Fréttablaðið - 14.07.2021, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 14.07.2021, Blaðsíða 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s Höggið má ekki alfarið lenda á ferðaþjónust- unni. Ásberg Jónsson, forstjóri Nordic Visitor. 1 3 6 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 4 . J Ú L Í 2 0 2 1 Úrbeinuð kjúklingalæri Grænn aspas BBQ grísarif GOTT Á GRILLIÐ Í NÆSTU ICELAND Iceland er með 6 búðir á höfuðborgarsvæðinu, alltaf með góð tilboð í gangi og ríflegan opnunartíma. Tilboð gilda 15. -- 21. júlí 50% afsláttur44% afsláttur 31% afsláttur Ef ekki verður bætt úr skulda- stöðu ferðaþjónustunnar mun greinin eiga erfitt með að ná sér á strik, að sögn Ásbergs Jónssonar forstjóra Nordic Visitor. thorsteinn@frettabladid.is VIÐSKIPTI Vinna þarf að heildar- lausn á skuldavanda ferðaþjónust- unnar með aðkomu ríkis, banka og leigusala, svo að greinin geti náð fyrri styrk. Þetta segir Ásberg Jóns- son, forstjóri og stofnandi Nordic Visitor, í viðtali við Markaðinn. Í mörgum tilfellum rennur greiðslufrestur ferðaþjónustu- fyrirtækja hjá bönkum út í haust, en Ásberg telur líklegt að greiðslu- frestur verði framlengdur til hausts- ins 2022. „Það kemur að skuldadögum. Á einhverjum tímapunkti þurfa fyrir- tækin að byrja að greiða af lánum og þá þarf að eiga sér stað leiðrétting á markaðinum. Skuldastaðan í grein- inni er ósjálfbær,“ segir Ásberg. „Bankarnir hafa ekki hag af því að ganga að veðum sínum vegna þess að þá fá þeir holskeflu af fyrir- tækjum í fangið. Þess vegna þarf að vinna að heildarlausn, með aðkomu banka, ríkisins, ferðaþjónustunnar og leigusala. Höggið má ekki alfarið lenda á ferðaþjónustunni,“ bætir hann við. Ef ekki verði bætt úr skuldastöðu ferðaþjónustunnar muni greinin eiga erfitt með að ná sér á strik. Aðspurður, segist hann eiga von á því að samrunar innan ferðaþjón- ustu færist í aukana í vetur. „Frá því að kórónuveiran kom til landsins hafa atvinnurekendur í greininni einblínt á að komast í gegnum þetta ástand og forðast að selja fyrirtæki á brunaútsölu. Það er seigla í fólki í ferðaþjónustu,“ segir Ásberg. Þá kemur einnig fram í viðtalinu að saman verði ferðaskrifstofurnar Nordic Visitor, Iceland Travel og Terra Nova þriðja stærsta ferða- þjónustufyrirtæki landsins þegar kaup Nordic Visitor á Iceland Travel ganga í gegn. SJÁ MARKAÐINN Taka þarf á ósjálfbærum skuldum í ferðaþjónustuhordur@frettabladid.is VIÐSKIPTI Hluthöfum Íslandsbanka hefur fækkað um liðlega 17 prósent á þremur vikum eftir að bankinn var skráður á hlutabréfamarkað. Samkvæmt upplýsingum sem Markaðurinn fékk frá Íslandsbanka stóð heildarfjöldi hluthafa í gær í rétt rúmlega 20 þúsundum talsins, en eftir hlutafjárútboð bankans í liðnum mánuði var fjöldi hluthafa hins vegar nálægt 24 þúsundum. Hefur þeim því fækkað um tæplega fjögur þúsund. Talsverður hópur hluthafa hefur því selt öll sín bréf í bankanum á fyrstu dögunum eftir að hann var skráður á markað, þann 22. júní síðastliðinn. Fastlega má gera ráð fyrir að þar hafi einkum verið um að ræða almenna fjárfesta. Hluta- bréfaverð Íslandsbanka hækkaði um nærri 20 prósent á fyrsta degi viðskipta og hefur síðan haldið áfram að hækka enn frekar. n Hluthöfum fækkar um nær 4 þúsund adalheidur@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Áhrifavaldurinn Edda Falak er ein þeirra sem fá senda kröfu frá lögmanni Ingólfs Þórar- inssonar vegna ummæla hennar á Twitter um meinta hegðun tón- listarmannsins. Edda lýsti því yfir á Twitter fyrr í vor að þekktur tónlistarmaður hefði nauðgað sér og samkvæmt heimild- unum eru þau ummæli meðal kæru- efna á hendur henni. RÚV greindi frá því í gær að Ingólf- ur hygðist kæra til lögreglu 32 nafn- lausar sögur sem birtust um hann á Tiktok. Að auki yrði fjórum sendar bótakröfur fyrir ærumeiðingar á opinberum vettvangi. Umfjöllun um Ingólf í kjölfar nafnlausra frásagna á Tiktok hafa valdið Ingólfi miklu tjóni að mati lögmanns hans, Vilhjálms H. Vil- hjálmssonar, sem ræddi málið við Rúv í gær. Hann hefði því ekki annan kost en að bregðast við. n Ingó sendir kröfu á Eddu Falak Í gær var síðasti dagurinn til að næla sér í bólusetningu við Covid-19 á opnum degi í Laugardalshöll fyrir sumarleyfi starfsmanna Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Boðið var upp á bóluefni Pfizer og voru þónokkrir sem nýttu sér tækifærið, margir í yngri kantinum eins og sést á myndinni. Í dag verður þó haldið áfram að bólusetja einstaklinga sem eru í sóttkví. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.