Fréttablaðið - 14.07.2021, Side 36
benediktboas@frettabladid.is
Fjölnir Geir Bragason hefur verið í fréttum sem einn
fimmmenninganna sem fór fram á að starfsemi svokall-
aðra vöggustofa verði rannsökuð. Hann er langþekkt-
astur og varla kallaður annað en Fjölnir tattú og er eins
og margir fleiri kenndur við störf sín, fyrirtæki, hljóm-
sveitir og jafnvel COVID-faraldurinn.
Betur þekkt sem...
Solla í Gló
Sólveig Eiríksdóttir verður trúlega alltaf kennd
við Gló enda sló staðurinn hennar og matargerð
í gegn hjá landanum. Hún seldi hlut sinn í Gló
árið 2019 en starfaði um skeið áfram sem ráð-
gjafi hjá Gló og herti þannig enn betur á órjúfan-
legri tengingunni.
Þríeykið
Alma Möller, Þórólfur Guðnason og Víðir Reynisson. Þríeykinu, sem
hefur verið landsins stoð og stytta í COVID-faraldrinum, verður
seint fullþakkað. Þau voru ýmsu öðru vön þegar þeim var þeytt
fram í sviðsljósið þar sem þau töluðu kjark og þor í þjóðina þegar
faraldurinn geisaði og öll sund virtust lokuð. Þau standa vitaskuld
öll fyrir sínu, eitt og sér, en renna saman í hið eina sanna þríeyki í
huga fjöldans.
Rósa á Spotlight
Rósu Guðmundsdóttur gengur illa að losna
undan Spotlight nafninu. Hún var skemmtana-
stjóri staðarins í kringum síðustu aldamót og
hefur eðlilega gert ýmislegt síðan þá. Hún hefur
verið búsett í New York síðustu ár þar sem hún
hefur starfað í skemmtanabransanum.
Svava í 17
Saga tískuveldisins 17 er
orðin býsna löng og litskrúð-
ug og Svava Johansen hefur
rekið það með slíkum stæl
að hún verður tæpast úr því
sem komið er kennd við neitt
annað en upphafið, sjálfa
stofnunina sem verslunin 17
hefur verið í áratugi.
Bjössi og Dísa í World Class
World Class-hjónin, Björn Kr. Leifsson og Hafdís
Jónsdóttir, sem hafa reynt að taka bumbuna af
landsmönnum síðan 1985, eru eðlilega kennd
við veldið sem byrjaði í örlitlu húsi í Skeifunni 3c
en vöðvamassi þess hefir tútnað svo út síðan þá
að nú eiga þau og reka átján líkamsræktarstöðv-
ar og eru því eðli málsins samkvæmt þekktust
sem Bjössi og Dísa í World Class.
Helgi í Góu
Helgi Vilhjálmsson hefur kom-
ið brosi á landsmenn síðan
fyrsti Hraunbitinn var fram-
leiddur árið 1973 og þótt hann
hafi komið víða við og meðal
annars blakað djúpsteiktum
kjúklingavængjum og lamið
á lífeyrissjóðunum þá verður
hann alltaf þekktur sem Helgi
með Góu-nafnbótina.
Steini í Kók
Þrátt fyrir að hafa selt hlut sinn í Vífilfell árið
2010 er Þorstein M. Jónsson enn ekki kenndur
við neitt annað en Kók. „Coke is it“ og Steini í Kók
festist svo rækilega að það kemur bara ekkert
annað í staðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
AÐEINS 3.990 KR./MÁN.
Tryggðu þér áskrift á stod2.is
20 Lífið 14. júlí 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 14. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR