Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 74
hagvangur.is
Kraftur leitar að drífandi og skemmtilegum einstaklingi í 80% - 100% starf fræðslu- og
hagsmunafulltrúa félagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á fræðslustarfi félagsins
• Hagsmunagæsla fyrir unga krabbameinsgreinda einstaklinga og aðstandendur
• Skipulagning og utanumhald um fræðslustarf félagsins
• Umsjón með fræðsluvef og fræðslu á samfélagsmiðlum
• Umsjón með fræðslustarfi hvers kyns útgáfu á vegum Krafts
• Almenn upplýsingagjöf til félagsmanna
• Önnur tilfallandi verkefni
Umsóknarfrestur er til og með 22. ágúst nk.
Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Atli Magnússon, ráðgjafi hjá Hagvangi,
hlynur@hagvangur.is
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Mjög gott vald á íslensku í bæði ræðu og riti krafa
• Góð enskukunnátta
• Þekking og reynsla af hagsmuna- og fræðslumálum kostur
• Góð almenn tölvufærni, reynsla af samfélagsmiðlum og vefumsjón kostur
• Hjarta fyrir málstaðnum
• Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Skilvirkni og nákvæm vinnubrögð
• Mjög góð samvinnu- og samskiptahæfni
Kraftur – Fræðslu- og hagsmunafulltrúi
Svokallaðir bumbuhópar hafa
verið vinsælir á Facebook
síðustu árin, en þar koma
saman konur sem eiga von á
sér um svipað leyti. Nokkrir
bumbuhópar tóku sig saman
og söfnuðu fyrir veglegum
glaðningi til að færa ljós-
mæðrum í þakklætisskyni
fyrir óeigingjarnt starf.
Bumbuhópar hafa verið vinsælir
síðustu árin, en þar hópast saman
konur sem eiga von á sér í sama
mánuði og veita hver annarri
stuðning, ráð og félagsskap. Júlí-
og júní-bumbuhópana langaði að
sýna þakklæti sitt til ljósmæðra
á Landspítalanum, Sjúkrahúsinu
á Akureyri og Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja í verki og hófu söfnun
til að geta fært þeim ýmislegt
skemmtilegt til að létta andann og
gleðja. Þær Ásta Sóley Gísladóttir,
Hrefna Hrund Erlingsdóttir og
Kristín Freyja Óskarsdóttir tilheyra
bumbuhópunum.
„Ég var að horfa á kvöldfréttir í
byrjun júlí þegar sonur minn var
nokkurra daga gamall, þar sem
verið var að ræða álagið sem ljós-
mæður hafa þurft að takast á við í
þessum metfjölda fæðinga sem er í
ár. Mér varð hugsað til þess hversu
vel ljósmæðrunum á fæðingardeild
Landspítalans tókst að hlífa mér
fyrir því að upplifa hversu mikið
álagið er á þeim í raun og veru. Vit-
andi hvað er mikið að gera hjá þeim
langaði mig að gleðja þær með ein-
hverju sem myndi hjálpa þeim að
slaka á,“ segir Hrefna Hrund.
„Ég var búin að vera hugsa hvað
væri hægt að gera fyrir þessar yndis-
legu ljósmæður á þessum erfiðu
tímum en það eina sem mér datt í
hug var að færa þeim köku, svo kom
snillingurinn hún Hrefna Hrund
með þessa hugmynd sem mér leist
mjög vel á,“ bætir Ásta Sóley við.
„Hugmyndin kom frá þeim en
okkur sem erum í bumbuhópunum
sem fæddu börn á Sjúkrahúsinu á
Akranesi langaði að gera einnig eitt-
hvað fyrir þessar frábæru ljósmæð-
ur sem hjálpuðu börnunum okkar
að koma í heiminn. Ljósmæðurnar
voru mjög ánægðar með gjafirnar,“
segir Kristín.
Bumbuhópar
gleðja ljósmæður
með fallegu framtaki
Hrefna Hrund
og Ásta Sóley
fóru með
gjafirnar á Land-
spítalann fyrir
hönd júlí- og
júní-bumbu-
hópanna.
MYND/AÐSEND
Kristín er meðlimur í bumbuhóp
kvenna sem fæddu á Akranesi.
Nokkrar af þeim tóku sig til og gáfu
ljósmæðrum þar fallegan pakka.
Eiga skilið dekur
Pakkarnir voru veglegir og inni-
héldu meðal annars hátalara, herða-
og fótanuddtæki, handakrem, kaffi
og sælgæti.
„Ljósmæður vinna gífurlega
mikilvægt starf, þær eru með okkur
og styðja okkur í gegnum bestu en
á sama tíma erfiðustu lífsreynslu
sem maður gengur í gegnum. Þær
áttu svo innilega smádekur skilið,“
segir Ásta Sóley.
„Þær eru með manni og aðstoða
mann þegar maður er að ganga í
gegnum eitt það stærsta sem maður
gerir í lífinu, að fæða barn í heim-
inn,“ segir Kristín.
„Það er svo mikilvægt að fólk fái
að heyra þegar það gerir vel og þær
eiga skilið að finna þakklæti okkar
í verki, sérstaklega þegar aðstæð-
urnar eru eins og þær eru í dag. Ég
held persónulega að þeir sem hafa
þurft á aðstoð ljósmæðra að halda
átti sig fyllilega á mikilvægi þeirra,
einhverra hluta vegna þurfa þær
samt að berjast fyrir betri launum
og bættu star fsumhver f i, svo
kannski gera það ekki allir,“ segir
Hrefna Hrund.
Góður stuðningur
Hvert er mikilvægi bumbuhópa,
finnið þið mikinn stuðning þar?
„Við höfum allar nýtt okkur
aðstoð hver frá annarri held ég, en
að vera í slíkum hóp getur verið
mjög hjálplegt þegar maður er í
vafa eða hefur spurningar, eða jafn-
vel til að deila fróðleik með öðrum
mæðrum. Þarna finnur maður aðrar
mæður sem eru að upplifa svipaða
hluti og maður sjálfur og getur
maður fundið mikla huggun í því,“
segir Kristín.
„Já ég finn fyrir miklum stuðn-
ingi, mér finnst gott að geta talað
við aðrar konur sem eru að ganga
í gegnum það sama og ég og fengið
og deilt ráðum. Ég hef eignast mjög
góðar vinkonur út frá bumbuhóp-
um,“ segir Ásta Sóley.
„Það er mjög gott að hafa þetta
aðgengi að öðrum sem eru að ganga
í gegnum sömu hluti á sama tíma
og maður sjálfur. Að geta bæði deilt
reynslu og þegið ráð varðandi allt
mögulegt, hvort sem það tengist
foreldri eða barni. Ég hef myndað
tengsl við frábæran kjarna stelpna
sem ég hlakka til að eiga samskipti
við sem allra lengst og fylgjast með
okkur og börnunum takast á við
lífið áfram,“ segir Hrefna Hrund.
For maðu r Ljósmæðra félags
Íslands, Unnur Berglind Friðriks-
dóttir, vill koma á framfæri innilegu
þakklæti fyrir hönd ljósmæðranna
fyrir þetta fallega framtak. ■
Ég held persónulega að
þeir sem hafa þurft á
aðstoð ljósmæðra að
halda átti sig fyllilega á
mikilvægi þeirra,
einhverra hluta vegna
þurfa þær samt að
berjast fyrir betri
launum og bættu
starfsumhverfi.
Hrefna Hrund.
Steingerður
Sonja Þórisdóttir
steingerdur
@frettabladid.is
38 Lífið 14. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 14. ágúst 2021 LAUGARDAGUR