Fréttablaðið - 26.06.2021, Page 8

Fréttablaðið - 26.06.2021, Page 8
arnartomas@frettabladid.is FERÐAÞJÓNUSTA Margar þeirra tak- markana sem féllu úr gildi á mið- nætti hafa afgerandi áhrif á íslenska ferðaþjónustu. Þar á meðal fullt afnám grímuskyldu, nándarreglu og fjöldatakmarkana. „Það er auðvitað mjög ánægjulegt að við séum komin á þann stað að hægt sé að fella niður þessar tak- markanir og það hjálpar augljóslega mikið til í ýmsum greinum ferða- þjónustunnar,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Sam- taka ferðaþjónustunnar. „Þetta hefur mjög jákvæð áhrif til dæmis á allan veitingarekstur, hótelrekstur, veisluþjónustu og fleira.“ Þann 1. júlí verður svo hætt að skima bólusetta ferðamenn og þá sem eru með mótefnavottorð. Jóhannes segir þetta ánægjulegar fréttir. „Þetta hefur valdið ákveðnum vandræðum, sér í lagi fyrir ferða- menn og ferðaskrifstofur sem skipuleggja styttri ferðir,“ segir hann. „Síðan sjáum við að landa- mærareglugerðin á að falla úr gildi 15.  ágúst, sem er gott, þótt við hefðum viljað sjá styttri gildistíma á henni. Þegar hægt verður að hætta við tvöfalda skimun og sóttkví þá munar það mjög miklu fyrir okkur, sérstaklega varðandi hópferðir frá Evrópu.“ Nýlega gáfu Samtök ferðaþjón- ustunnar út svokallaðan Vegvísi um viðspyrnu ferðaþjónustunnar þar sem lagðar eru fram tillögur að aðgerðum stjórnvalda sem eru nauðsynlegar til að flýta viðspyrn- unni. Aðspurður hver næstu skref Íslands ættu að vera með tilliti til vegvísisins segir Jóhannes mikil- vægt að huga að tvennu. „Í fyrsta lagi er mikilvægt að rýna í rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi sem er almennt mjög þungt,“ segir hann. „Það þarf að horfa á úrlausn skuldavanda fyrirtækjanna sem er enn til staðar og leita bóta. Svo má ekki láta markaðssetningu á erlendum mörkuðum detta niður í vetur. Það þarf að huga að því fyrr en síðar hvernig við ætlum að halda slagkraftinum áfram í vetur.“ Hrefna Sætran, eigandi Fiskmark- aðarins, Grillmarkaðarins og Skúla Craft Bar, tekur í sama streng og Jóhannes um hve mikilvægar aflétt- ingarnar séu í veitingageiranum. „Það er rosalega gott að sjá opn- unartímann lengdan,“ segir Hrefna. „Nú getur fólk farið út að borða í rólegheitum og þarf ekki að vera að stressa sig eins og þegar stöðunum var lokað snemma. Það gat verið óþægilegt bæði fyrir kúnnana og starfsfólkið.“ Þá segist Hrefna hafa fundið fyrir því að erlendum ferðamönnum hafi fjölgað. „Þeir eru duglegir að bóka fram í tímann, á meðan Íslendingar eru meira að tékka stutt fram í tímann,“ segir hún. „Þegar faraldurinn skall á voru engar bókanir, en núna erum við komin með bókanir alveg hálft ár fram í tímann sem er alveg frá- bært.“ Ágúst Elvarsson, rekstrarstjóri Jökulsárlóns, segir að þó að ferða- mannaf laumurinn sé ekkert í líkingu við hvernig þetta væri í venjulegu ári sé allt á réttri leið. Far- þegafjöldi sé nú um fjórðungur af því sem hann var fyrir faraldurinn, sem sé þó mun meira en í fyrra. „Í fyrra var það ekki nema um 10 prósent í hæsta falli,“ segir hann. „Helsta breytingin í ár er kannski að við erum aftur farin að fá hópa. Í fyrra voru þeir engir.