Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 23
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 14. ágúst 2021
Hartmann hefur stundað hjólreiðar markvisst í nokkur ár en hnévandamál hafa sett strik í reikninginn. Hann fann mikinn mun eftir að hann byrjaði að taka
inn Active Joints. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR GEIRSSON
Getur loks hjólað án óþæginda
Hartmann Kristinn Guðmundsson er rúmlega sextugur hjólreiðakappi sem hefur verið að
glíma við liðverki og gigt. Hann segir verkina hafa stórlagast eftir að hann fór að taka inn
Active Joints frá Eylíf, bætiefni úr náttúrulegum innihaldsefnum úr íslenskri náttúru. 2
Ljúffeng og matarmikil súpa sem
hentar jafnt á sumar- og vetrarkvöldi.
starri@frettabladid.is
Íslenskt spergilkál kom nýlega í
verslanir, sem er fagnaðarefni. Hér
er uppskrift af gómsætri súpu sem
inniheldur meðal annars spergil-
kál, kartöflur, gulrætur og cheddar
ost.
1/4 bolli smjör
1 laukur, saxaður smátt
2 meðalstórar gulrætur, saxaðar
smátt
1 msk. smátt saxaður hvítlaukur
1/4 bolli hveiti
4 bollar grænmetissoð (t.d.
teningur og vatn)
1 bolli mjólk
2-3 stórar kartöflur, skrældar og
skornar í litla teninga
450 g spergilkál, skorið í hæfilega
munnbita
2 bollar rifinn cheddar ostur
Salt og pipar
Aðferð
Afhýðið kartöflur og gulrætur og
skerið í litla bita. Saxið lauk og
hvítlauk smátt. Skerið spergilkál
í litla munnbita. Bræðið smjör í
potti og steikið við meðalhita gul-
rætur og lauk þar til hvort tveggja
er mjúkt. Bætið næst út í hvít-
lauknum og steikið í um mínútu.
Næst fer hveitið út í ásamt græn-
metissoðinu og mjólkinni. Hrærið
vel saman. Kartöflubitarnir fara
næst út í. Hrærið saman og sjóðið
við vægan hita í fimm mínútur.
Smakkið til með salti og pipar.
Bætið svo spergilkálinu út í og
sjóðið við vægan hita í um tíu
mínútur eða þar til kartöflubit-
arnir eru mjúkir. Takið pottinn af
hellunni og bætið ostinum út í.
Áður en súpan er borin fram er
gott að strá smá rifnum cheddar
osti yfir og smá pipar. ■
Spergilkál í
súpuna
Heilbrigð melting er
grunnur að góðri heilsu
Heilsan er dýrmætust
www.eylif.is
NÝR
MIÐI!
Þú getur unnið fjórum sinnum!
Finndu fé
og vinndu fé!