Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.06.2021, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 26.06.2021, Qupperneq 16
16 Íþróttir 26. júní 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 26. júní 2021 LAUGARDAGUR ÍTF náði að bæta Pepsi Max-deild karla við tilboð níu deilda í sýningarréttinn á erlendri grundu til næstu þriggja ára. Framkvæmda- stjórinn vonast til þess að þetta komi með auknar tekjur til félaganna fyrir sýningar- rétt og í auglýsingatekjum. kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI Sýnileiki íslenska boltans á erlendri grundu gæti aukist veru- lega á næstu árum en Íslenskur toppfótbolti, hagsmunasamtök félaga í efstu deild íslenska boltans, stóð fyrir því að íslenska deildin væri hluti af útboði European Leagues að sýningarrétti til næstu þriggja ára. Útboðið er unnið í sam- starfi við Octagon, en samkvæmt heimildum Sportico, sem hefur útboðsgögnin undir höndum, er vonast til þess að útboðið geti aflað á bilinu fimm til tuttugu milljóna dala, eða um 600 til 2.400 milljóna króna samanlagt. Samkvæmt útboðsgögnunum er meginpunkturinn á bak við hug- myndina að geta boðið upp á leiki alla tólf mánuði ársins. Alls eru 116 lið í deildunum níu sem koma að þessum samningi, sem ætti að tryggja rétthöfum um 1.500 leiki á ári. Deildirnar sem um ræðir eru í Danmörku, Sviss, Noregi, Póllandi, Norður-Írlandi, Slóvakíu, Íslandi, Lettlandi og Kasakstan, en það gætu f leiri deildir bæst í hópinn ef vel gengur. Flestar eru þær yfir vetrartímann en líkt og á Íslandi er keppt yfir sumartímann í Noregi, Lettlandi og Kasakstan. Útboðinu lýkur þann 12. júlí næstkomandi og verður tilkynnt um miðjan ágúst hver niðurstaða útboðsins er. Að sögn Birgis Jóhannssonar, framkvæmdastjóra ÍTF, er þetta ný og vonandi farsælli leið til að selja sjónvarpsréttinn að íslenska bolt- anum erlendis. „Okkur tókst að bæta okkur í hóp- inn á lokametrum viðræðnanna. Þetta hefur ekki verið reynt áður og við erum svolítið að feta nýjar slóðir en þetta gengur vonandi upp. Allar deildirnar sem koma að þessu eiga það sameiginlegt að vera með laus- an samning á þessum tímapunkti og ef vel gengur er von á fleiri og stærri deildum. Um leið eiga þessar deildir sameiginlegt að það hefur reynst erf- itt að selja sjónvarpsréttinn að þeim einum og sér í öðrum löndum en það gæti breyst,“ segir Birgir, sem segir lykilinn í hugmyndafræðinni að með þessu sé hægt að bjóða áskrif- endum og sýningarhöfum gríðarlegt magn fótboltaleikja sem dreifast yfir árið. „Með þessari leið fá rétthafar sem kaupa aðgengi að einni deildinni um leið aðgang að öllum deildunum sem eru í pakkanum. Með því geta rétt- hafar sett upp einhverja pakka þar sem áskrifendur geta fengið fótbolta alla tólf mánuði ársins. Um leið geta þeir aukið framboðið á einstökum íþróttaleikjum (e. pay per view) á knattspyrnuleikjum víðs vegar um Evrópu. Fyrstu viðbrögð sem við fengum voru að það gæti verið áhugi á svona pakka hjá streymis- þjónustum. Það var gerð forkönnun á þessum markaði og það fannst mikill áhugi á því að geta boðið upp á svona fjölbreytt efni. Það er hægt að rukka einhverja upphæð, segjum bara tíu dollara á mánuði, og áskrifandi fær aðgang að svo gott sem endalausum fótbolta.“ Að sögn Birgis er þetta ein leið til að reyna að auka tekjustreymið inn til íslenskra liða og um leið er verið að opna nýjan markað sem gæti vaxið á næstu árum. „Algjörlega. Hérna áður var allur sjónvarpsréttur inni í sama samn- ingi en ÍTF hefur bútað þetta niður til að auka möguleikana. Við hjá ÍTF erum að klára samkomulagið við Sýn um sýningarréttinn hérna innanlands, en með þessu erum við að prófa að fara nýjar leiðir erlendis. Hingað til hefur rétturinn til sýn- ingar á íslenskum leikjum erlendis ekki skilað miklum tekjum til félag- anna en við vonumst til þess að það breytist með þessu,“ segir Birgir og heldur áfram: „Um leið ertu að opna nýja mögu- leika í auglýsingasölu. Þetta er nýtt og stærra svið fyrir íslensk fyrir- tæki sem eru að horfa á alþjóðlegan markað að kaupa auglýsingar.