Fréttablaðið - 26.06.2021, Side 28
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Ég er svo glöð að sumarið sé
komið. Nú get ég farið að njóta
golfsins af kappi í góða veðrinu.
Síðastliðið ár hef ég stundað
OsteoStrong og er mjög ánægð
með hvað styrkurinn hefur aukist
hjá mér. Ég hef ekki verið í annarri
hreyfingu en það er ólíkt mér,“
segir Jóhanna Elínborg, sem starfar
sem viðskiptafræðingur.
„Æfingarnar taka mjög stuttan
tíma þannig að maður áttar sig
ekki alveg strax á því hversu
maður er í raun að beita sér mikið.
Árangurinn er ótrúlegur,“ segir
hún. „Ég er bæði hraðari í yfirferð
og snarpari eftir að ég byrjaði að
stunda OsteoStrong auk þess að
vera léttari á mér. Eitt af því sem ég
elska að gera á sumrin er að stunda
golf. Það varð rosalega mikil
breyting á mér á stuttum tíma í
golfinu. Ég lækkaði forgjöfina um
tvo á stuttum tíma.“
Beinþynning erfist
Jóhanna segist hafa byrjað í
OsteoStrong því hún vildi fyrir
byggja beinþynningu. „Ég horfði
upp á mömmu mína mjaðma
brjóta sig en fyrir hana var það
byrjunin á endalokunum. Það var
mjög sárt að horfa upp á það. Ég
veit að það er langtímaverkefni að
vinna upp beinþéttni en ég stunda
OsteoStrong sem forvörn,“ segir
hún.
„Ég hef ekki enn látið mæla
breytingu á beinþéttni en hef tekið
eftir breytingum, líkaminn er
farinn að vinna vel með mér. Vöðv
arnir hafa styrkst og mér finnst
ég líta betur út. Ég hef lent í því að
detta og meiða mig en hef náð mér
alveg ótrúlega hratt aftur. Áverkar
eftir byltur sem ég hélt að myndu
halda aftur af mér í lengri tíma
hafa horfið á nokkrum dögum.
Allur bati hjá mér er svo ótrúlega
hraður og ég þakka það þessari
uppbyggingu sem OsteoStrong
hefur veitt mér,“ segir Jóhanna.
Flottur vöðvi
„Eitt sem er mjög skemmtilegt.
Þegar ég fékk Pfizersprautuna þá
heilsaði mér hjúkrunarfræðingur
inn sem átti að sprauta mig mjög
glaðlega og sprautaði mig hratt og
örugglega. Þegar hún var að fara þá
klappar hún svona fallega á öxlina
á mér og segir „flottur vöðvi“ og
ég get ekki þakkað það öðru en
OsteoStrong,“ segir Jóhanna og
brosir. „Þetta er staðreynd. Ég er
bara með alveg ofboðslega flotta
vöðva á handleggjum og flott
vaxtarmót þótt ég segi sjálf frá.
Þegar hjúkrunarfræðingurinn
nefndi þetta við mig datt mér í hug
að líklegast væri betra að sprauta
mann ef vöðvarnir eru sterkir. Í
öllu atinu í Höllinni gaf hún sér
tíma til þess að segja þetta við
mig,“ segir Jóhanna glaðlega.
Síðasta ár í vinnu
Jóhanna ætlar að ferðast um landið
í sumar og stefnir á Vesturland.
„Ég stunda sund reglulega og ég
ætla að njóta allra þessara dásam
legu sundlauga sem maður finnur
um allt land. Ég nýt þess mjög að
vera í þessum flottu laugum okkar.
Ég hef sömuleiðis alltaf dansað
mikið. Var í sýningarflokki Þjóð
dansafélags Reykjavíkur og dans
aði með þeim í um 20 ár. Þetta var
heilmikil starfsemi á sínum tíma
og ég dansaði gömlu dansana allar
helgar. Á laugardögum dansaði
maður til korter í eitt og hljóp svo
heim í strætó. Núna dansa ég allt
of lítið en bregð mér þó í Zumba
Gold. Covid hefur svo sem breytt
þessu öllu saman svo ég hef bara
verið í lágmarks ástundun undan
farið ár,“ segir hún.
„Það er leiðinlegt hvað margt
hefur þurft að sitja á hakanum.
Ég hlakka til í haust þegar engar
Covidhömlur verða lengur. Þá
getur maður aftur farið að hlakka
til að stunda þá hreyfingu sem er
skemmtileg, OsteoStrong, Zumba
og æfingar hjá Óperukórnum
í Reykjavík sem Garðar Cortes
leiðir. Vonandi getum við svo flutt
sálumessu eftir Mozart í desember.
Henni þurfti að fresta í fyrra og ég
get eiginlega bara ekki annað ár án
þess að syngja þetta stórkostlega
verk með yndislegum kórfélögum
og mögnuðum stjórnanda.“
Frír prufutími
OsteoStrong býður upp á frían
prufutíma þar sem fólk getur
kynnst æfingunum og prófað
tækin. OsteoStrong er í Hátúni 12.
Bóka má tíma á osteo strong.is og í
síma 419 9200. ■
OsteoStrong útheimtir ekki langan tíma í æfingum. Þjálfunin er stutt en gefur góðan árangur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Meðal þess sem OsteoStrong gerir er að auka þol og þrek
ásamt því að styrkja vöðva og bein. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þeir sem stunda golf finna mikinn mun á sér á vellinum
eftir ástundun hjá OsteoStrong. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Golf og OsteoStrong
Niðurstöður könnunar sem gerð
var á reyndum iðkendum í golfi
leiddu í ljós verulega bætingu
í golfi með ástundun Osteo
Strong eftir aðeins mánaðar
ástundun. Meðaltals bæting á
snúningsgetu axla var um 13
gráður, hröðun kylfuhauss um
8,05 km á klst. og hraði golf
bolta jókst um 14,5 km á klst.
Jafnvægið er eitt af því fyrsta
sem meðlimir taka eftir að auk
ist. Meðal bæting er 77% á fimm
skiptum. Jafnvægi er lykilatriði
fyrir þá sem vilja ná árangri í
golfi. Það hjálpar til dæmis við
að enda sveifluna með þungann
framar á fótum.
Svíinn Sophila Gustafson,
sem er fimmfaldur meistari
á LPGAmótaröðinni, þeirri
sterkustu í heimi, lífstíðarmeð
limur á Evrópumótaröðinni,
þeirri sterkustu í Evrópu, og
vann 23 alþjóðlega titla á sínum
keppnisferli, var svo ánægð
með OsteoStrong að hún gerð
ist einn af eigendum Osteo
Strong í Svíþjóð og Danmörku.
Jafnvægið er eitt
af því fyrsta sem
meðlimir taka eftir að
aukist.
2 kynningarblað A L LT 26. júní 2021 LAUGARDAGUR