Fréttablaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 19
felld á fundi fulltrúaráðs, í ljósi þess að margir f lokksmenn hafi viljað prófkjör, sem hafi alltaf verið meginreglan hjá f lokknum. Allir sem af þeim fundi gengu hafi því verið fullvissir um að prófkjör væri þar með ákveðið. Þá hafi allt í einu verið boðað til annars fundar til að snúa þeirri nið- urstöðu við. Á þeim fundi var sér- staklega borin upp tillaga um próf- kjör sem var felld með 28 atkvæðum gegn 26. „Þetta tel ég vera brot á efni og anda skipulagsreglna Sjálfstæðis- f lokksins. Í þeim segir skýrt að til þess að taka ákvörðun um annað en próf kjör þarf tvo þriðju hluta atkvæða.“ Niðurstaðan var ekki kærð heldur klofnaði f lokkurinn og Páll ákvað að styðja hvorugt framboðið. Hans ábyrgð væri að lágmarka skaðann af þessum klofningi í þingkosning- unum en ekki skipta sér af innan- búðardeilum í Eyjum. Hins vegar gátu ekki allir fellt sig við þetta og töldu Pál svíkja lit með því að styðja ekki við D-listann. „Þægilegast fyrir mig hefði verið að fylgja línu þeirra sem réðu ferðinni í f lokknum í Vestmanna- eyjum og vera ekki að gera mér neina rellu út af þessu,“ segir Páll. „En sannfæring mín var sú að farið hefði verið á svig við þessa megin- reglu Sjálfstæðismanna og ég myndi taka þessa ákvörðun aftur, vitandi að þetta myndi baka mér alls konar óþægindi.“ Í kosningunum missti Sjálfstæðis- flokkurinn einn stærsta meirihluta í íslenskum stjórnmálum, fór úr 73 prósentum niður í 45. Í kjölfarið myndaði Fyrir Heimaey, sem fékk 34 prósent, meirihluta með Eyja- listanum. „Meirihlutinn féll fyrir eigin hendi og á þessum þremur árum hef ég því miður ekki séð nein merki þess að þessar fylkingar sameinist,“ segir Páll og játar því að enn ríki kergja hvað hann sjálfan varðar í þessu máli. „Lítil samfélög eins og Vestmannaeyjar eru ákaflega sam- heldin, til dæmis þegar áföll ríða yfir, en hin hliðin á peningnum er sú að deilur í stjórnmálum og ann- ars staðar geta orðið mjög persónu- legar. Nándin er svo mikil.“ Gliðnunarmerki fyrir faraldur Ólíkt tveimur fyrri ríkisstjórnum hefur núverandi stjórn Sjálfstæðis- f lok k s, Framsók nar f lok k s og Vinstri grænna haldið út heilt kjör- tímabil. Páll segist hafa stutt þessa stjórn en gert sér grein fyrir að hún myndi hvorki lækka skatta né draga úr opinberum umsvifum. Festa var sett í forgang því hinn pólitíski óstöðugleiki hafi verið orðinn að sjálfstæðu efnahagslegu vandamáli. „Í meginatriðum hafa þær vonir sem bundnar voru við ríkisstjórn- ina ræst,“ segir Páll. „En það voru komin ýmis gliðnunarmerki í stjórnina rétt áður en faraldurinn skall á.“ Einkum hafi Sjálfstæðis- menn verið ósáttir við andstöðuna við einkarekstur í heilbrigðismálum og Vinstri græn verið ósátt við að frumvarp um miðhálendisþjóðgarð væri fast. Líkt og landhelgisstríðin forðum hafi faraldurinn hins vegar þjappað stjórnarliðum saman. Framhald stjórnarinnar, fái flokk- arnir til þess fylgi, ráðist hins vegar af Vinstri grænum, sem séu stóra spurningarmerkið í kosningunum. Helmingur kjósendahópsins ætli ekki að kjósa þá aftur en fylgið hefur hins vegar aðeins dalað um 3 pró- sent. Virðist því sem flokkurinn hafi að stórum hluta skipt um fylgjendur. En þó Páll hafi stutt núverandi ríkisstjórn taldi hann sig, og kjós- endur sína í Suðurkjördæmi, hlunn- farna, þegar kom að útdeilingu ráð- herrastóla. Sérstaklega árið 2016 þegar hann