Fréttablaðið - 06.08.2021, Side 6
Viljum ekkert gera án
gestanna.
Júlíus Júlíusson, framkvæmda-
stjóri Fiskidagsins mikla.
Við erum ekki í þeirri
stöðu að þurfa að horfa
á Janssen eða ekkert.
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir,
staðgengill sóttvarnalæknis.
thorvaldur@frettabladid.is
NÁTTÚRUVERND Vísindamenn við
Leeds-háskóla koma til Íslands í
mánuðinum til að kortleggja víð-
erni landsins. Að verkefninu standa
innlend náttúrverndarsamtök.
Vísindamennirnir munu beita
alþjóðlegri aðferð sem hefur einnig
verið notuð til að kortleggja víðerni
í Skotlandi, fyrir Bandarísku skóg-
ræktina og Evrópusambandið.
Markmiðið er að stuðla að vit-
undarvakningu að sögn Finns
Ricart Andrasonar, eins skipuleggj-
enda. „Það er mikilvægt að skoða
þetta í ljósi þess að víðernum fer
fækkandi í heiminum. Ísland býr
yfir gersemi, sem miðhálendið er,
þar sem lítið er af mannvirkjum og
miklar óbyggðir. Þetta er eitthvað
sem við sem heimssamfélag erum
að tapa, og býr Ísland yfir fjársjóði
sem við gerum okkur ekki endilega
grein fyrir. Markmiðið er að sýna
Bretar kortleggja íslensku víðernin
Finnur Ricart
Andrason, einn
skipuleggjenda
verkefnisins.
Vísindamennirnir munu ferðast víða um miðhálendi Íslands. MYND/AÐSEND
fólki og fræða það um hversu ein-
stök þessi svæði eru.“
Finnur nefnir að nærri helmingur
villtasta svæðis Evrópu er á Íslandi,
eða um 43 prósent. Þá er kort-
lagning óbyggðra víðerna á Íslandi
lögbundin en bráðabirgðaákvæði í
náttúruverndarlögum kveður á um
að svo skuli gera. n
Íslensk stjórnvöld bjóða
umframbirgðir bóluefna til
ríkja sem þurfa á að halda.
Staðgengill sóttvarnalæknis
vonast til að ekki þurfi að
farga þeim birgðum af Jans-
sen sem til eru í landinu.
fanndis@frettabladid.is
COVID-19 Íslensk stjórnvöld munu
bjóða umframbirgðir, sem samið
hefur verið um, af bóluefnum Astra-
Zeneca, Moderna og Janssen til
annarra ríkja sem þurfa á þeim að
halda. Þetta segir Kamilla Sigríður
Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarna-
læknis.
„Við áttum stóra samninga við
Janssen og AstraZeneca, sem við
ætlum sem sagt að bjóða öðrum,“
segir Kamilla. Hún segir samning-
inn við Astra ekki hafa verið mjög
stóran en þó sé enn svolítið eftir af
honum. Janssen og AstraZeneca fari
til Covax, samstarfsverkefnis ríkja
um flutning bóluefna til landa sem
hafa ekki sjálf getað gert samninga
um bóluefni. Umframbirgðir af
Moderna fari sennilega til annarra
landa í Evrópu, sem ekki hafa náð
samningum um bóluefni en njóta
heldur ekki Covax-verkefnisins.
„Við höfum ekki nógu góð gögn
varðandi Janssen og Delta sérstak-
lega, en ef við horfum á það eða ekk-
ert bóluefni, þá teljum við að það sé
nú örugglega betra að fá Janssen
heldur en ekkert bóluefni,“ segir
Kamilla aðspurð um þá ákvörðun
að senda öðrum þjóðum bóluefni
sem við viljum ekki nota sjálf.
„Við erum ekki í þeirri stöðu að
þurfa að horfa á Janssen eða ekkert,
þannig að við gerum það sem við
getum til þess að hafa þau bóluefni
sem við teljum að nýtist okkur best
og veiti sem besta vörn,“ segir hún.
