Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 42
Starfshlutfall er 80-100%. Umsóknarfrestur er til og með 20.08.2021.
Nánari upplýsingar veitir Sveinbjörn Auðunsson - sveinbjorn.audunsson@heilsugaeslan.is - 513-5600
SJÁ NÁNAR Á WWW.HEILSUGAESLAN.IS UNDIR LAUS STÖRF OG Á WWW.STARFATORG.IS
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
Starfssvið heilsugæslulæknis er víðtækt og felst m.a.
í almennum lækningum, heilsuvernd og síðdegisvakt.
Heilsugæslulæknir er virkur þátttakandi í þróun og upp-
byggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks
og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem
áhuga hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.
Starfssvið læknis á heilsugæslu er m.a.: Almennar lækn-
ingar - Heilsuvernd - Vaktþjónusta - Þjálfun unglækna -
Þverfagleg teymisvinna - Þátttaka í þróun starfseminnar
og gæðastarfi.
Laust er til umsóknar 80-100% ótímabundin staða sérfræðings í heimilislækningum við
Heilsugæsluna Grafarvogi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september nk.
eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi
vettvang fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.
Heilsugæslan Grafarvogi er staðsett í nýlegu húsnæði í Spönginni í Grafarvogi.
Á stöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt sálfræðingi, hjúkrunarfræðingum,
ljósmæðrum og riturum. Heilsugæslan Grafarvogi er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að
veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Í húsnæði Heilsugæslunnar
í Grafarvogi eru einnig starfrækt tvö geðheilsuteymi á vegum HH. Þessi ánægjulega sambúð
með geðteymunum gerir stöðina félagslega og fræðilega að einkar áhugaverðum vinnustað.
Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf
fagstétta og teymisvinnustaða almenns læknis.
SÉRFRÆÐINGUR Í HEIMILISLÆKNINGUM
HEILSUGÆSLAN GRAFARVOGI
Íslenskt lækningaleyfi
Sérfræðimenntun í heimilislækningum æskileg
Reynsla af klínískum kennslustörfum og teymisvinnu æskileg
Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
Góð almenn tölvukunnátta
Íslenskukunnátta skilyrði
Góð enskukunnátta
HÆFNISKRÖFUR
FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun,
læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Í boði er handleiðsla og kennsla innan stöðvar sem nýtast svo ef viðkomandi hyggur
á sérnám í heilsugæslulækningum. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.
Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Þroskaþjálfi / Iðjuþjálfi
Laus er til umsóknar 70-100% staða þroskaþjálfa/iðjuþjálfa.
Staðan er laus strax eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Hlein er heimili sjö fatlaðra einstaklinga sem hafa fatlast af
völdum sjúkdóma eða slysa. Hlutverk þroskaþjálfa/iðjuþjálfa
er að stýra vinnustofu íbúanna og jafnframt mun viðkomandi
starfa sem aðstoðarforstöðumaður heimilisins. Vaktaskylda
mun að einhverju leyti hvíla á viðkomandi. Hlein er rekið
af Reykjalundi.
Við leitum að starfsmanni með framúrskarandi
samskipta- leiðtoga- og skipulagshæfni. Viðkomandi þarf
að vera með íslenskt starfsleyfi. Kostur er að viðkomandi
hafi reynslu af stjórnun.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Þroskaþjálfafélags
Íslands/Iðjuþjálfafélags Íslands og fjármálaráðherra auk
stofnanasamnings Þroskaþjálfafélags Íslands/Iðjuþjálfa-
félags Íslands og Reykjalundar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anný Lára Emilsdóttir
forstöðumaður á Hlein í síma 585-2091 eða í gegnum
netfangi annylara@reykjalundur.is og Guðbjörg
Gunnarsdóttir mannauðsstjóri í síma 585-2143 eða í gegnum
netfangið gudbjorg@reykjalundur.is
Umsóknarfrestur er til 29. ágúst 2021
Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má finna á
heimasíðunni www.reykjalundur.is
Reykjalundur endurhæfing ehf. Sími 585 2000 – www.reykjalundur.is
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
Erum við
að leita að þér?
16 ATVINNUBLAÐIÐ 14. ágúst 2021 LAUGARDAGUR