Fréttablaðið - 14.08.2021, Síða 70
kolbrunb@frettabladid.is
Ars longa, nýstofnuðu alþjóðlegu
samtímalistasafni staðsettu á
Djúpavogi, hefur borist listaverka-
gjöf tuttugu og sjö listaverka eftir
myndlistarmanninn Sigurð Guð-
mundsson. Öll verkin má finna á
sýningu Sigurðar, Alheimurinn er
ljóð, sem opnuð var í Bræðslunni á
Djúpavogi 10. júlí, en henni lýkur nú
á sunnudag. Sýningin er sú síðasta
sem haldin er í Bræðslunni, eftir
átta ára samfellt sýningahald.
Verkin sem tilheyra listaverka-
gjöf Sigurðar spanna meira en 50
ára tímabil af ferli hans. Samanlagt
verðmat verkanna er rúmar 125
milljónir króna. Ars longa samtíma-
listasafn hefur því eignast stærstu
safneign af verkum Sigurðar á
landsvísu og mörg þeirra talin lykil-
verk í ferli listamannsins. Aðeins
Stedelijk Museum í Amsterdam sem
á fimmtíu og sjö verk eftir hann, á
stærri safneign af verkum Sigurðar.
Sigurður Guðmundsson, sem
er ásamt Þór Vigfússyni stofnandi
hins nýja safns, segist vona að innan
fárra ára verði þessi safneign orðin
lítil innan um ný aðföng af lista-
verkum eftir samtímalistamenn,
jafnt erlendra sem íslenskra lista-
manna. Listaverkagjöfin verður
flutt að lokinni sýningu í ný húsa-
kynni Ars longa sem mun verða við
voginn á Djúpavogi. ■
Listaverkagjöf Sigurðar
Verkið
Illuminat ed
Poem frá árinu
2019.
Samanlagt verðmat
verkanna er rúmar 125
milljónir króna.
TÓNLIST
Klassískir tónleikar
Verk eftir Schumann, Schubert
og Brahms
Flytjendur: Harpa Ósk
Björnsdóttir, Jara Hilmarsdóttir,
Romain Þór Denuit og Símon Karl
Sigurðarson Melsteð
Kaldalón í Hörpu
miðvikudaginn 11. ágúst
Jónas Sen
Einu sinni á tónleikum í fínni
veislu þar sem ráðherra var meðal
gesta gerðist neyðarlegur atburður.
Undirleikaranum mistókst að fletta
nótnablaði, sem flaug upp í loft og
hafnaði svo á gólfinu. Hann kunni
ekki lagið utan að og gerði það sem
má alls ekki, stoppaði í miðju kafi.
Það næsta sem veislugestirnir sáu
var afturendinn á honum þegar
hann reyndi að veiða nótnablaðið
undan píanóinu.
Á tónleikum í Kaldalóni í Hörpu
á miðvikudagskvöldið voru f lett-
ingarnar hins vegar pottþéttar.
Nýjustu tækni var beitt, f lettarinn
sat í horninu á sviðinu og stjórnaði
spjaldtölvu píanóleikarans þaðan.
Enginn þurfti að elta nótnablöð um
sviðið.
Á dagskránni var aðallega tónlist
eftir Robert Schumann, en í lokin
var þó f lutt verk eftir Franz Schu-
bert. Flytjendur voru allir langt
komnir nemendur, þau Harpa Ósk
Björnsdóttir sópran, Jara Hilmars-
dóttir mezzósópran, Romain Þór
Denuit píanóleikari og Símon Karl
Sigurðarson Melsteð klarínettu-
leikari.
Ólgandi og full af lífi
Tónleikarnir báru yfirskriftina Þá
mun ég gleðjast og gráta. Meðal
annars voru Fantasiestücke op.
73 eftir Schumann á dagskránni,
fyrir klarínettu og píanó. Tónlistin
var ólgandi og full af lífi, tilfinn-
ingarnar ávallt miklar. Schumann
þjáðist af geðhvarfasýki og samdi
f lest verka sinna í geðhæð. Túlk-
unin hér var sannfærandi, hún var
hömlulaus, akkúrat eins og hún átti
að vera. Laglínurnar voru fagrar og
flæðandi, hástemmdar og innilegar.
