Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 19
felld á fundi fulltrúaráðs, í ljósi
þess að margir f lokksmenn hafi
viljað prófkjör, sem hafi alltaf verið
meginreglan hjá f lokknum. Allir
sem af þeim fundi gengu hafi því
verið fullvissir um að prófkjör væri
þar með ákveðið.
Þá hafi allt í einu verið boðað til
annars fundar til að snúa þeirri nið-
urstöðu við. Á þeim fundi var sér-
staklega borin upp tillaga um próf-
kjör sem var felld með 28 atkvæðum
gegn 26. „Þetta tel ég vera brot á efni
og anda skipulagsreglna Sjálfstæðis-
f lokksins. Í þeim segir skýrt að til
þess að taka ákvörðun um annað
en próf kjör þarf tvo þriðju hluta
atkvæða.“
Niðurstaðan var ekki kærð heldur
klofnaði f lokkurinn og Páll ákvað
að styðja hvorugt framboðið. Hans
ábyrgð væri að lágmarka skaðann
af þessum klofningi í þingkosning-
unum en ekki skipta sér af innan-
búðardeilum í Eyjum. Hins vegar
gátu ekki allir fellt sig við þetta og
töldu Pál svíkja lit með því að styðja
ekki við D-listann.
„Þægilegast fyrir mig hefði verið
að fylgja línu þeirra sem réðu
ferðinni í f lokknum í Vestmanna-
eyjum og vera ekki að gera mér
neina rellu út af þessu,“ segir Páll.
„En sannfæring mín var sú að farið
hefði verið á svig við þessa megin-
reglu Sjálfstæðismanna og ég myndi
taka þessa ákvörðun aftur, vitandi
að þetta myndi baka mér alls konar
óþægindi.“
Í kosningunum missti Sjálfstæðis-
flokkurinn einn stærsta meirihluta
í íslenskum stjórnmálum, fór úr 73
prósentum niður í 45. Í kjölfarið
myndaði Fyrir Heimaey, sem fékk
34 prósent, meirihluta með Eyja-
listanum.
„Meirihlutinn féll fyrir eigin
hendi og á þessum þremur árum
hef ég því miður ekki séð nein merki
þess að þessar fylkingar sameinist,“
segir Páll og játar því að enn ríki
kergja hvað hann sjálfan varðar í
þessu máli. „Lítil samfélög eins og
Vestmannaeyjar eru ákaflega sam-
heldin, til dæmis þegar áföll ríða
yfir, en hin hliðin á peningnum er
sú að deilur í stjórnmálum og ann-
ars staðar geta orðið mjög persónu-
legar. Nándin er svo mikil.“
Gliðnunarmerki fyrir faraldur
Ólíkt tveimur fyrri ríkisstjórnum
hefur núverandi stjórn Sjálfstæðis-
f lok k s, Framsók nar f lok k s og
Vinstri grænna haldið út heilt kjör-
tímabil. Páll segist hafa stutt þessa
stjórn en gert sér grein fyrir að hún
myndi hvorki lækka skatta né draga
úr opinberum umsvifum. Festa var
sett í forgang því hinn pólitíski
óstöðugleiki hafi verið orðinn að
sjálfstæðu efnahagslegu vandamáli.
„Í meginatriðum hafa þær vonir
sem bundnar voru við ríkisstjórn-
ina ræst,“ segir Páll. „En það voru
komin ýmis gliðnunarmerki í
stjórnina rétt áður en faraldurinn
skall á.“ Einkum hafi Sjálfstæðis-
menn verið ósáttir við andstöðuna
við einkarekstur í heilbrigðismálum
og Vinstri græn verið ósátt við að
frumvarp um miðhálendisþjóðgarð
væri fast. Líkt og landhelgisstríðin
forðum hafi faraldurinn hins vegar
þjappað stjórnarliðum saman.
Framhald stjórnarinnar, fái flokk-
arnir til þess fylgi, ráðist hins vegar
af Vinstri grænum, sem séu stóra
spurningarmerkið í kosningunum.
Helmingur kjósendahópsins ætli
ekki að kjósa þá aftur en fylgið hefur
hins vegar aðeins dalað um 3 pró-
sent. Virðist því sem flokkurinn hafi
að stórum hluta skipt um fylgjendur.
En þó Páll hafi stutt núverandi
ríkisstjórn taldi hann sig, og kjós-
endur sína í Suðurkjördæmi, hlunn-
farna, þegar kom að útdeilingu ráð-
herrastóla. Sérstaklega árið 2016
þegar hann vann bæði sitjandi
ráðherra í prófkjöri og flokkurinn
hlaut rúmlega 31 prósent í kjör-
dæminu. Þessa skoðun fór Páll ekki
leynt með.
