Fréttablaðið - 14.08.2021, Síða 61
Sema á Old Trafford árið 2011.
Sigfríð er ekki
kölluð Arsen
alkonan fyrir
ekki neitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
AUÐUNN
Einar elur barna
börnin Bjart
Frey og Arabellu
Sigrúnu vel upp.
Þórður er sennilega sá eini sem á Phil Nevilletreyju.
United verða meistarar
„Það er orðið erfiðara en áður
að spá fyrir um boltann þar
sem hinir ótrúlegustu hlutir
gerast, en ég held að þetta
verði gott tímabil fyrir okkur,“
segir Sema Erla Serdar, mann
réttindafrömuður og aðdáandi
Manchester United. „Ég bind
miklar vonir við liðið í ár og
sérstaklega við leikmenn eins
og Rashford, innan vallar sem
utan. 2022 verður árið sem
bikarinn skilar sér aftur á Old
Trafford eftir alltof langa fjar
veru.“
Sema hefur stutt rauðu
djöflana frá því hún var barn
og sjálf í boltanum. Hún segist
ekki hafa haft neitt val á sínum
tíma. Henni var einfaldlega
kennt að halda með United.
„Minnisstæðasti leikurinn
minn er án efa Manchester
Unit ed gegn Chelsea sem ég sá ein á Old Trafford árið 2011. Ég bjó í Edinborg á þeim
tíma og ferðaðist ein til Manchester til að fara á leikinn sem United vann og fór þar
með í undanúrslit meistaradeildarinnar,“ segir hún. „Annars er úrslitaleikurinn í
meistaradeildinni gegn Bayern München árið 1999 líka ógleymanlegur.“
Hennar uppáhaldsleikmaður spilaði hins vegar aldrei fyrir United, en það er hinn
portúgalski Luis Figo.
Vill Kane til Grindavíkur
Sjónvarpsmaðurinn Gísli Einarsson hefur stutt Tottenham Hotspur síðan á áttunda
áratug síðustu aldar. „Ég varð að finna mér annað lið en Liverpool og Arsenal því það
var svo mikið af leiðinlegum mönnum sem héldu með þeim,“ segir Gísli. „Ég íhugaði að
halda með Norwich út af Justin Fashanu og Úlfunum af því að þeir voru með svo flott
nafn. En endaði hjá Tottenham af því að þeir spiluðu svo flottan bolta. Það hafa þeir
gert alla tíð síðan ef undanskilið er þetta tímabil undir Mourinho.“
Gísli rifjar upp marga góða Tottenhamleikmenn eins og Ossie Ardiles og Glenn
Hoddle. Á toppnum trónir hins vegar hinn rauðbirkni skoski framherji Steve Archibald.
Archibald spilaði einmitt í minnisstæðasta leik Gísla, endurteknum bikarúrslitaleik
árið 1981 gegn Manchester City sem endaði 32 fyrir Spurs. „Í ljósi þess sem seinna
gerðist er sætt að muna eftir sigri gegn City,“ segir Gísli.
Eins og vanalega byggjast upp miklar væntingar fyrir tímabilið en Gísli segist reyna
að stilla þeim í hóf. Hann segist geta verið býsna sáttur með 6. sætið og spáir hann
Chelsea titlinum í ár. Helsta spurningin varðandi Tottenham er hvar framherjinn Harry
Kane muni spila á tímabilinu. „Vonandi verður hann bara hjá Grindvíkingum,“ segir
Gísli með þjósti.
Vont að komast ekki á völlinn
Akureyringurinn Sigfríð Ingólfsdóttir er óneitanlega einn mesti aðdáandi Arsenal á
Íslandi enda stundum kölluð Arsenalkonan. Hún hefur stutt liðið í fjörutíu ár og séð
það lyfta ófáum dollum. „Mér fannst þetta fallegasta nafnið sem var til í enskunni,“
segir Sigfríð, aðspurð um hvers vegna hún hafi valið Arsenal.
