Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.08.2021, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 06.08.2021, Qupperneq 20
Titillinn tengist sýningar- tímanum ágústmánuði, sem er tími litafegurðar í íslenskri náttúru og tími uppskeru sem sýningin endurspeglar á sinn einstaka hátt. Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigurbjörg Dan Pálmadóttir Kirkjulundi 6, Garðabæ, lést þriðjudaginn 27. júlí sl. Útför hennar mun fara fram í kyrrþey. Pálmi Á. Magnússon Shelley H. Magnússon Garðar H. Magnússon Guðrún Guðlaugsdóttir Kjartan P. Magnússon Helga Hrönn Þórsdóttir Dana Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Guðrún Þórðardóttir Miðleiti 7, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn 3. ágúst. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 23. ágúst kl. 15.00. Gunnar Helgi Guðmundsson Ragnheiður Narfadóttir Björn Guðmundsson Margrét Héðinsdóttir Guðmundur Þórður Fjóla Ósland Hermannsdóttir Guðmundsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, Sigurður Kristjánsson vélstjóri, Kópavogstúni 9, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi þann 13. júlí. Útför fer fram í Fossvogskirkju mánudaginn 9. ágúst klukkan 13.00. Laufey Aðalsteinsdóttir Aðalsteinn Sigurðsson Sigrún Agnes Rúnarsdóttir Andri Dagur, Úlfur Ingi, Helga Karen Faðir okkar, tengdafaðir og afi, Kristinn Þórir Einarsson fyrrverandi kennari og skólastjóri, Melgerði 13, Reyðarfirði, lést á Hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð, Eskifirði, 2. ágúst. Útför auglýst síðar. Einar Már Kristinsson Júlíana Haraldsdóttir Ragnheiður K. Kristinsdóttir Gunnlaugur E. Ragnarsson Margrét St. Kristinsdóttir Vilbergur Prebensson Tómas Örn Kristinsson Elísabet Tómasdóttir Kristinn I. Kristinsson Helle Kit Hansen Sæbjörg S. Kristinsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Þorleifur Sigurlásson pípulagningameistari frá Reynistað í Vestmannaeyjum, lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum laugardaginn 31. júlí. Útförin fer fram í Landakirkju, föstudaginn 13. ágúst. Streymt verður frá athöfninni á vef Landakirkju, landakirkja.is Aðalheiður Óskarsdóttir Karen Tryggvadóttir Kristín Ósk Þorleifsdóttir Jens Guðjón Einarsson Kári Þorleifsson Agnes Einarsdóttir Hafþór Þorleifsson Helga Hauksdóttir Erna Þorleifsdóttir Valdimar Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn. Síðsumarstemming er yfirskrift sýningar myndlistarhópsins Mosa sem opnuð verður í Lista- sal Mosfellsbæjar síðdegis í dag. Þrett án af fimmtán félögum hópsins eiga þar málverk. gun@frettabladid.is „Eftir ár í greipum Covid-19 faraldurs og samkomutakmarkana náði hópurinn vopnum sínum í vor og ákvað að ráð- ast á garðinn þar sem hann er hæstur. Því keyptum við öll striga af stærðinni 100x80 en myndefni valdi hvert fyrir sig. Íslensk náttúra reyndist f lestum vera hugleikin,“ segir Elísabet Guð- mundsdóttir, talsmaður myndlistar- hópsins Mosa, sem er ásamt fleirum að leggja lokahönd á uppsetningu sýningar í Listasal Mosfellsbæjar þegar ég heyri í henni. Sú sýning verður opnuð í dag, föstudag, milli klukkan 16 og 18. Hún nefnist Síðsumarstemming. „Titillinn tengist sýningartímanum