„Já, ég var hissa,“ segir hann
aðspurður um það að hafa ekki
verið boðið ráðuneyti. „Á þessum
fimm árum áttaði ég mig hins
vegar á því að ég hefði ekkert þurft
að verða svona hissa. Ég kom utan
frá í pólitíkina án þess að eiga mér
neitt bakland eða sögu í f lokknum.
Það getur verið býsna torsótt inni í
Sjálfstæðisflokknum. Þegar kemur
að ráðuneytum skiptir það ekki
endilega mestu máli að hafa sem
sterkast lýðræðislegt umboð, heldur
ráða aðrir þættir meiru um það.“
Tuttugu ár án áfengis
Þann 25. júlí fagnaði Páll því að tutt-
ugu ár voru frá því að hann lagði
flöskuna á hilluna. Hann segir það
hafa komið flatt upp á marga vini og
kunningja, sem hafi kannski ekki
vitað hversu miklum vandræðum
áfengið var farið að valda honum.
„Viðskiptajöfnuðurinn var orðinn
mjög óhagstæður því að leiðindin
og armæðan sem fylgdu þessu yfir-
skyggðu gleðina og hressleikann,“
segir hann.
Páll segir áfengið hafa verið farið
að taka ákveðinn toll, ekki síst í
fjölskyldulífinu. „Ég var fyrir löngu
búinn að átta mig á því að áfengi
væri vandamál sem ég þyrfti að gera
eitthvað í. En það tók mig um tíu ár
að sjá að ég myndi ekki ná árangri
án hjálpar.“ Þessa hjálp fékk Páll á
meðferðarstöð í Bandaríkjunum
og síðan hefur hann haldið sér við
með því að sækja AA-fundi og hafa
augun á boltanum.
„Þegar ég var að kveðja með-
ferðarráðgjafann á leið út á f lug-
völl spurði ég hann hvernig hann
byggist við að mér myndi ganga.
Hann sagðist ekki búast við góðum
árangri,“ segir Páll og hlær. „Ég væri
þannig karakter að ef ég myndi ekki
sýna edrúmennskunni áhuga og
viðhalda óttanum við að fara aftur
í sömu spor, yrði ég fljótur að falla.“
Páli brá nokkuð að heyra þetta en
hefur síðan passað upp á að verða
ekki værukær og viðhalda bæði
áhuganum og hræðslunni. Engin
leið sé betri til þess en að hlusta á
reynslusögur fólks sem hefur fallið.
Aðspurður um hvers vegna
hann hafi farið til Bandaríkjanna
til að sækja sér meðferð segir Páll
það hafa stafað af einhvers konar
hégóma og skömm. Í dag sé meiri
skilningur á áfengisvanda í sam-
félaginu.
„Mér fannst vera tormerki á að
fara í meðferð hér á Íslandi því hér
myndu allir frétta af því vegna þess
að ég væri þekktur,“ segir hann. Var
Páli því eindregið ráðlagt að fara
erlendis fremur en að fara ekki.
„Þetta var fyrirtaks meðferð en
það var í raun ástæðulaust að fara
erlendis. Í dag myndi ég sækja mér
hjálp á Íslandi þar sem hún er mjög
góð.“
Arfleifð pabba
Páll á heimili bæði í Garðabæ og
í Vestmannaeyjum, þar sem faðir
hans, Magnús H. Magnússon, var
bæjarstjóri. Í febrúar sá Páll æsku-
heimili sitt, við Vestmannabraut 22,
rifið til grunna. Páll segir það hafa
vakið upp tilfinningar innra með
sér, þó að byggingin sjálf hafi verið
að hruni komin og ekki til mikillar
prýði í miðbænum. Páll fékk þó
að eiga húsnúmerið og segist geta
ornað nostalgíunni með því.
Páll fór til Bandaríkjanna í meðferð árið 2001 og fagnar nú tuttugu árum án áfengis. Hann telur mikilvægt að viðhalda óttanum við að falla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Magnús var bæjarstjóri þegar
gosið hófst, 23. janúar árið 1973.
Páll var þá 18 ára gamall, nemandi í
Kennaraháskólanum og leigði íbúð
í Kópavoginum með félaga sínum.
