Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 56
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Áslaug Hulda Jónsdóttir er
Garðbæingur í húð og hár
og er stolt af bænum sínum.
Hún er stjórnandi hjá endur-
vinnslufyrirtækinu Pure
North Recycling ásamt því
að vera forseti bæjarráðs
Garðabæjar.
Áslaug Hulda er mörgum hæfi-
leikum gædd og eitt af því sem
hún nýtur sín hvað best í er elda-
mennskan. Hún er mikill matgæð-
ingur og veit fátt skemmtilegra en
að vera í góðra vina hópi og snæða
sælkeramáltíð þar sem gleðin er
við völd. Sumrin eru svo sannar-
lega hennar tími og kátína skín úr
andliti hennar þegar hún er spurð
út í sumarið.
Skemmtilegast að vera í bústað
Þegar hún er beðin um að segja
eina setningu sem lýsir henni best
á sumrin er hún fljót að svara.
„Berfætt og brosandi í baðfötum og
smá brunnin,“ segir Áslaug Hulda
og hlær.
Hvað heillar þig mest að gera
þegar þú ert að ferðast innanlands,
vera á hóteli, í sumarbústað eða
hjólhýsi eða þess háttar gistingu?
„Ég elska að ferðast um landið
og vera úti í íslenskri náttúru. Við
skipuleggjum veiðiferðir en aðrar
ferðir eru meira spontant og háðar
góðu veðri. Ég er samt voðalega
heimakær og þarf oftast ekkert að
fara mikið lengra en upp í Heið-
mörk í góða göngu. Þegar ég er ekki
heima finnst mér skemmtilegast að
vera í sumarbústað með góðu fólki
þar sem gott eldhús, grill og heitur
pottur eru í aðalhlutverki. Ekki
verra ef það er nálægt vatni, á eða
við sjó.“
Nautakjötssalat í uppáhaldi
Áslaug Hulda segir að matar-
venjurnar breytist klárlega með
árstíðunum. „Matseðillinn breytist
á sumrin og í ár er engin breyting
á því þrátt fyrir sólarleysið á
suðvesturhorninu. Hægeldaðir
lambaskankar og kröftugar haust-
súpur víkja fyrir léttari réttum.
Ég geri mikið af alls konar salati á
sumrin með grilluðum kjúklingi
eða nautakjöti, uppáhaldið mitt
er nautakjötssalat. Síðan er fátt
sem toppar kolagrillað kjöt. Með
grillmatnum á sumrin erum við
oft með chimichurri, heitt smjör
Lambakórónur með mintu sem bráðna í munni
Áslaug Hulda er
mörgum hæfi-
leikum gædd og
eitt af því sem
hún nýtur sín
hvað best í er
eldamennskan.
Hún er mikill
matgæðingur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
með kryddjurtum og hvítar kaldar
sósur, hvílum þungu rjómasós-
urnar. Risotto með til dæmis aspas
og sjávarfangi er líka sumarlegt og
gott.“
Skemmtilegt að smakka nýtt
Einnig finnst Áslaugu Huldu spenn-
andi að prófa eitthvað nýtt. „Maður
dettur oft í það að elda mikið það
sama, það er því alltaf skemmti-
legt að fatta og smakka eitthvað
nýtt. Nýjasta nýtt hjá mér er grillað
lamb með dijon-sinnepi og ferskum
kryddjurtum. Í upphafi sumars
fórum við í ferðalag sem sameinaði
nokkra ómissandi þætti fyrir
sumarið; sumarbústað, góðan mat,
fluguveiði og frábæran félagsskap.
Í hópnum voru meistarakokkar,
hjón, sem töfruðu fram ómótstæði-
lega rétti. Einn af þeim var þetta
lamb sem ég ætla að gefa ykkur
uppskriftina af sem ég er nú þegar
búin að gera oftar en einu sinni. Þar
er mintan í stóru hlutverki en ég hef
einmitt verið að nota hana mikið í
alls kyns mat í sumar.“
Fær að sitja að pikknikk-teppinu
Af því þú nefnir ferðalag í sumar-
bústað og veiðiferðir, hvernig er það,
áttu pikknikk-körfu og -tösku og
pikknikk-teppi í stíl til að taka með?
