Fréttablaðið - 14.08.2021, Síða 45

Fréttablaðið - 14.08.2021, Síða 45
Menningar- og ferðamálasvið Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Listasafn Reykjavíkur auglýsir stöður móttökustjóra og móttökufulltrúa Um er að ræða 70-80% störf á vöktum. Leitað er að hugmyndaríkum og jákvæðum einstaklingum til starfa í kraftmiklum starfshópi. Móttökustjórar og móttökufulltrúar sinna daglegu starfi í móttökum, safnverslunum og við gæslu listaverka í sýningarsölum safnsins. Starfsmenn í móttöku miðla upplýsingum um sýningar til gesta safnsins. Viðkomandi þurfa að eiga gott með að tjá sig við ýmsar aðstæður við fólk á öllum aldri með ólíkan menningarlegan bakgrunn. Listasafn Reykjavíkur er lifandi og framsækinn vettvangur þar sem tækifæri gefst til að kynnast fjölbreytileika myndlistar og öðlast dýpri skilning á sögulegu, félagslegu, menningarlegu og listrænu samhengi sköpunarverka listamanna. Safnið er til húsa á þremur stöðum í Reykjavík: í Hafnarhúsi, á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni. Starfsmenn skulu geta sinnt starfinu í öllum safnhúsum Listasafns Reykjavíkur. Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst Nánari upplýsingar má finna á vef Reykjavíkurborgar; https://reykjavik.is/laus-storf/oll-storf og hjá þjónustustjóra Listasafns Reykjavíkur Marteini Tausen í síma 4116400 eða marteinn.tausen hjá reykjavík.is www.ruv.is RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla. Öflugt og samhent starfsfólk RÚV skoðar samfélagið með gagnrýnum hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar. Við leitum að fólki sem vill vera hluti af mikilvægu starfi á skapandi og líflegum vinnustað. Teymisstjóri barna- og ungmennaþjónustu Pródúsent Umsóknum skal skilað á vef RÚV, www.ruv.is/storf, þar er einnig að finna nánari upplýsingar um störfin. Við leitum að hugmyndaríkum teymisstjóra til að hafa umsjón með þjónustu RÚV við börn og ungmenni, þvert á miðla. Markmið starfsins er að leiða þróun vandaðs innlends dagskrárefnis fyrir börn og unglinga með fjölbreyttri og ferskri nálgun sem höfðar sterkt til þessa mikilvæga hóps. Teymisstjórinn leiðir faghóp RÚV um barna- og ungmennaþjónustu, mótar stefnu um þjónustuna til framtíðar og ber ábyrgð á að samhæfa innkaup, gerð og miðlun barnaefnis. Starfið heyrir undir dagskrárstjóra sjónvarps en felur í sér samstarf við dagskrárstjóra allra miðla. Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2021 Við leitum að pródúsent á fréttastofu RÚV. Fréttapródúsent er framleiðslu- og útsendingarstjóri fréttastofu. Brennandi áhugi á fréttum og góð þekking og reynsla af myndvinnslu fyrir sjónvarp nauðsynleg. Ráðið verður í starfið til eins árs með möguleika á framlengingu. Umsóknarfrestur er til 22. ágúst 2021. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um störfin, óháð kyni, uppruna, fötlun eða skertri starfsgetu. Þátttakandi í íslensku atvinnulífi í 50 ár

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.