Tæknilegar hliðar voru fínar, sam-
spilið nákvæmt og gott jafnvægi á
milli hljóðfæranna.
Jara stóð sig líka sig vel. Hún söng
sex lög úr Ást og ævi konu eftir Schu-
mann. Söngurinn var vandaður og
samkvæmt bókinni, en engu að
síður var hann dálítið nemenda-
legur. Jara hefur ekki náð fullum
þroska sem listakona, túlkun
hennar var of varfærnisleg og með-
vituð. En ég minni á að hún er enn
að læra og hefur auðheyrilega mikla
hæfileika.
Mögnuð rödd
Harpa sýndi meiri tilþrif í Hirðinum
á hamrinum eftir Schubert. Röddin
hennar er mögnuð, alls konar stökk
upp og niður tónstigann voru
glæsileg. Hver einasti tónn var mót-
aður af kostgæfni. Hröð tónahlaup
voru meitluð, jöfn og tær. Radd-
hljómurinn virkaði þó ögn harður;
söngkonan á enn eftir að klæða
rödd sína silki, en hún er greinilega
bráðefnileg.
Söngkonurnar tvær sungu þrjú
lög úr Spænskum söngvaleik eftir
Schumann og gerðu það ágætlega.
Heildarmyndin var engu að síður
nokkuð f löt, það vantaði leikinn
í túlkunina. Minnist maður orða
tónskáldsins um píanóleik: „Sá sem
ekki leikur við píanóið, leikur ekki á
það.“ Sama má segja um sönginn. Ef
leikurinn er ekki fyrir hendi gerist
fátt og svo var því miður hér. Helst
var það í aukalagi eftir Brahms, um
kappsamar systur, sem samsöng-
urinn náði f lugi. Þar var hann svo
sannarlega gneistandi og snarpur. ■
NIÐURSTAÐA: Ágætur söngur
og hljóðfæraleikur, skemmtileg
tónlist.
Þá mun ég gleðjast og gráta
Flytjendur á tónleikunum voru allt langt komnir nemendur.
PORSCHE NOTAÐIR BÍLAR
Skoðaðu úrvalið á benni.is
Krókhálsi 9
Sími: 590 2000
Virka daga 9 -18
Laugardaga 12 - 16
Upplifðu sanna ökugleði...
TMD69
Porsche Panamera 4 E-Hybrid
DAA16
Porsche 911 Carrera
OGR18
Porsche Cayenne S E-Hybrid
THP39
Porsche Cayenne S E-Hybrid
Hér er dásamleg bifreið á ferð, allt í senn sportlegur
ogelegant! heil-leðraður, næs! Sportpústker með
svörtum stútum,hiti í fram- og aursætum sem og
stýri, panorama glerþak,14 stillinga þæginda-
sportsæti svo eitthvað sé nefnt. Geðveikur bíll
Verð: 12.990.000 kr.
Nýskráður 20.09.2017 | Ekinn 25.000 km.
Einstakt tækifæri. Helsti útbúnaður: 19" Carrera S
felgur, Sport Chrono pakki, sóllúga, BOSE hljómker,
Bi-Xenon aðalljós og að sjálfsögðu, beinskiptur.
Glæsilegur og vel hirtur bíll.
Verð: 8.490.000 kr.
Nýskráður 01.01.2004 | Ekinn 85.000 km.
Ljómandi fallegur Cayenne E-Hybrid. Helsti
útbúnaður: stillanleg lopúðaöðrun, rafdrinn
dráttarkrókur, hiti í framsætum og stýri, litað gler og
hugguleg viðarinnrétting til að toppa þetta.
Verð: 7.490.000 kr.
Nýskráður 20.07.2016 | Ekinn 79.000 km.
Lítið ekinn og ottur Cayenne E-Hybrid. Helsti
útbúnaður: stillanleg lopúðaöðrun, dráttarkrókur
rafmagns, hiti í framsætum, lyklalaust aðgengi,
skyggðar rúður, arlægðarskynjarar og BOSE
hljómker svo eitthvað sé nefnt.
Verð: 7.490.000 kr.
Nýskráður 12.07.2016 | Ekinn 57.000 km.
Birt m
eð fyrirvara um
m
ynd- og textabrengl
34 Menning 14. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 14. ágúst 2021 LAUGARDAGUR