„Nei, en Inga Lind, vinkona mín,
á sennilega huggulegustu pikk-
nikkkörfu sem sögur fara af og
teppi í stíl. Ég fæ oftast að sitja með
henni á teppinu og njóta þess sem
er í körfunni. Ég á hins vegar alls
konar bakka og fötur sem ég nota
mikið, bæði í garðinum heima og í
ferðalögum. Það er nefnilega ekki
nóg að matur bragðist vel, hann
þarf líka að líta vel út. Við borðum
nefnilega líka með augunum.“
Ertu til í að ljóstra upp þínu uppá-
haldsnesti í dagsferðina?
„Eins og ég elska að vesenast í eld-
húsinu er ég lítil nestiskona. Í dags-
ferðina tek ég með mér harðfisk og
smjör og einn ískaldan, bjór getur
líka verið hinn besti dósamatur.
Flatkökur með miklu smjöri og
hangikjöti klikka síðan aldrei.“
Ef þú værir að setja saman pikk-
nikk í körfu, hvað væri á óskalist-
anum?
„Ég fer mjög sjaldan í pikknikk
en happy-hour í veiði er sennilega
systir pikknikk. Þegar ég set saman
happy-hour finnst mér einfaldleik-
inn skipta máli. Ekki of flókið eða
of margar tegundir. Í vöðlum og
sól er alvöru parmaskinka, aioli og
baguette æðislegt kombó. Bitar af
franskri súkkulaðiköku. Gott cava
gerir allt betra. Í rigningu og roki er
gott að grípa í djúsí roastbeef sam-
loku og bjór, hraunbita til að loka
maganum. Heiðarlegt og gott.“
Hvað er ómissandi að taka með í
pikknikk?
„Skemmtilegt fólk, það er örugg-
lega hálfasnalegt að setja einn í
pikknikk eða happy-hour – sama
hversu huggulegar veitingarnar eru.
Þetta er svona gaman, saman.“
Vöðlurnar uppáhaldsferðafötin
Áslaug er með á hreinu hver hennar
uppáhaldsferðaföt eru. „Uppá-
haldsferðafötin mín eru vöðlurnar
á sumrin og skíðabuxur um vetur.
Annars ferðast ég í þægilegum
fötum og á sumrin er ég yfirleitt í
skóm sem ég er snögg að henda af
mér því ég elska að vera berfætt.
Sundbolurinn er svo alltaf með,
konur þurfa að bleyta sporðinn.
Það er eins með sumarið og lífið
– við getum ekki bara beðið eftir
því að eitthvað gerist, við verðum
að taka ákvörðun, skipuleggja og
koma okkur af stað, gera eitthvað
skemmtilegt. Og auðvitað í anda
þessa viðtals, borða eitthvað gott.“
Nautasalat að hætti Áslaugar
Huldu
Blanda saman nokkrum teg-
undum af grænu salati og kreisti
safann úr vænni appelsínu yfir.
Paprika, gúrka, belgbaunir, rauð-
laukur eða annað gott grænmeti
fer líka með. Set svo fetaost ásamt
olíu, líka gott að setja smá brie eða
annan góðan ost. Grilla nauta-
lund, læt standa og sker svo niður í
sneiðar. Sneiðum dýft í Asian Duck
Sauce og set yfir salatið. Stundum
bæti ég við pönnu steiktum
sveppum og/eða aspas. Yfir þetta
fara síðan hnetur (nota oftast
kasjú- og/eða furuhnetur), bláber
og/eða önnur ber, spírur og ferska
steinselju.
