Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.06.2021, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 26.06.2021, Qupperneq 24
milli og fannst einmitt skrýtið að fá hóstakast út af súrefninu því það gekk svo vel í hæðaraðlöguninni. Fólk fær að vísu hóstakast út af hæðinni eða þurru lofti en þarna vöknuðu grunsemdir okkar um að þetta væri mögulega veirusýking,“ segir Heimir. Hrímkaldir, ósofnir og með væg einkenni vegna Covid-19 héldu þeir för sinni áfram að tjaldbúðum fjögur í 8.000 metra hæð, svoköll- uðu dauðasvæði þar sem súrefni er af mjög skornum skammti. Hóstandi með heilabjúg Hóstinn hélt stanslaust áfram í tjaldbúðum fjögur en þar var staðan verri en í tjaldbúðum þrjú. Tjöldin höfðu fokið í rokinu alla leið yfir til Tíbet. Stór hópur göngumanna var að verða uppiskroppa með súrefni og lét því ekki lengi staðar numið í búðunum þrátt fyrir fárviðri. Heim- ir og Siggi voru með auka súrefnis- kúta og sjerparnir með aukatjöld svo þeir ákváðu að reyna að þrauka storminn af, líkt og þeir gerðu í tjaldbúðum þrjú. Fyrr en varði var staðan orðin grafalvarleg. „Ég sat í tjaldinu með Sigga og sagði honum að Mingma, einn leiðsögumannanna, væri kom- inn með auka súrefniskút handa okkur. Þá horfði bara Siggi á mig, svolítið ringlaður á svipinn, og sagði: Mingma? Ég er ekki alveg að kveikja.“ Ég var alveg steinhissa en áttaði mig f ljótlega á því að ekki væri allt með felldu svo ég spurði hann: Siggi, hvað heiti ég?“ og hann bara starði á mig og mundi ekki neitt.“ Var Siggi kominn þá með heilabjúg vegna súrefnisskorts. Einhvern veginn hafði lokast fyrir súrefnisstreymið í 8.000 metra hæð, þar sem súrefnið er 20 prósent af því sem við erum vön að anda að okkur. „Ég hljóp út úr tjaldinu og kallaði á leiðsögumanninn: „Siggi er kom- inn með heilabjúg.“ Þetta var hrika- legt. Þarna vorum við búnir að vera á ferðalagi í um 60 daga. Ég man að ég stóð fyrir utan tjaldið og horfði á tindinn, á meðan leiðsögumaður- inn setti súrefnið í botn og reyndi að tala við Sigga, og ég hugsaði: Þetta er búið,“ segir Heimir. Þetta var spurning um 30 til 50 mínútur. Hefði Siggi ekki náð að jafna sig hefðu þeir þurft að snúa við, aðeins 943 metrum frá toppn- um. Aðspurður segist Siggi muna eftir þessu. „Ég man eftir samtalinu og nafna- ruglinu. Ég man að ég tengdi ekki við neitt, það vantaði eitthvert minni. Áður en ég lagði af stað á fjallið vissi ég að heilabjúgur væri möguleiki. Ég þekkti einkennin en áttaði mig ekki á því að ég væri með heilabjúg fyrr en ég sá svipinn á Heimi. Þegar ég sá viðbrögð þeirra kveikti ég á þessu og tók strax Dexa- methasone, sem er neyðarlyf við heilabjúg, ég mundi þetta, að taka lyfið, en var á sama tíma búinn að gleyma mínu eigin nafni,“ lýsir Siggi. Til allrar hamingju náði hann að jafna sig og þeir náðu fínni hvíld áður en þeir lögðu af stað á toppinn. Það var góð ákvörðun að hvíla sig og náðu þeir í sameiningu að nærast, drekka og hafa gaman. Þeir hófu klifur á tindinn klukkan Siggi með fjallið Thamserku í bakgrunni í hæðaraðlöguninni á leið í grunnbúðir Everest. Hér má sjá Heimi í morgunfrostinu en myndin er tekin í búðum eitt þar sem hann gerir sig kláran í daginn fram undan. Það var skrítin tilfinn- ing að ganga fram hjá látnum manni. Þarna lá hann, frosinn og fastur á fjallinu. Það var dimmt, kalt og mistur í loftinu. Heimir 20.30 kvöldið 23. maí. „Það gekk heldur hægt til að byrja með þegar við lentum fyrir aftan hægan hóp en við náðum fljótlega að taka fram úr þeim og halda góðum dampi í fram- haldinu,“ segir Heimir. Þegar komið var að South Sum- mit blasti við þeim lík. Það var göngumaður sem hafði reynt að ná toppnum í óveðrinu nokkrum dögum áður. „Það var skrítin til- finning að ganga fram hjá látnum manni. Þarna lá hann, frosinn og fastur á fjallinu. Það var dimmt, kalt og mistur í loftinu. Tunglið var blóðrautt. Tilfinning eins og að ryðjast inn á grafreit. Ég bað fyrir honum og afsakaði það í huganum að við þyrftum að ganga fram hjá honum. Á sama tíma var mikil ró yfir honum og öllu umhverfinu.