Fréttablaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 76
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is n Lífið í vikunni 08.08.21 14.08.21 Stutt í fullorðinshúmorinn Sumarhópur Leikhópsins Lottu hefur ferðast um landið í sumar og sett upp leiksýningar fyrir börn. Alltaf er þó stutt í fullorðins­ húmorinn líka þannig að allir geti haft gaman af. Þjóðlagasamspil á KEX Hópur fólks hittist einn miðviku­ dag í hverjum mánuði á KEX og er með þjóðlagasamspil. Linus Orri er einn fjögurra sem halda utan um viðburðinn. Fjögurra stjörnu Feigðarflan Kvikmyndin The Suicide Squad féll vel í kramið hjá gagnrýnanda Fréttablaðsins og fékk heilar fjórar stjörnur. Myndinni er leikstýrt af James Gunn, sem tókst fantavel til. Nýtt lag frá Hudson Wayne Hljómsveitin Hudson Wayne gaf út lagið Khat í gær. Meðlimir sveitarinnar stefna á að gefa út lag þrettánda hvers mánaðar, sem enda svo á næstu breiðskífu þeirra. HÄSTENS VERSLUN FAXAFENI 5, REYKJAVÍK 588 8477 Rúmin eru framleidd með einstöku samspili handverks og hráefna þar sem hvergi eru gerðar málamiðlanir í gæðum náttúrulegra efna eða tíma við óþreytandi handverkið. Þú sérð það ekki en þú munt fi nna fyrir því. Allan sólarhringinn. Heimsæktu Hästens í Faxafeni eða pantaðu vörulistann á hastens.com. BETRI SVEFN BETRA LÍF Þegar þú vaknar í rúmi frá Hästens munt þú skilja virði þess að ná fullkomnum nætursvefni. Kristín Helga og Kristín Karó­ lína opna sýninguna Vinsam­ legast bíðið í MUTT galleríi í dag. Þær þurftu að snúa til Íslands úr námi erlendis vegna faraldursins. Þær fengu að fara inn í tóma flugstöð Kefla­ víkurflugvallar til að mynda fyrir verkið. steingerdur@frettabladid.is Í dag opna listakonurnar Kristín Helga Ríkharðsdóttir og Kristín Karólína Helgadóttir sýninguna Vinsamlegast bíðið í MUTT gall­ eríi við Laugaveg. Þær þurftu að fara heim til Íslands í faraldrinum en voru báðar í myndlistarnámi erlendis. Biðstaðan sem fylgdi far­ aldrinum varð þeim innblástur í listsköpuninni. „Við vorum báðar úti í masters­ námi í myndlist erlendis, ég í Banda­ ríkjunum og Kristín Karólína í Belg­ íu. Við þurftum svo báðar að snúa aftur heim út af Covid. Við ræddum mikið um þessa tilfinningu, að vera á nokkurs konar biðstofu, bara að bíða,“ segir Kristín Helga. „Biðstofa kom strax upp eins og rými eða fyrirbæri. Þetta var eitt­ hvað sem okkur langaði að vinna með. Sýningin hverfist um nokk­ urs konar biðstofu,“ segir Kristín Karólína. „Bæði metafóríska og fýsíska,“ bætir Kristín Helga við. „Sýningin er því búin að malla í þennan tíma. Þannig að þessi sýn­ ing sem hverfist um biðina þurfti líka að bíða,“ segir Kristín Karólína. Ákveðin heild Þær langaði mikið að vinna saman, þar sem faraldrinum fylgdi mikil einvera. „Við sóttum kraft hvor til ann­ arrar. Við hvöttum hvor aðra áfram til að vera ekki bara heima og bíða,“ segir Kristín Helga. Námið raskaðist og féll niður á köflum. „Þannig að við vorum alltaf að panta flug sem þurfti svo að fresta. Flugvellir leika líka hlutverk á sýn­ ingunni,“ segir Kristín Karólína. Sýningin saman stendur af ljós­ myndum, vídeóverkum og inn­ setningum. „Við sjáum þetta sem ákveðna heild. Þú gengur inn og þetta virkar eins og biðstofa. Ljósmyndirnar á veggjunum minna á auglýsingaplak­ öt sem eru oft á veggjum á biðstof­ um. Þær renna svolítið saman inn í vídeóverkið,“ segir Kristín Karólína. Nöfnurnar kynntust í Berlín fyrir fjórum árum síðan. „Við höfum tvisvar sinnum áður sýnt saman, fyndið að það virðist alltaf koma upp á tveggja ára fresti. Fyrst vorum við í Berlín, síðan Amsterdam og núna erum við að sýna hér. Við vinnum vel saman,“ segir Kristín Karólína. „Við erum mjög gott teymi. Við fórum á Keflavíkurflugvöll þegar hann var alveg tómur, fengum að taka upp þar,“ segir Kristín Helga. „Af því við vorum tvær saman þá vorum við miklu duglegri að bara kýla á hlutina. Þá er maður ekki að efast, heldur bara gerir það. Maður er með meiri kjark í að vaða bara áfram og spyrja hvort við megum fá að láni hótelherbergi, húsgögn eða fara inn á tóman flugvöllinn,“ segir Kristín Karólína. Tómur flugvöllur Þær segja að það hafi komið þeim virkilega að óvart hvað allir tóku vel í hugmyndir þeirra og voru boðnir og búnir til að hjálpa. „Við fengum eiginlega já við öllu sem við spurðum um,“ segir Kristín Helga. „Maður bjóst einhvern veginn alltaf við að fólk segði nei. Við hugs­ uðum að við værum aldrei að fara að fá að taka upp á f lugvellinum. Svo fengum við jákvætt svar,“ segir Kristín Karólína. „Það voru bara eitt eða tvö flug á skjánum, sem var mjög skrýtið. Það var enginn þarna. Hann Kristján hjá Isavia sagði að ef við ætluðum að taka myndir af einhverju fólki á vellinum þá væri það sko ekki að fara að gerast og hló,“ segir Kristín Helga. Kristín Karólína var að klára námið sitt en Kristín Helga stefnir á að fara aftur út til New York til að klára námið sitt þar. Sýningin verður opnuð í dag klukkan 16.00. MUTT gallerí er við Laugaveg 48. n Biðin varð að innblæstri Kristín Karó­ lína og Kristín Helga hafa áður unnið saman að tveimur sýningum, sú fyrri var í Berlín og hin síðari í Amsterdam. FRÉTTABLAÐIÐ/ ÓTTAR GEIRSSON Þær fengu leyfi til að mynda inni í tómri flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir sýninguna. MYND/AÐSEND Hann Kristján hjá Isavia sagði að ef við ætluðum að taka myndir af einhverju fólki á vellinum þá væri það sko ekki að fara að gerast og hló. Kristín Helga. 40 Lífið 14. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.