“ ■ ÍTF fer nýja leið í sölu á sýningarrétti Það gæti farið svo að áhorfendur víðs vegar um Evrópu fylgist með upphafsspyrnu Íslandsmótsins á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Með þessari leið fá rétthafar sem kaupa aðgengi að einni deild um leið aðgang að öllum níu deildunum í pakkanum. Birgir Jóhanns­ son, fram­ kvæmdastjóri ÍTF kristinnpall@frettabladid.is GOLF „Það virðist vera þannig hjá sumum kylfingum en ekki öllum. Það er auðvitað margt sem spilar inn í. Þetta er langt og krefjandi ferðalag sem tekur tvær vikur fyrir eitt mót innan um önnur mót sem auðveldar kannski ákvörðunina. Það eru mörg risamót að baki síð- ustu vikur og menn þurfa oft að taka sér stutt hlé til að hlaða batt- eríin,“ segir Þórður Rafn Gissurar- son, fyrrum Íslandsmeistari í golfi, sem heldur úti hlaðvarpinu Golf- kastið ásamt Sigmundi Einari Más- syni, aðspurður hvort að peninga- upphæðirnar á PGA-mótaröðinni virðist heilla bestu kylfinga heims meira en tækifæri á gulli á Ólympíu- leikunum. Listinn yfir þá kylfinga sem fá þátttökurétt var gefinn út fyrr í þessari viku en á sama tíma kom í ljós að ýmsir kylfingar hefðu af þakkað boð um þátttöku. Til þessa hafa stærstu stjörnur kvenna- golfsins ekki tekið afstöðu hvort að þær muni ekki gefa kost á sér en keppni í Tókýó hefst viku eftir eitt af risamótum ársins. Ákveðið var árið 2009 að keppt yrði í golfi á Ólympíuleikunum að nýju frá og með árinu 2016. Það var í fyrsta sinn sem keppt var í golfi á Ólympíuleikunum í rúm hundrað ár, eða síðan 1904. Í aðdraganda Ólympíuleikanna í Ríó tilkynntu margir af bestu kylf- ingum heims í karla- og kvenna- flokki að þau myndu afþakka boð um að keppa vegna útbreiðslu Zíka- veirunnar í Brasilíu. Þar á meðal voru Dustin Johnson og Adam Scott sem tilkynntu fyrr á þessu ári að þeir myndu heldur ekki þiggja boð um að keppa í Japan í ár. „Heimsfaraldurinn hefur pott- þétt áhrif, alveg eins og síðast þegar zika-veiran setti strik í reikninginn.“ Nú hafa kylfingar á borð við Sergio Garcia, Louis Oosthuizen, Martin Kaymer og Lee Westwood tilkynnt að þeir munu ekki keppa í Tókýó og er von á að f leiri gætu ákveðið að afþakka boðið á næst- unni. Það á enn eftir að úrskurða hvort að keppt verði í golfi á Ólympíuleik- unum til framtíðar og telur Þórður að með tímanum aukist aðdrátt- araflið við að keppa á Ólympíuleik- unum fyrir kylfinga. „Ég held að þetta þurfi smá tíma til að festa sig í sessi. Þetta er breyt- ing á því sem þekkist á hefðbundnu keppnistímabili og ég hef enga trú á öðru en að þetta sé komið til að vera og kylfingar venjist þessu. Ef þetta fær örlítið meiri tíma þá hef ég ekki trú á neinu öðru en að það verði fáir sem af þakki boð um að keppa á Ólympíuleikunum í framtíðinni.“ ■ Skortur á hefðinni dregur úr aðdráttarafli ÓL fyrir kylfinga Dustin, hér lengst til hægri, gefur ekki kost á sér en Collin Morikawa og Bryson De­ Chambeau eiga eftir að ákveða sig. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY kristinnpall@frettabladid.is KÖRFUBOLTI Darri Freyr Atlason og KR komust að samkomulagi um að hann hætti störfum sem þjálfari meistaraf lokks KR í körfubolta. Samkvæmt heimildum Fréttablaðs- ins mun Helgi Már Magnússon taka við liðinu af Darra en Helgi var um tíma spilandi þjálfari liðsins. Darri staðfesti í samtali við RÚV í gær að hann hefði ákveðið að hætta störfum vegna anna í vinnu. Hann stýrði því uppeldisfélagi sínu í tæpt ár, en hann stýrði þar áður Íslands- meistaraliði Vals í kvennaf lokki sem vann alla þá titla sem í boði voru. Helgi Már, sem nálgast fertugs- aldurinn, var í hlutverki spilandi þjálfara fyrri hluta tímabilsins 2012 til 2013 en hann hefur verið stór hluti af gullaldarliði KR, sem vann sex Íslandsmeistaratitla í röð. ■ Helgi tekur við uppeldisfélaginu Helgi Már fer á hliðarlínuna í haust. kristinnpall@frettabladid.is FR JÁLSAR ÍÞRÓT TIR Bandaríska frjálsíþróttasambandið staðfesti fyrr í vikunni að CeCe Telfer fengi ekki að taka þátt í úrtökumóti fyrir sveit Bandaríkjanna á Ólympíuleik- unum vegna þess að magn testóste- róns í líkamanum reyndist of mikið. Telfer ætlaði að keppa í 400 metra grindahlaupi. Á síðustu stundu var Telfer til- kynnt að hún fengi ekki að keppa í úrtökumótinu. Til þess að fá þátt- tökurétt í úrtökumótinu þurfa ein- staklingar að standast allar þær kröfur sem eru gerðar til ólymp- íufara, að sögn bandaríska frjáls- íþróttasambandsins. „Í mótlætinu mun CeCe virða ákvörðunina þegar kemur að hæfi hennar til að keppa í úrtökumóti f y r ir Óly mpíuleikana,“ sagði umboðsmaður Telfer.■ Transkonu ekki leyft að keppa í úrtökumóti
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.