Þær bóluefnabirgðir sem boðnar
verða öðrum ríkjum eru þær sem
samið hefur verið um en hafa enn
ekki verið afhentar hingað til lands.
Stjórnvöld eiga hins vegar nokk-
urt magn Janssen-bóluefna á lager
sem ekki er hægt að senda annað.
„Það er ekki hægt að senda þá
skammta annað en þeir munu
sennilega nýtast okkur til þess að
bólusetja einstaklinga sem við
getum ekki tryggt að verði hér nógu
lengi til þess að fá seinni skammt.
Við munum ekki farga því, eða ég
vona að það komi ekki til þess að við
þurfum að farga. Það er með góðan
fyrningartíma þannig að svo lengi
sem við geymum það við viðeigandi
aðstæður þá mun það nýtast okkur
fram á næsta ár,“ segir Kamilla.
Á upplýsingafundi almannavarna
í gær var Kamilla spurð um afstöðu
íslenskra stjórnvalda til beiðni
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar til ríkja um að þau bíði með
örvunarskammta til að tryggja
bóluefni fyrir þau ríki sem styttra
eru komin með bólusetningar.
„Þetta er klárlega mjög réttmætt
og virðingarvert sjónarmið, við
þurfum hins vegar líka að horfa á
að ef að við höfum tól í höndunum
til að verja okkar íbúa þá er það
fyrsta skylda okkar,“ sagði Kamilla.
Þegar væri búið að ákveða að gefa
bóluefni, sem gerðir hafi verið
samningar um, í samstarf um bólu-
efni til annarra landa þar sem það
nýtist betur. „Við munum samt sem
áður setja íslensku þjóðina og okkar
innviði í forgang því við bara getum
ekki réttlætt annað,“ sagði Kamilla
á upplýsingafundinum. n
Öðrum ríkjum boðið að fá
bóluefni önnur en frá Pfizer
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir er staðgengill sóttvarnalæknis. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Mmm ...
Hvernig hljómar
djammborgari
á grillinu?
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
svavamarin@frettabladid.is
NORÐURLAND Fiskidagurinn mikli á
Dalvík átti að fara fram um helgina
en eins og f lestum öðrum stórhá-
tíðum hefur honum verið af lýst
vegna kórónaveirufaraldursins.
Þetta hefði verið í tuttugasta skipti
sem hún væri haldin.
„Það er hægt að segja þetta þann-
ig að þetta er sorglegt fyrir fólkið
og þá sem standa í þessu, þetta er
orðin hefð og svo allt í einu slegið á
puttana. Það var sérstaklega sorg-
legt í fyrra þegar við fundum að við
gátum ekki gert það sem við erum
vön að gera,“ segir Júlíus Júlíusson,
framkvæmdastjóri Fiskidagsins
mikla.
Hann segir þetta vera öðruvísi
núna þar sem þau eru reynslunni
ríkari og ákvörðunin um að aflýsa
hátíðinni tekin snemma. Ekkert
sambærilegt verður gert í bænum
í staðinn og ekkert í nafni hátíðar-
innar.
„Þessu er aflýst úr þessu og viljum
við ekki hópa neinu fólki saman,“
segir Júlíus. „Ég veit svo sem ekk-
ert hvað fólk gerir, hvort það fái sér
kannski fiskisúpu heima hjá sér, en
það er ekkert í gangi. Hátíðin er ekki
bara okkar heldur allra okkar gesta
sem hafa komið á hátíðina í 19 ár og
aðrir í 10-15 ár. Viljum ekkert gera
án gestanna.“ n
Fiskisúpulaust á Dalvík
Fiskidagurinn mikli hefur verið ein af
fjölmennustu hátíðum sumarsins.
MYND/EINAR ÓLASON
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
6 Fréttir 6. ágúst 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