ágústmánuði, sem er tími litafegurðar í íslenskri náttúru og tími uppskeru sem sýningin endurspeglar á sinn einstaka hátt,“ segir Elísabet. Hún tekur fram að stóru málverkin séu á tveimur veggjum en á hinum séu fjölbreytt verk í mis- munandi stærðum. Mosi var stofnaður árið 2014. Í hópn- um eru frístundamálarar sem Elísabet segir hittast vikulega nema yfir hásum- arið og vinna frá klukkan 18 til 21.30. „Við mætum hvert með okkar verkefni og málum frá eigin brjósti. Höfum líka unnið með þemu eins og villt dýr, fjöl- menningu og mat. Erum með aðstöðu í frábærri myndlistarstofu Framhalds- skóla Mosfellsbæjar,“ lýsir hún og segir stofnendurna hafa hist upphaf lega á námskeiði í Myndlistarskóla Mosfells- bæjar, síðan hafi fjölgað í hópnum og nú séu þar fimmtán. „Flest okkar eru úr Mosfellsbæ en líka Kef lvíkingur, Hafnfirðingur, Kópavogsbúi og Reyk- víkingur.“ Starfsemin er greinilega öf lug hjá félögum í Mosa og Elísabet segir þá alltaf að vinna að því að bæta sig. „Við höfum fengið myndlistarfólk eins og Önnu Gunnlaugsdóttur til okkar með fræðslu nokkrum sinnum. Þorri Hrings- son hefur líka komið tvisvar á vetri með tilsögn og innblástur. Svo höfum við haldið nokkrar sýningar.“ n Hittast vikulega og sinna listinni Anna Kristín Einarsdóttir, Gunnar St. Gunnarsson, Þorgerður S. Guðmundsdóttir, Hólmfríður Jóhannesdóttir, Oddur Bjarni Thorarensen, Gurli Geirsson, Baldvin Viðars­ son, Elísabet Guðmundsdóttir og Ásvaldur Kristjánsson, eru meðal félaga í Mosa og eiga öll verk á sýningunni nema Oddur Bjarni. MYND/AÐSEND Sýnendur og aðrar upplýsingar n Alma Björg Baldvinsdóttir n Anna Kristín Einarsdóttir n Ásvaldur Kristjánsson n Baldvin Viðarsson n Elísabet Guðmundsdóttir n Guðmundur Rúnar Guðbjarnar­ son n Gunnar St. Gunnarsson n Gurli Geirsson n Hólmfríður Jóhannesdóttir n Kristín Sverrisdóttir n Louisa Sigurðardóttir n Svafa Kristín Pétursdóttir n Þorgerður S. Guðmundsdóttir Listasalur Mosfellsbæjar er inn af Bókasafni Mosfellsbæjar og gengið er um sama inngang. Sýningin er opin milli klukkan 12 og 18 virka daga og milli 12 og 16 á laugardögum. Síðasti sýningardagur er 3. septem­ ber. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin. Gott hjólastólaaðgengi er að salnum. 1759 Björn Halldórsson í Sauðlauksdal fær sendar útsæðis­ kartöflur frá Kaupmannahöfn og setur niður í ker. Þó er jafnan miðað við að hann hafi hafið kartöfluræktun 1760 og þá fengið nýtt útsæði. 1907 Lárus Rist fimleikakennari vinnur það afrek að synda yfir Oddeyrarál. Leggur af stað alklæddur og í sjóklæðum og vaðstígvélum en tínir fötin af sér á leiðinni. Markmiðið er að sýna fram á að sjómenn hafi gagn af sundkunnáttu. 1933 Steinn Steinarr skáld og fjórir aðrir hljóta dóm fyrir að skera niður fána við hús þýska vararæðis­ mannsins á Siglufirði. 1945 Bandaríkjamenn varpa kjarnorku­ sprengju á japönsku borgina Hiroshima og farast þar allt að 180.000 manns. 1960 Steingrímsstöð, 26 megavatta virkjun í Soginu, er gangsett við hátíð­ lega athöfn. 1965 Hljómplata Bítlanna Help! kemur út í Bret­ landi. Merkisatburðir TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 6. ágúst 2021 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.