Fréttablaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 61
Sema á Old Trafford árið 2011. Sigfríð er ekki kölluð Arsen­ al­konan fyrir ekki neitt. FRÉTTABLAÐIÐ/ AUÐUNN Einar elur barna­ börnin Bjart Frey og Arabellu Sigrúnu vel upp. Þórður er sennilega sá eini sem á Phil Neville­treyju. United verða meistarar „Það er orðið erfiðara en áður að spá fyrir um boltann þar sem hinir ótrúlegustu hlutir gerast, en ég held að þetta verði gott tímabil fyrir okkur,“ segir Sema Erla Serdar, mann­ réttindafrömuður og aðdáandi Manchester United. „Ég bind miklar vonir við liðið í ár og sérstaklega við leikmenn eins og Rashford, innan vallar sem utan. 2022 verður árið sem bikarinn skilar sér aftur á Old Trafford eftir alltof langa fjar­ veru.“ Sema hefur stutt rauðu djöflana frá því hún var barn og sjálf í boltanum. Hún segist ekki hafa haft neitt val á sínum tíma. Henni var einfaldlega kennt að halda með United. „Minnisstæðasti leikurinn minn er án efa Manchester Unit ed gegn Chelsea sem ég sá ein á Old Trafford árið 2011. Ég bjó í Edinborg á þeim tíma og ferðaðist ein til Manchester til að fara á leikinn sem United vann og fór þar með í undanúrslit meistaradeildarinnar,“ segir hún. „Annars er úrslitaleikurinn í meistaradeildinni gegn Bayern München árið 1999 líka ógleymanlegur.“ Hennar uppáhaldsleikmaður spilaði hins vegar aldrei fyrir United, en það er hinn portúgalski Luis Figo. Vill Kane til Grindavíkur Sjónvarpsmaðurinn Gísli Einarsson hefur stutt Tottenham Hotspur síðan á áttunda áratug síðustu aldar. „Ég varð að finna mér annað lið en Liverpool og Arsenal því það var svo mikið af leiðinlegum mönnum sem héldu með þeim,“ segir Gísli. „Ég íhugaði að halda með Norwich út af Justin Fashanu og Úlfunum af því að þeir voru með svo flott nafn. En endaði hjá Tottenham af því að þeir spiluðu svo flottan bolta. Það hafa þeir gert alla tíð síðan ef undanskilið er þetta tímabil undir Mourinho.“ Gísli rifjar upp marga góða Tottenham­leikmenn eins og Ossie Ardiles og Glenn Hoddle. Á toppnum trónir hins vegar hinn rauðbirkni skoski framherji Steve Archibald. Archibald spilaði einmitt í minnisstæðasta leik Gísla, endurteknum bikarúrslitaleik árið 1981 gegn Manchester City sem endaði 3­2 fyrir Spurs. „Í ljósi þess sem seinna gerðist er sætt að muna eftir sigri gegn City,“ segir Gísli. Eins og vanalega byggjast upp miklar væntingar fyrir tímabilið en Gísli segist reyna að stilla þeim í hóf. Hann segist geta verið býsna sáttur með 6. sætið og spáir hann Chelsea titlinum í ár. Helsta spurningin varðandi Tottenham er hvar framherjinn Harry Kane muni spila á tímabilinu. „Vonandi verður hann bara hjá Grindvíkingum,“ segir Gísli með þjósti. Vont að komast ekki á völlinn Akureyringurinn Sigfríð Ingólfsdóttir er óneitanlega einn mesti aðdáandi Arsenal á Íslandi enda stundum kölluð Arsenal­konan. Hún hefur stutt liðið í fjörutíu ár og séð það lyfta ófáum dollum. „Mér fannst þetta fallegasta nafnið sem var til í enskunni,“ segir Sigfríð, aðspurð um hvers vegna hún hafi valið Arsenal. Bukayo Saka er hennar maður í liðinu núna en Thierry Henry sá besti allra tíma. Hún sér ennþá eftir þjálfaranum Arsene Wenger sem fór árið 2018. Sigfríð hefur yfirleitt farið tvisvar til þrisvar á ári til Englands til að sjá Arsenal spila. „Nú er allt stopp,“ segir hún. „Þetta tímabil verður ekki nógu gott. Þeir kaupa enga almennilega menn og létu besta markmanninn fara,“ segir Sigfríð. „Þeir enda í 6. eða 7. sæti. Ég held að United taki þetta núna.“ Stöðugleikann hefur vantað Einar Hermannsson, formaður SÁÁ, byrjaði ekki að halda með Chelsea út af Eiði Smára Guðjohnsen eða peningum Romans. Það var ítalski galdrakarlinn Gianfranco Zola sem dró hann að fyrir kvartöld síðan. Hugurinn þarf ekki að leita langt aftur til þess að finna minnisstæðasta leikinn, en það er úrslitaleikur meistaradeildarinnar í vor þegar Chelsea lagði Manchester City 1­0. „Það sem ég sakna er stöðugleiki og ég vona að Thomas Tuchel fái frið til að byggja lið. Það hafa verið 10 þjálfarar á síðustu 10 árum,“ segir Einar. „Ég held að Chelsea endi að minnsta kosti í topp þremur í vetur og gæti vel unnið titilinn. Ef ekki þá tekur Liver­ pool þetta.“ Þrettán ára með teppi yfir hausnum Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, var ekki nema smágutti árið 1985 þegar hann heillaðist af Everton. Þá voru liðið Englandsmeistari, með kempur eins og Peter Reid, Trevor Steven og Neville Southall innanborðs. Hinn skoski Duncan Ferguson, sem lék síðar með liðinu, er þó í mestu uppáhaldi. Í nokkur skipti hefur Everton daðrað við fallið. Þórður man hvað best eftir leik árið 1994 þegar Everton lenti 0­2 undir gegn Wimbledon, en vann 3­2 og bjargaði sér ævintýralega frá falli. „Það var mjög flókið og taugatrekkjandi að vera þrettán ára harður stuðningsmaður með falldrauginn hang­ andi yfir sér,“ segir Þórður. „Ég horfði á leikinn í 14 tommu fermingarsjónvarpi og var eiginlega allan leikinn með teppi yfir hausnum.“ Everton hefur siglt lygnari sjó síðari ár, en sjald­ an blandað sér í toppbaráttuna. Í eitt skipti komst það í meistaradeildina en datt þá út í undankeppn­ inni. „Þetta er saga Everton í hnotskurn. Eitt skref áfram en tvö aftur á bak,“ segir Þórður. „Ég sé mjög svipaða stöðu á þessu tímabili og því síðasta,“ segir Þórður, en þá hafnaði liðið í 10. sæti og býst hann við sigri City enn á ný. „Sá bolti sem Everton spilaði undir lok síðasta tímabils var einhver sá versti sem ég hef séð. Nýir leikmenn fá blóðið ekki til að renna og mjög blendnar tilfinn­ ingar að sjá Rafa Benitez taka við liðinu.“ Aðspurður segir Þórður helst ríginn við Liver­ pool skipta mestu máli. „Þegar þú heldur með liði sem vinnur aldrei neitt, áttu aðeins tvennt. Annars vegar þórðargleðina þegar Liverpool gengur illa og hins vegar tálvon um að hlutirnir verði einhvern tímann betri. Annars væri þetta óbærilegt.“ Gísli hefur alltaf verið hrifinn af þeim bolta sem Totten­ ham spilar, ef frá eru talin Mourinho­ árin. Helgin 25LAUGARDAGUR 14. ágúst 2021 FRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.