Mintuhjúpaðar
lambakórónur
Lambakórónur, kryddaðar með
SPG og sítrónupipar, grilla. Ekki
fullelda, taka af grillinu, smyrja
með hunangs-dijon-sinnepi og
hjúpa með smáttsaxaðri mintu,
steinselju og vorlauk. Hendið inn
í heitan ofn í stutta stund. Borið
fram með krydduðu kúskús, grænu
salati og kaldri jógúrt- eða hvít-
laukssósu. Muldar pistasíuhnetur
fara yfir lambið áður en það er
borið fram. ■
Happy
hour í
veiði er
sennilega
systir
pikknikk
og þá
finnst mér
einfald-
leikinn
skipta
máli.
Heiðarlegt
og gott.
Ég hef tekið
sæbjúgna-
hylkin í tvö ár og
fer allra minna
ferða án óþæg-
inda. Það er algjör
bylting.
Magnús Friðbergsson mælir
með sæbjúgnahylkjum frá
Arctic Star, en hann finnur
mun á sér eftir að hann fór
að nota þau. Sæbjúgu inni-
halda yfir fimmtíu tegundir
af næringarefnum.
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem
heilsubótarfæði og notuð til bóta
við hinum ýmsu meinum. Kín-
verjar kalla sæbjúgu gjarnan „gin-
seng hafsins“ og til eru sagnir um
notkun sæbjúgna þar fyrir meira
en þúsund árum.
Arctic Star sæbjúgnahylkin
innihalda yfir fimmtíu tegundir
af næringarefnum sem geta haft
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega
starfsemi mannslíkamans, til
dæmis er mikið kollagen í þeim, en
það er eitt helsta uppbyggingar-
prótein líkamans.
Finnur mikinn mun á sér
Á síðustu árum hefur Arctic
Star sérhæft sig í þróun á fæðu-
bótarefnum, svo sem framleiðslu,
markaðssetningu og sölu á
hágæða sæbjúgnahylkjum. Hylkin
eru framleidd úr íslenskum,
hágæða, villtum sæbjúgum sem
eru veidd í Atlantshafinu.
Magnús Friðbergsson hefur
tekið sæbjúgnahylkin frá Arctic
Star undanfarin ár. „Vinur minn
kynnti mig fyrir sæbjúgna-
hylkjunum og þar sem ég hafði
lengi verið slæmur í hnjám, með
liðverki og lítið getað beitt mér,
ákvað ég að prófa. Tveimur til
þremur vikum seinna fann ég
mikinn mun.
Nú hef ég tekið sæbjúgna-
hylkin í tvö ár og fer allra minna
ferða án óþæginda. Það er algjör
bylting frá því sem áður var. Nú
get ég gert hluti eins og að fara
í langar gönguferðir, sem ég gat
varla gert áður. Að minnsta kosti
gerði ég það ekki með bros á vör
og það tók mig langan tíma að
jafna mig eftir álag,“ útskýrir
hann. Magnús, sem er 71 árs,
hafði fengið að heyra frá lækni að
mikið slit væri í hnjám hans og
ekki væri von á að það gengi til
baka. „Hann sagði mér að kíkja
á fæðingardaginn minn og að ég
gæti ekki búist við að fara aftur
í tíma. Mér fannst vont að heyra
þetta og var því tilbúinn að prófa
ýmislegt sem gæti mögulega
lagað þetta. Sæbjúgnahylkin frá
Arctic Star virka mjög vel á mig og
ég mæli með að fólk prófi þau.“ ■
Magnús er betri í hnjám og finnur minna fyrir liðverkjum eftir að hann fór að taka
sæbjúgnahylkin. Hylkin eru nú komin í nýjar umbúðir eins og sjá má á myndinni.
Sæbjúgnahylkin eru bylting
Í vöðlum og sól
er alvöru par-
maskinka, aioli
og baguette æð-
islegt combó, að
sögn Áslaugar.
Framleiðandi sæbjúgna er Arctic
Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á arcticstar.is.
Arctic Star sæbjúgnahylki fást í
flestum apótekum, heilsubúðum,
í Hagkaupum og í Fjarðarkaup.
6 kynningarblað A L LT 14. ágúst 2021 LAUGARDAGUR