vann bæði sitjandi ráðherra í prófkjöri og flokkurinn hlaut rúmlega 31 prósent í kjör- dæminu. Þessa skoðun fór Páll ekki leynt með. „Já, ég var hissa,“ segir hann aðspurður um það að hafa ekki verið boðið ráðuneyti. „Á þessum fimm árum áttaði ég mig hins vegar á því að ég hefði ekkert þurft að verða svona hissa. Ég kom utan frá í pólitíkina án þess að eiga mér neitt bakland eða sögu í f lokknum. Það getur verið býsna torsótt inni í Sjálfstæðisflokknum. Þegar kemur að ráðuneytum skiptir það ekki endilega mestu máli að hafa sem sterkast lýðræðislegt umboð, heldur ráða aðrir þættir meiru um það.“ Tuttugu ár án áfengis Þann 25. júlí fagnaði Páll því að tutt- ugu ár voru frá því að hann lagði flöskuna á hilluna. Hann segir það hafa komið flatt upp á marga vini og kunningja, sem hafi kannski ekki vitað hversu miklum vandræðum áfengið var farið að valda honum. „Viðskiptajöfnuðurinn var orðinn mjög óhagstæður því að leiðindin og armæðan sem fylgdu þessu yfir- skyggðu gleðina og hressleikann,“ segir hann. Páll segir áfengið hafa verið farið að taka ákveðinn toll, ekki síst í fjölskyldulífinu. „Ég var fyrir löngu búinn að átta mig á því að áfengi væri vandamál sem ég þyrfti að gera eitthvað í. En það tók mig um tíu ár að sjá að ég myndi ekki ná árangri án hjálpar.“ Þessa hjálp fékk Páll á meðferðarstöð í Bandaríkjunum og síðan hefur hann haldið sér við með því að sækja AA-fundi og hafa augun á boltanum. „Þegar ég var að kveðja með- ferðarráðgjafann á leið út á f lug- völl spurði ég hann hvernig hann byggist við að mér myndi ganga. Hann sagðist ekki búast við góðum árangri,“ segir Páll og hlær. „Ég væri þannig karakter að ef ég myndi ekki sýna edrúmennskunni áhuga og viðhalda óttanum við að fara aftur í sömu spor, yrði ég fljótur að falla.“ Páli brá nokkuð að heyra þetta en hefur síðan passað upp á að verða ekki værukær og viðhalda bæði áhuganum og hræðslunni. Engin leið sé betri til þess en að hlusta á reynslusögur fólks sem hefur fallið. Aðspurður um hvers vegna hann hafi farið til Bandaríkjanna til að sækja sér meðferð segir Páll það hafa stafað af einhvers konar hégóma og skömm. Í dag sé meiri skilningur á áfengisvanda í sam- félaginu. „Mér fannst vera tormerki á að fara í meðferð hér á Íslandi því hér myndu allir frétta af því vegna þess að ég væri þekktur,“ segir hann. Var Páli því eindregið ráðlagt að fara erlendis fremur en að fara ekki. „Þetta var fyrirtaks meðferð en það var í raun ástæðulaust að fara erlendis. Í dag myndi ég sækja mér hjálp á Íslandi þar sem hún er mjög góð.“ Arfleifð pabba Páll á heimili bæði í Garðabæ og í Vestmannaeyjum, þar sem faðir hans, Magnús H. Magnússon, var bæjarstjóri. Í febrúar sá Páll æsku- heimili sitt, við Vestmannabraut 22, rifið til grunna. Páll segir það hafa vakið upp tilfinningar innra með sér, þó að byggingin sjálf hafi verið að hruni komin og ekki til mikillar prýði í miðbænum. Páll fékk þó að eiga húsnúmerið og segist geta ornað nostalgíunni með því. Páll fór til Bandaríkjanna í meðferð árið 2001 og fagnar nú tuttugu árum án áfengis. Hann telur mikilvægt að viðhalda óttanum við að falla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Magnús var bæjarstjóri þegar gosið hófst, 23. janúar árið 1973. Páll var þá 18 ára gamall, nemandi í Kennaraháskólanum og leigði íbúð í Kópavoginum með félaga sínum. „Ég fór að sofa en hann fór á djammið þetta kvöld. Þegar hann kom