“ Svo komu þeir að öðru líki. „Hann hafði látist nokkrum dögum áður. Sama sagan en í þetta sinn var erfitt að afhafna sig án þess að rek- ast á hann þar sem hann lá á klett- inum. Það var pínu bras þar sem við vorum auðvitað á ísbroddum og auðvelt að renna í klettunum.“ Siggi og Heimir nálguðust topp Everest og gengu saman enda höfðu þeir staðið saman eins og klettur síðustu mánuðina og vildu ná toppnum á sama tíma hlið við hlið. „Við höfum oft verið spurðir hvernig tilfinning það er að standa á toppi hæsta tinds veraldar. Við erum sammála um að tilfinningin er ekki eins og við bjuggumst við. Maður sér fyrir sér gífurlega ham- ingjutilfinningu í góðu veðri, að gefa hvor öðrum fimmu og brosa út í heiminn. Að enginn stæði hærra en maður á þessum tímapunkti,“ lýsir Heimir og heldur áfram: „Það er sannarlega góð tilfinning að komast á toppinn en eftir að hafa gengið í myrkri, í miklum kulda, í dularfullu mistri fram hjá látnum mönnum, kemur aðeins eitt upp í hugann: Hversu stutt er á milli lífs og dauða á þessu fjalli. Að komast hratt og örugglega niður af fjall- inu. Maður gleymir f lestu öðru á toppnum. Ef eitthvað gerist í 8.848 metra hæð er enginn að fara að bjarga þér.“ Siggi og Heimir stóðu saman á toppnum, hlið við hlið, og áttu fjallið í korter. En sögunni lýkur ekki á toppnum eins og í kvik- myndunum því niðurleiðin er einn erfiðasti hluti ferðarinnar. Þegar göngugarparnir komust í búðir fjögur var ljóst að súrefnið og matarbirgðirnar voru af skorn- um skammti og þurftu þeir f ljót- lega að leggja af stað niður í búðir númer tvö. Heimir var orðinn mjög þreyttur og nánast alveg orkulaus þegar komið var í búðir þrjú. „Þetta var langerfiðasti dagurinn sem ég hafði upplifað. Að komast niður í búðir tvö tók gífurlega á og ég lagði hausinn í ísinn oftar en ég gat talið.“ Siggi var í aðeins betri málum en kapparnir voru að þrotum komnir þegar þeir skiluðu sér loks í búðir tvö, búnir að klifra í 24 klukku- stundir. Þá fór Siggi að veikjast og monsúntíminn var hafinn með mikilli snjókomu. „Það var ekkert flugveður og þar sem Siggi var ekkert að skána var ljóst að við þyrftum að koma okkur niður í grunnbúðir sem allra fyrst. Eftir að hafa verið fastir í búðum tvö í þrjár nætur ákváðum við að við skyldum reyna að koma okkur niður Khumbu-skriðjökulinn og niður í grunnbúðir.“ Þeir höfðu ekki gengið nema um 50 metra frá búðum tvö þegar Siggi virtist ætla að hníga niður. En þeir komust þó á leiðarenda eftir ellefu daga ferð á fjallinu sem átti að taka um sjö daga í heildina. Ferðin tók alls 86 daga, sextán dögum fram yfir það sem Heimir og Siggi höfði gert ráð fyrir. Þeir náðu síðasta fluginu frá landinu áður en gos hófst í Geldingadölum þann 19. mars og sneru aftur heim til Íslands þann 11. júlí síðastliðinn með nýja titla í farteskinu, Everest-farar. n Hér má sjá göngumenn á ferðinni um miðja nótt í gegnum Khumbu skriðjökul. Myrkur og kuldi alltumlykjandi. 24 Helgin 26. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.