Fréttablaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 12
Öll tölfræði segir manni að Sancho eigi eftir að verða frábær hjá Manchester United. Elvar Geir Magnússon, ritstjóri fót- bolta.net. Það verður gaman að sjá hvernig Patson Daka mun pluma sig á stóra sviðinu. Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá Sím- anum Sport. Manchester City, Chelsea og Manchester United eiga þrjá dýrustu leikmennina sem keyptir hafa verið í félaga- skiptaglugganum í ensku úrvalsdeildinni í sumar. hjorvaro@frettabladid.is ENSKI BOLTINN Keppni í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla hófst í gær með leik nýliða Brentford og Arsenal. Félagaskiptamarkaðurinn hefur verið nokkuð rólegur í sumar en dýrustu félagaskiptin eru kaup Manchester City á Jack Grealish fyrir 100 milljónir punda, endurkoma Romelu Lukaku til Chelsea fyrir tæpar 100 milljónir punda og fjár- festing Manchester United á Jadon Sancho fyrir 73 milljónir punda. Auk þess að bæta framlínu sína bólstraði Manchester United varnar línu sína með því að tryggja sér þjónustu Raphael Varane. Liver- pool gerði slíkt hið sama með því að næla í Ibrahima Konate. Aston Villa eyddi svo hluta af kaupverðinu sem það fékk fyrir Grealish með því að festa kaup á Danny Ings. Félagaskipti Harry Kane frá Tottenham til Manchester City hafa legið í loftinu í allt sumar en svo virðist sem ekkert verði úr þeim í þessum félagaskiptaglugga. Fréttablaðið fékk Elvar Geir Magnússon, ritstjóra fótbolta.net og Tómas Þór Þórðarson, ritstjóra enska boltans hjá Sjónvarpi Símans, til þess að tína til þau félagaskipti sem þeir telja að muni reynast best á komandi keppnistímabili. Elvar Geir Magnússon nefnir fyrst til sögunnar Jadon Sancho til Manc- hester United. „Öll tölfræði segir manni að Sancho eigi eftir að verða frábær hjá United. Þess utan held ég að hann passi vel inn í stemninguna sem er í hópnum. Ungur leikmaður sem vill komast alla leið á toppinn. Mögulegt að hann þurfi nokkrar vikur til að trekkja sig í gang hjá nýju liði en verði svo funheitur.“ Næst á listanum hjá Elvari Geir eru vistaskipti Jack Grealish til Manchester City. „Það er ekki að ástæðulausu sem Manchester City borgar metfé fyrir þennan leik- mann. Þetta eru kaup sem eiga ekki að geta klikkað. Hjá Aston Villa lögðu mótherj- arnir alla áherslu á að loka á hann en hjá City er hann ekki lengur stór fiskur í lítilli tjörn. Passar vel inn í f ljótandi Pep fótboltann og þeir ljósbláu munu fá urmul af auka- spyrnum.“ Um leið er Elvar spenntur að sjá áhrif danska miðvarðarins Janniks Vestergaard á varnarleik Leicester City. „Ég er gríðarlegur Vestergaard- maður. Hann er sterkur karakter, leiðtogi og með svakalegan skrokk. Ég held að hann muni stíga næsta skref hjá Leicester, mistökunum muni fækka og hann stimpli sig inn sem einn besti miðvörður deildar- innar.“ Elvar Geir telur svo að stuðnings- menn Arsenal eigi að vera spenntir fyrir komu Albert Sambi Lokonga til félagsins. „Lokonga hefur spilað fyrir öll yngri landslið Belgíu og verið valinn í A-landsliðið. Það er ekki tínt upp af götunni. Skrefið frá Anderlecht upp í ensku úrvalsdeildina er þó ansi stórt og spurning hversu langt aðlögunar- ferlið verður. En ég er spenntur fyrir þessum 21 árs leikmanni og tel að spurningin sé frekar hvort, heldur en hvenær, hann lætur almennilega til sín taka hjá Arsenal.“ Tómas Þór Þórðarson tekur í sama streng og Elvar Geir og er spenntur fyrir komu Sanchos til Manchester United. Þá telur Tómas Þór að Lukaku muni gera gott mót hjá Chelsea. Tómas Þór nefnir svo félagaskipti sambíska landsliðs- framherjans Patson Daka til Leic- ester City. „Daka kemur til Leicester City frá Red Bull Salzburg en hann skoraði 27 mörk í 28 deildarleikjum í austur- rísku efstu deildinni á síðustu leik- tíð. Það verður gaman að sjá hvernig Daka mun pluma sig á stóra svið- inu,” segir Tóma s. Njósnateymi Leicester City hefur síðustu ár verið naskt við að finna áður óþekkta demanta. Tómas Þór telur að Daka verði enn eitt dæmi góðrar vinnu hjá því teymi. n Nágrannar fengu hvorn sinn enska dáðadrenginn Miklar vonir eru bundnar við sóknartengiliðinn Jack Grealish hjá ríkjandi meisturum Man. City. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Sviðslistasjóður Styrkir til atvinnusviðslistahópa Sviðslistaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sviðslistasjóði fyrir leikárið 2022/23. Umsóknarfrestur rennur út 4. október 2021 kl. 15:00.* Umsóknum skal skilað rafrænt á www.rannis.is. Í umsókn er beðið um lýsingu á verki, verk- og tímaáætlun, fjárhagsáætlun og upplýsingar um þátttakendur og umsóknaraðila. Vakin er athygli á nýju formi fyrir fjárhagsáætlun sem skal fylgja umsókn. Fylgigögnum skal skila með rafrænni umsókn til Rannís. Umsókn atvinnusviðslistahópa getur einnig gilt sem umsókn í Launasjóð listamanna. Sviðslistasjóður starfar samkvæmt lögum um sviðslistir 2019 nr.165. Svör til umsækjenda berast í janúar 2022. Nánari upplýsingar veita Óskar Eggert Óskarsson og Ragnhildur Zoëga á skrifstofu Rannís, svidslistasjodur@rannis.is. *Ath. Sjóðir hjá Rannís loka kl. 15:00. Umsóknarfrestur 4. október kl. 15.00 ÍÞRÓTTIR 14. ágúst 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.