“ Íslenskir ferðamenn eru aftur komnir í minnihluta þótt Ágúst telji það geta breyst þegar líða tekur á sumarið. „Við erum að fá langmest af Bandaríkjamönnum,“ segir hann. „Það er búinn að vera nokkuð jafn stígandi í þessu hjá okkur og ég býst við að hlutirnir verði orðnir nokkuð góðir eftir miðjan júlí.“ n Það er búinn að vera nokkuð jafn stígandi í þessu hjá okkur og ég býst við að hlutirnir verði orðnir nokkuð góðir eftir miðjan júlí. Ágúst Elvarsson, rekstrarstjóri Jökulsárlóns. Nú getur fólk farið út að borða í rólegheitum og þarf ekki að vera að stressa sig eins og þegar stöðunum var lokað snemma. Hrefna Sætran, eigandi Fisk­ markaðar ins, Grill markaðar ins og Skúla Craft Bar. Það þarf að horfa á úrlausn skuldavanda fyrirtækjanna sem er enn til staðar og leita bóta. Jóhannes Þór Skúlason, fram­ kvæmdastjóri Samtaka ferða­ þjónustunnar. Mikill léttir fyrir ferðaþjónustuna Ágúst segir að gestir við Jökulsárlón séu nú um fjórðungur af því sem þeir væru á venjulegu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Aflétting takmarkana vegna faraldursins léttir mjög á ýmsum greinum ferðaþjón- ustunnar. Bókanir erlendra ferðamanna færast í aukana og rekstraraðilar eru bjart- sýnir fyrir sumarið. benediktboas@frettabladid.is ÚTBOÐ Starfsstaðir Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur munu bjóða upp á Emmessís næstu fjögur ár en opið útboð fór fram þar sem ísrisarnir, Emmessís og Kjörís, börðust um hnossið. Tilboð Kjöríss var ógilt og því ákveðið að ganga til samninga við Emmessís til fjögurra ára. Kostnaðaráætlun var 47 millj- ónir en Emmessís bauð 44 milljónir. n Tilboð Kjöríss til ÍTR var ógilt Emmessís verður í boði hjá ÍTR. Snæfellsbær og Eyja­ og Miklaholts­ hreppur stinga saman nefjum. kristinnhaukur@frettabladid.is VESTURLAND Sameiningar sveitar- félaga eru nú ræddar á Snæfellsnesi. Í gær funduðu fulltrúar Stykkis- hólmsbæjar, Helgafellssveitar og Dalabyggðar eftir beiðni frá síðast- nefnda sveitarfélaginu. Í tilefni af því hvatti bæjarráð Stykkishólms til stærri sameiningar á Snæfellsnesi með framtíðarhags- muni svæðisins í huga. Þá hefur Snæfellsbær óskað eftir viðræðum við Eyja- og Miklaholtshrepp um hvort grundvöllur sé fyrir samein- ingu þessara tveggja sveitarfélaga. Fulltrúar hreppsins samþykktu þær viðræður. Þessar viðræður voru síðan ræddar á bæjarstjórnarfundi Grundarfjarðarbæjar. Hugmyndin um sameinað Snæ- fellsnes er ekki ný af nálinni en árið 2005 var hún kolfelld í miklu sameiningarátaki á landsvísu. Árið 2017 var rætt um sameiningu Stykkishólms, Helgafellssveitar og Grundarfjarðar en hætt við vegna lítilla framlaga frá Jöfnunarsjóði. n Ræða að sameina á Snæfellsnesinu Skemmtigelt í baði! Joserabúðin er ný og skemmtileg gæludýrabúð í Ögurhvarfi 2, Kópavogi. Gæludýr eru velkomin í heimsókn í fylgd með tvífætlingum. Joserabúðin – Ögurhvarfi 2, Kópavogi FRÍTT Frítt í nýja hunda - baðið út júlí 8 Fréttir 26. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.