Fréttablaðið - 26.06.2021, Page 17
Heildarvelta körfubolt-
ans innan NCAA hefur
verið rúmur milljarður
dala undanfarin ár.
Umsækjendur með virka ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán
geta nú óskað eftir því að ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán haldi
áfram. Þetta er gert með því að skrá sig inn á www.leidretting.is
og óska eftir að gildistími ráðstöfunar sé framlengdur.
Frestur til að óska eftir áframhaldandi ráðstöfun inn á lán er til og með
30. september 2021. Eftir það gilda umsóknir aðeins frá þeim mánuði
þegar þær berast.
Ef gildistími umsókna er ekki framlengdur falla umsóknir úr gildi frá
og með 1. júlí 2021 og engar frekari greiðslur berast inn á lán.
Heimild til ráðstöfunar
séreignarsparnaðar framlengd
um tvö ár
Heimild til að nýta
séreignarsparnað vegna
kaupa á íbúðarhúsnæði
til eigin nota eða til
ráðstöfunar upp í
höfuðstól láns hefur
verið framlengd til
30. júní 2023.
Þeir sem nú þegar nýta sér úrræðið og vilja halda
því áfram þurfa að óska eftir framlengingu.
skatturinn@skatturinn.is 442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
LAUGARDAGUR 26. júní 2021 Íþróttir 17FRÉTTABLAÐIÐ
kristinnpall@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Hæstiréttur Banda-
ríkjanna úrskurðaði í vikunni að
regluverk NCAA um takmarkanir
á tekjuöflun háskólaíþróttamanna
væri ólögleg.
Úrskurðurinn tekur til leikmanna
í bandaríska háskólakörfuboltanum
og háskólaruðningnum en um ára-
bil hafa fyrrum og núverandi leik-
menn barist fyrir rétti sínum enda
hleypur heildarvelta iðnaðarins á
milljörðum dala ár hvert. Undan-
farin ár hafa fjölmargir íslenskir
körfuboltaleikmenn í karla- og
kvennaflokki leikið í liðum í NCAA
samhliða háskólanámi.
Deila leikmanna og háskólanna
hefur um árabil snúist um pening-
ana og um leið hvort að leikmönnum
sé heimilt að afla sér tekna út frá
eigin verðleikum. Í Bandaríkjunum
er gríðarlegur áhugi og áhorf á körfu-
bolta og ruðning í háskólunum og
eru bestu leikmennirnir þekktir á
landsvísu en yfirvöld NCAA sem
halda utan um íþróttalífið í banda-
rísku háskólunum hafa bannað
leikmönnum að hagnast á því. Er
það gert í yfirskini þess að með því
takist skólunum að koma í veg fyrir
að námsmenn verði um leið atvinnu-
menn.
Frægt er þegar LeBron James var
dæmdur í bann þegar hann lék með
menntaskólaliði St. Vincent–St.
Mary. Þá var hann dæmdur í bann
fyrir að árita í skiptum fyrir körfu-
boltatreyjur en forráðamenn deild-
arinnar höfðu reynt að dæma hann í
bann vegna láns sem móðir hans tók
til að fjármagna bíl fyrir LeBron.
Nýlega var sett á laggirnar ný
deildarkeppni í samstarf i við
háskóla þar sem leikmenn geta
fengið borgað en aðrir hafa kosið
að leika erlendis. ■
Hæstiréttur stóð með leikmönnunum gegn háskólanum
Morata segist meðal annars hafa
reitt sig á stuðning Iker Casillas.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Alvaro Morata, framherji
spænska landsliðsins og Juven-
tus, greindi frá því í samtali við
spænska fjölmiðilinn Cadena Cope
að hótunum hafi rignt yfir hann og
fjölskyldumeðlimi hans eftir leiki
Spánar í riðlakeppni Evrópumóts-
ins. Meðal þeirra skilaboða sem
framherjanum hefur borist var að
einhver óskaði þess að börn Morata
myndu deyja.
Morata á enn eftir að skora sitt
fyrsta mark fyrir Spán á mótinu
en hann brenndi af vítaspyrnu í
5-0 sigri á Slóvakíu á dögunum.
Fyrir leik bauluðu stuðningsmenn
spænska liðsins á Morata.
„Ég væri til í að fólk sem gagn-
rýnir mig myndi setja sig í mín spor
og upplifa það hvernig það er þegar
fjölskyldu þinni er hótað. Fólk sem
segist vonast til þess að börnin
manns deyi. Konan mín og börnin
mættu á leik í treyjum merktum
Morata og níðyrði eru hrópuð og
kölluð til þeirra. Ég get sætt mig við
að heyra fólk baula þegar ég brenni
af færi, en það er ákveðinn þrösk-
uldur sem á ekki að fara yfir.“ ■
Óskuðu börnum
Morata dauða
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Evrópska knattspyrnu-
sambandið er með til skoðunar
hvort stuðningsmenn Ungverja hafi
sýnt af sér ósæmilega hegðun með
niðrandi borðum og söngvum um
samkynhneigða og hinsegin fólk á
meðan leik Ungverjalands og Þýska-
lands stóð yfir. Rannsókn stendur
yfir á sömu brotum í fyrstu tveimur
leikjum Ungverja á mótinu í Búda-
pest.
UEFA hafnaði beiðni borgar-
stjórnar München fyrir leikinn um
að fá að lita völlinn í regnbogalitum
til að sýna LGBT fólki stuðning eftir
að ríkisstjórn Ungverjalands sam-
þykkti ný lög sem voru aðför að
réttindum samkynhneigðra og
hinsegin fólks. UEFA tilkynnti að
öll pólitísk skilaboð væru bönnuð á
viðburðum á þeirra vegum.
Fyrir leikinn hljóp þýskur mót-
mælandi með regnbogafána inn
á völlinn og otaði honum í átt að
ungverska liðinu. Þá voru fjölmargir
stuðningsmenn Þýskalands með
regnbogalitaðan varning. ■
UEFA rannsakar
hegðun Ungverja