„Ég fór að sofa en hann fór á
djammið þetta kvöld. Þegar hann
kom heim um nóttina, nokkuð við
skál, gargaði hann í gegnum hurð-
ina hjá mér að það væri byrjað að
gjósa í Eyjum. Ég trúði honum ekki
fyrr en hann náði í útvarpið og
restin af nóttinni fór í að finna fjöl-
skylduna mína. Ég fann mömmu og
systkini mín í Austurbæjarskólan-
um í hádeginu daginn eftir en pabbi
fór ekkert í land,“ segir Páll. Sjálfur
vann Páll um sumarið við að moka
vikri úr kirkjugarðinum.
Aðeins eldra fólk man hvílíkar
hamfarir gosið í Heimaey var og erf-
itt að ímynda sér hvernig það hafi
verið fyrir bæjarstjóra að sjá bæinn
fara undir hraun og ösku og alla
íbúana f lutta upp á land. Magnús
hlaut fálkaorðuna þetta ár, ásamt
fleirum sem komu að björgunarað-
gerðunum. Páll segir þær þó ekki
hafa verið erfiðasta verkefnið.
„Þegar frá leið varð aðalhlutverk
pabba heitins að sannfæra fólk um
að koma aftur eftir þessa hroðalegu
upplifun. Sannfæra fólk um að það
væri framtíð í Eyjum og fólk ætti að
byggja önnur hús í stað þeirra sem
fóru undir hraunið,“ segir Páll. „Að
það hafi tekist að veita fólkinu kjark
til þess, finnst mér vera mikilvæg-
asti hluti hans arfleifðar.“
Alltaf Eyjamaður
„Að vera Eyjamaður er mjög stór
hluti af sjálfsmyndinni,“ segir Páll.
„Miklu stærri en að vera fjölmiðla-
maður eða stjórnmálamaður. Ég
áttaði mig einna helst á þessu þegar
ég fór til að tæma skrifstofuna mína
á Alþingi. Þar var ég ekki með neitt
persónulegt sem ég þurfti að taka
með mér. Það sama átti við þegar ég
var að hætta sem útvarpsstjóri. Ég
gat bara gengið út.“
Páll varar við því að fólk geri
starfsgrein sína að órjúfanlegum
hluta sjálfsmyndarinnar. Það geti
verið sárt þegar fólk hætti að vinna
af einhverjum orsökum. „Ég sá
marga vini mína til dæmis í f lug-
stéttunum algerlega niðurbrotna
við að missa vinnuna í faraldrinum.
Því þeir voru að missa hluta af sjálfs-
myndinni líka. Ég verð alltaf fyrst
og fremst Eyjamaður, það er miklu
eðlilegri hluti af sjálfsmyndinni en
starfið sem maður gegnir á hverjum
tíma.“
Í samband við almættið
Páll mun stýra þáttunum Pólitík
með Páli Magnússyni á sjón-
varpsstöðinni Hringbraut fram
að kosningum í lok september. En
framhaldið er algerlega opið að
hans sögn. Páll er nú orðinn 67 ára
gamall, á fjögur börn úr tveimur
hjónaböndum og barnabörnin eru
orðin sjö, og komið eitt langafabarn
að auki.
Þegar hann lítur til baka yfir
langan feril í fjölmiðlum segir hann
alltaf hafa verið skemmtilegast að
starfa sem almennur blaðamaður.
„Þú mættir í vinnu að morgni og
vissir ekkert hvað dagurinn bar í
skauti sér. Gast endað niður í þingi
eða uppi í óbyggðum í miðjum
náttúruhamförum,“ segir hann.
„Eftir því sem maður komst hærra
í goggunarröðinni jókst argaþrasið
og leiðindastigið.“
Einfaldleikinn á vel við Pál sem
kemur kannski best í ljós í Eyjum.
Þar á hann lítinn skemmtibát með
vinum sínum. Páll segir sjóferðirnar
dýrmæta afslöppun.
„Ég fer oft einn út og leita að
hvölum, sérstaklega háhyrningum,“
segir hann. „Stundum sé ég að þeir
hafa fundið síldartorfu og súlurnar
stinga sér að ofan. Ég fer þá eins
nálægt og ég get, drep á mótornum
og stari á þetta sjónarspil. Þá finnst
mér eins og ég hafi verið tekinn úr
sambandi við gráan hversdags-
leikann og stungið í samband við
almættið.“ ■
Þegar frá leið varð
aðalhlutverk pabba
heitins að sannfæra
fólk um að koma aftur
eftir þessa hroðalegu
upplifun.
Helgin 19LAUGARDAGUR 14. ágúst 2021 FRÉTTABLAÐIÐ