Fréttablaðið - 26.06.2021, Síða 2
Hún hefur engin
réttindi sjálf – sem er
þægilegt fyrir ótrúlega
marga
Gréta Þorkels-
dóttir, graf-
ískur hönnuður
og aðdáandi
Britney Spears.
Töluvert vatn hefur runnið
til sjávar í sjálfræðisbaráttu
Britney Spears undanfarna
daga. Einn helsti aðdáandi
hennar hér á landi, Gréta
Þorkelsdóttir, segir sláandi
að lesa orð Britney úr réttar-
salnum.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Britney Spears opnaði
sig loks í vikunni um sjálfræðis-
sviptingu sína, fyrst í réttarsal og
svo á Instagram. Í 24 mínútna ræðu
í réttarsalnum komust aðdáendur
hennar að því hvernig er í pottinn
búið hjá poppstjörnunni. Milljónir
manna tengjast #FreeBritney hreyf-
ingunni og berjast fyrir að Britney
fái sjálfræði aftur.
Gréta Þorkelsdóttir, grafískur
hönnuður, er einn mesti aðdáandi
Britney hér á landi en hún var við-
fangsefni Grétu í útskriftarverkefni
hennar úr grafískri hönnun í Lista-
háskóla Íslands.
Gréta hafði lesið skýrsluna úr
réttarsalnum og fannst, líkt og
f leirum, erfitt að heyra hvernig líf
hennar er. Þar kom fram að Britney
fær ekki að hitta lækni til að fjar-
lægja lykkjuna, hún er látin taka
liþíum geðlyf, hún má ekki keyra bíl
eða vera ein í bíl með kærastanum
sínum og ýmislegt fleira.
Britney sagði sjálf að hún vildi
binda enda á sviptinguna, sem hún
kallaði ofbeldi í sinn garð.
„Það eru stór tíðindi búin að ger-
ast undanfarið,“ segir Gréta. „Það
hefur svo sem verið fjallað um það
áður að hún sé undir þessu, enda
fullfær um að vinna, sjá um sig og
tugi ef ekki hundruð manna á tón-
leikatúr, en er ekki með sjálfræði.
Þar til nú hefur hún ekkert tjáð sig.“
Gréta segir að Britney hafi mót-
mælt þessu ástandi síðan 2014 en
hún var svipt sjálfræði árið 2008.
„Hún segist vera hrædd við föður
sinn og hvað hann geti látið hana
gera en einnig hvað hann lætur
hana gera.
Hún hefur til dæmis verið send á
hæli sem einhvers konar refsingu,
ef hún stendur upp fyrir sjálfri sér.
Pabbi hennar er með einhverja fasta
liði í hverri viku sem eru ákveðnir
af honum sem hún þarf að gera, en
henni er refsað ef hún neitar.
Hún hefur engin réttindi sjálf
– sem er þægilegt fyrir ótrúlega
marga,“ segir Gréta.
Hún vonast eftir kraftaverki og að
Britney losni undan sviptingunni
sem fyrst en býst þó við að það taki
einhver ár enda stórt og flókið mál.
„Ég vona að hún losni undan þessu
en ég óttast að það taki langan tíma.
Þetta er svo ótrúlega sorglegt mál
því hún er svo skær stjarna. Fólk
hefur tjáð sig um hvað hún sé góð
manneskja. Almennt hefur hún
notað frægð sína til að gera góða
hluti og vonandi dæmir dómarinn
henni í hag fyrr en síðar,“ segir
Gréta. n
Vonar að sjálfræðissvipting
Britney endi fyrr en síðar
Loksins skemmtiferðaskip í Sundahöfn
Britney Spears á tónleikum árið 2018. Hún getur ekki stýrt auðæfum sínum,
frekar en öðru í lífi sínu, enda ekki með sjálfræði. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
thorgrimur@frettabladid.is
VEÐUR „Þetta er veður þar sem
maður ráðleggur ekki neinum að
vera að ferðast með fellihýsi eða
hjólhýsi,“ sagði Sigurður Þ. Ragnars-
son veðurfræðingur, í samtali við
Fréttablaðið. Slysahætta kunni að
skapast fyrir bifreiðar með kerrur
eða hjólhýsi í eftirdragi.
„Í dag verður líklega hvass vindur
úr suðvestri með mjög snörpum
vindhviðum við fjöll og skörðótt
landsvæði. Hviðurnar gætu verið
að slá í þrjátíu til fjörutíu metra
á sekúndu. Íslendingar eiga til að
halda að slys geti ekki hent sig og
líka að ana í ferðir strax og góðar
hitatölur birtast. Það gæti reynst
skeinuhætt á laugardag, en óveðr-
ið ætti að vera um garð gengið
daginn eftir.“ - SJÁ SÍÐU 36.
Varað við ferðum
með hjólhýsi
vegna veðurs
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Grímuskylda er enn við
lýði á Landspítalanum þrátt fyrir að
öllum samkomutakmörkunum hafi
verið aflétt innanlands á miðnætti.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra kynnti á blaðamannafundi í
gær breytingar á reglum á samkomu-
takmörkunum. Með breytingunum
falla úr gildi allar reglur sem hafa
verið á samkomum í kórónuveiru-
faraldrinum fyrir utan þær reglur
sem enn gilda á Landspítala.
Nokkrar breytingar verða gerðar
varðandi reglur um gesti og heim-
sóknir á spítalann og taka þær gildi
1. júlí. Fólk með einkenni verður
til að mynda beðið að fresta heim-
sóknum, gert er ráð fyrir tveimur
gestum að hámarki hjá hverjum
sjúklingi og gestir skulu gera grein
fyrir sér hjá öryggisverði við inn-
ganga spítalans. n
Grímuskylda
á Landspítala
Vindhviður gætu orðið 30-40 metrar
á sekúndu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Skemmtiferðaskipið Viking Sky frá Noregi sem nú liggur við bakka í Sundahöfn minnir óneitanlega á gamla tíma þegar hingað til lands komu skemmtiferða-
skip í hrönnum fyrir heimsfaraldurinn. Nú er þó allt að færast til fyrra horfs, með afléttingu samkomutakmarkana og breytingum á reglum á landamærum og
búast má við fjölda skemmtiferðaskipa til Íslands í sumar, með fjölda kærkominna gesta um borð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
thorvardur@frettabladid.is
BANDARÍKIN Bandaríski lögreglu-
maðurinn Derek Chauvin hefur verið
dæmdur til 22 ára og sex mánaða
fangelsisvistar fyrir morðið á George
Floyd 25. maí í Minneapolis í fyrra.
Chauvin hefur verið í einangrun
síðan hann var dæmdur sekur fyrir
morðið, fyrir tveimur mánuðum.
Chauvin, sem er hvítur, var
dæmdur fyrir að hafa myrt Floyd,
sem var svartur, með því að krjúpa
með hné sitt á hálsi hans uns hann
kafnaði, níu mínútum síðar. Þetta
náðist á myndband sem fór sem
eldur í sinu um Internetið og varp-
aði ljósi á umfang lögregluofbeldis
gegn svörtu fólki og öðrum minni-
hlutahópum í Bandaríkjunum.
Í framhaldinu voru gríðarmikil
mótmæli víða um Bandaríkin og
utan landsteinanna gegn lögreglu-
ofbeldi og kynþáttafordómum. n
Chau vin dæmd ur
2 Fréttir 26. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