Bukayo Saka er hennar maður í liðinu núna en Thierry Henry sá besti allra tíma. Hún
sér ennþá eftir þjálfaranum Arsene Wenger sem fór árið 2018. Sigfríð hefur yfirleitt
farið tvisvar til þrisvar á ári til Englands til að sjá Arsenal spila. „Nú er allt stopp,“ segir
hún.
„Þetta tímabil verður ekki nógu gott. Þeir kaupa enga almennilega menn og létu
besta markmanninn fara,“ segir Sigfríð. „Þeir enda í 6. eða 7. sæti. Ég held að United
taki þetta núna.“
Stöðugleikann hefur vantað
Einar Hermannsson, formaður SÁÁ, byrjaði ekki að halda með Chelsea út af Eiði Smára
Guðjohnsen eða peningum Romans. Það var ítalski galdrakarlinn Gianfranco Zola sem
dró hann að fyrir kvartöld síðan.
Hugurinn þarf ekki að leita langt aftur til þess að finna minnisstæðasta leikinn, en
það er úrslitaleikur meistaradeildarinnar í vor þegar Chelsea lagði Manchester City 10.
„Það sem ég sakna er stöðugleiki og ég vona að Thomas Tuchel fái frið til að byggja
lið. Það hafa verið 10 þjálfarar á síðustu 10 árum,“ segir Einar. „Ég held að Chelsea endi
að minnsta kosti í topp þremur í vetur og gæti vel unnið titilinn. Ef ekki þá tekur Liver
pool þetta.“
Þrettán ára með teppi yfir hausnum
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, var ekki
nema smágutti árið 1985 þegar hann heillaðist
af Everton. Þá voru liðið Englandsmeistari, með
kempur eins og Peter Reid, Trevor Steven og
Neville Southall innanborðs. Hinn skoski Duncan
Ferguson, sem lék síðar með liðinu, er þó í mestu
uppáhaldi.
Í nokkur skipti hefur Everton daðrað við fallið.
Þórður man hvað best eftir leik árið 1994 þegar
Everton lenti 02 undir gegn Wimbledon, en vann
32 og bjargaði sér ævintýralega frá falli. „Það var
mjög flókið og taugatrekkjandi að vera þrettán ára
harður stuðningsmaður með falldrauginn hang
andi yfir sér,“ segir Þórður. „Ég horfði á leikinn í 14
tommu fermingarsjónvarpi og var eiginlega allan
leikinn með teppi yfir hausnum.“
Everton hefur siglt lygnari sjó síðari ár, en sjald
an blandað sér í toppbaráttuna. Í eitt skipti komst
það í meistaradeildina en datt þá út í undankeppn
inni. „Þetta er saga Everton í hnotskurn. Eitt skref
áfram en tvö aftur á bak,“ segir Þórður.
„Ég sé mjög svipaða stöðu á þessu tímabili og
því síðasta,“ segir Þórður, en þá hafnaði liðið í 10.
sæti og býst hann við sigri City enn á ný. „Sá bolti
sem Everton spilaði undir lok síðasta tímabils var
einhver sá versti sem ég hef séð. Nýir leikmenn fá
blóðið ekki til að renna og mjög blendnar tilfinn
ingar að sjá Rafa Benitez taka við liðinu.“
Aðspurður segir Þórður helst ríginn við Liver
pool skipta mestu máli. „Þegar þú heldur með liði
sem vinnur aldrei neitt, áttu aðeins tvennt. Annars
vegar þórðargleðina þegar Liverpool gengur illa og
hins vegar tálvon um að hlutirnir verði einhvern
tímann betri. Annars væri þetta óbærilegt.“
Gísli hefur
alltaf verið
hrifinn af
þeim bolta
sem Totten
ham spilar, ef
frá eru talin
Mourinho
árin.
Helgin 25LAUGARDAGUR 14. ágúst 2021 FRÉTTABLAÐIÐ