heim um nóttina, nokkuð við skál, gargaði hann í gegnum hurð- ina hjá mér að það væri byrjað að gjósa í Eyjum. Ég trúði honum ekki fyrr en hann náði í útvarpið og restin af nóttinni fór í að finna fjöl- skylduna mína. Ég fann mömmu og systkini mín í Austurbæjarskólan- um í hádeginu daginn eftir en pabbi fór ekkert í land,“ segir Páll. Sjálfur vann Páll um sumarið við að moka vikri úr kirkjugarðinum. Aðeins eldra fólk man hvílíkar hamfarir gosið í Heimaey var og erf- itt að ímynda sér hvernig það hafi verið fyrir bæjarstjóra að sjá bæinn fara undir hraun og ösku og alla íbúana f lutta upp á land. Magnús hlaut fálkaorðuna þetta ár, ásamt fleirum sem komu að björgunarað- gerðunum. Páll segir þær þó ekki hafa verið erfiðasta verkefnið. „Þegar frá leið varð aðalhlutverk pabba heitins að sannfæra fólk um að koma aftur eftir þessa hroðalegu upplifun. Sannfæra fólk um að það væri framtíð í Eyjum og fólk ætti að byggja önnur hús í stað þeirra sem fóru undir hraunið,“ segir Páll. „Að það hafi tekist að veita fólkinu kjark til þess, finnst mér vera mikilvæg- asti hluti hans arfleifðar.“ Alltaf Eyjamaður „Að vera Eyjamaður er mjög stór hluti af sjálfsmyndinni,“ segir Páll. „Miklu stærri en að vera fjölmiðla- maður eða stjórnmálamaður. Ég áttaði mig einna helst á þessu þegar ég fór til að tæma skrifstofuna mína á Alþingi. Þar var ég ekki með neitt persónulegt sem ég þurfti að taka með mér. Það sama átti við þegar ég var að hætta sem útvarpsstjóri. Ég gat bara gengið út.“ Páll varar við því að fólk geri starfsgrein sína að órjúfanlegum hluta sjálfsmyndarinnar. Það geti verið sárt þegar fólk hætti að vinna af einhverjum orsökum. „Ég sá marga vini mína til dæmis í f lug- stéttunum algerlega niðurbrotna við að missa vinnuna í faraldrinum. Því þeir voru að missa hluta af sjálfs- myndinni líka. Ég verð alltaf fyrst og fremst Eyjamaður, það er miklu eðlilegri hluti af sjálfsmyndinni en starfið sem maður gegnir á hverjum tíma.“ Í samband við almættið Páll mun stýra þáttunum Pólitík með Páli Magnússyni á sjón- varpsstöðinni Hringbraut fram að kosningum í lok september. En framhaldið er algerlega opið að hans sögn. Páll er nú orðinn 67 ára gamall, á fjögur börn úr tveimur hjónaböndum og barnabörnin eru orðin sjö, og komið eitt langafabarn að auki. Þegar hann lítur til baka yfir langan feril í fjölmiðlum segir hann alltaf hafa verið skemmtilegast að starfa sem almennur blaðamaður. „Þú mættir í vinnu að morgni og vissir ekkert hvað dagurinn bar í skauti sér. Gast endað niður í þingi eða uppi í óbyggðum í miðjum náttúruhamförum,“ segir hann. „Eftir því sem maður komst hærra í goggunarröðinni jókst argaþrasið og leiðindastigið.“ Einfaldleikinn á vel við Pál sem kemur kannski best í ljós í Eyjum. Þar á hann lítinn skemmtibát með vinum sínum. Páll segir sjóferðirnar dýrmæta afslöppun. „Ég fer oft einn út og leita að hvölum, sérstaklega háhyrningum,“ segir hann. „Stundum sé ég að þeir hafa fundið síldartorfu og súlurnar stinga sér að ofan. Ég fer þá eins nálægt og ég get, drep á mótornum og stari á þetta sjónarspil. Þá finnst mér eins og ég hafi verið tekinn úr sambandi við gráan hversdags- leikann og stungið í samband við almættið.“ ■ Þegar frá leið varð aðalhlutverk pabba heitins að sannfæra fólk um að koma aftur eftir þessa hroðalegu upplifun. Helgin 19LAUGARDAGUR 14. ágúst 2021 FRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.