraðar en fullorðnir. Það hægist svo á efnaskiptunum um þrjú prósent á ári til tvítugs. Efnaskiptin haldast svo stöðug til sextugs, þá hægist á þeim um eitt prósent á ári. n Efnaskipti stöðug fram að sextugu Peter Ben Embarek, verk- efnastjóri hjá WHO. 8 Fréttir 14. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.