Fréttablaðið - 26.06.2021, Page 20
Heimir Fannar Hallgrímsson og
Sigurður Bjarni Sveinsson unnu það
afrek að klífa hæsta tind veraldar
aðfaranótt mánudagsins 24. maí
og urðu þar með tíundi og ellefti
Íslendingurinn til að sigra Everest-
fjall.
Að klífa þetta hæsta fjall veraldar
er mesta þrekraun fjallgöngumanna
en leiðangur Heimis og Sigga reynd-
ist einstakt stórafrek, þar sem þeir
komust báðir á toppinn veikir af
Covid-19 og Siggi þar að auki með
heilabjúg vegna súrefnisskorts.
Félagarnir tveir eru báðir í fanta-
formi, nýrakaðir og klæddir þægi-
legum hversdagsfötum, ekki eins
og blaðamaður ímyndar sér Everest-
fara; stóra og skeggjaða risa í loð-
feldi. Eflaust er undirrituð bara að
hugsa um danska pólfarann Peter
Freuchen. Það er ekki á hverjum
degi sem maður hittir Everest-fara,
og hvað þá tvo sem komust á leiðar-
enda með Covid-19.
Hvernig datt ykkur í hug að klífa
Everest í miðjum heimsfaraldri?
Þeir brosa báðir, líta hvor á annan
og Siggi verður fyrri til svars.
„Við töldum okkur geta sloppið
við fjöldann og komist hjá því að
smitast af Covid-19. Við heyrðum
að það yrðu sögulega fáir á fjallinu
en svo reyndist vera sögulegur fjöldi
sem sótti um leyfi,“ segir hann og
hlær.
Fyrstu fregnir um mögulega
Covid-19 smitbylgju í grunnbúðum
Everest birtust í apríl en annar
íslenskur gönguparpur, Höskuldur
Tryggvason, eða Höddi eins og
hann er jafnan kallaður, þurfti að
snúa heim í byrjun maí eftir að
hafa veikst af Covid-19 í grunn-
búðunum. Þar kemur mesti fjöld-
inn saman, starfsmenn, sjerpar og
kokkar auk göngugarpa að undir-
búa sig fyrir fjallið. Lýsti hann því
að f lestir hefðu reynt að halda sig
í sínum hólfum en að óæskilegur
samgangur væri á milli nokkurra
aðstoðarmanna og sjerpa.
Grunnbúðirnar eru ekki við
rætur fjallsins eins og nafnið gefur
til kynna heldur í 5.400 metra hæð
og tekur það að jafnaði átta daga
að komast að búðunum. Heimir
og Siggi gengu svokallaða Gokyo-
leið, rúmlega tveggja vikna göngu
í kringum grænblá Gokyo-vötnin
upp að grunnbúðum. Í fylgd með
þeim voru þrír leiðsögumenn,
sjerparnir Mingma, Lakpa og Ang
sem fór fyrir leiðangrinum.
„Við vorum nánast einir á ferð og
vörðum tíma okkar með heimafólki
í tehúsunum. Við fórum nokkrar
frábærar dagleiðir upp á fjöll og
sáum á leiðinni tíbeskan úlf,“ segir
Siggi.
Leiðin nær þrisvar eða fjórum
sinnum upp í 5.000 metra hæð og
þannig náðu Heimir og Siggi góðri
hæðaraðlögun áður en haldið var af
stað á tindinn.
Þveruðu dauðagildrur
Ákveðin menning hefur myndast
í grunnbúðunum í Everest um að
ferðast á mili tjaldbúða og kynnast
öðrum göngugörpum en þegar Siggi
og Heimir mættu á svæðið var búið
að hólfa allt niður.
Frá grunnbúðunum gengu þeir
á skriðjökulinn Khumbu sem er
talinn með hættulegustu stöðum á
fjallinu. Sláandi margir hafa farist
á þeirri slóð, þar á meðal sextán
nepalskir göngumenn sem lentu í
snjóflóði árið 2014. Aðeins þrettán
lík fundust og eru þrjú enn ófundin
á jöklinum. Auk snjóf lóða getur
óvæntur hiti í íssprungum stofnað
lífi göngugarpa í hættu, líkt og gerð-
ist í tilfelli Heimis og Sigga.
„Við þurftum að þvera nokkra
ísveggi á leiðinni yfir skriðjökulinn.
Það kom mér á óvart hvað það var
erfitt. Þegar við komumst að lokum
upp á jökulinn sjálfan þurftum við
að eiga við stórar sprungur og fara
bæði ofan í þær og upp aftur. Erf-
iðasti hluti leiðarinnar var án efa
ofan í sprungu í glampandi sól en
þá myndaðist gríðarlega mikill hiti
út af endurspegluninni á ísnum. Það
var með mínum erfiðustu dögum,“
segir Siggi og Heimir tekur undir
með honum.
Sá hann rýrna fyrir framan sig
„Það var margt búið að ganga á og
þetta var búið að taka á andlega,“
lýsir Heimir. „Áður en við komum
úr hæðaraðlögun við Khumbu-
skriðjökulinn slasaðist Siggi mjög
illa á hné. Ég var fyrir aftan hann
þegar hann sneri sig á hné og ég sá
þarna greinilega að þetta var frekar
alvarlegt.“
„Ég var áður með rifinn liðþófa
sem hefur mögulega versnað þarna,“
bætir Siggi við. Ákveðið var að snúa
við og náði Siggi á adrenalíninu einu
að arka og klífa niður ísveggina að
grunnbúðunum. Hann segist eigin-
lega ekki muna eftir þessum kafla í
ferðinni, hann hafi sennilega lokað
á það vegna sársaukans.
„Við vorum að reyna að tjasla
honum saman í fimm eða sex daga
í grunnbúðunum. Þá sáum við að
þetta var ekki að gera sig og tók þá
Siggi þyrlu til Katmandú til að kom-
ast undir læknishendur. Hann fór í
myndatöku og fimm daga meðferð,
sneri svo aftur í grunnbúðirnar og
ætlaði að láta reyna aftur á þetta. Þá
fórum við aftur yfir Khumbu-skrið-
jökulinn og Siggi slasaðist aftur.“
Staðan var sannarlega tvísýn en
Hársbreidd frá dauða á hæsta tindi veraldar
Félagarnir saman á hæsta tindi heims. Þótt þeir séu sammála um að tilfinningin hafi sannarlega verið góð hafi aðeins eitt komið í huga þeirra: Hversu stutt er á milli lífs og dauða á þessu fjalli.
Heimir horfði á tind Everest
aðeins 900 metra í burtu og
hugsaði: „Þetta er búið.“ Siggi
var hársbreidd frá dauða og
göngumennirnir sem þeir
mættu daginn áður voru
þegar komnir í kalda gröf.
Nýjustu Everest-farar Íslands
lýsa átakanlegum leiðangri
upp á hæsta fjall veraldar.Ingunn Lára
Kristjánsdóttir
ingunnlara
@frettabladid.is
Ég þekkti
einkennin
en áttaði
mig ekki á
því að ég
væri með
heilabjúg
fyrr en ég
sá svipinn
á Heimi.
Siggi
Sigurður Bjarni og Heimir Fannar voru ellefu daga á fjallinu en ferðin sjálf tók
heila 86 daga og það í miðjum heimsfaraldri Covid-19. FRÉTTALAÐIÐ/ERNIR
20 Helgin 26. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