Fréttablaðið - 26.06.2021, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 26.06.2021, Blaðsíða 28
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit­ stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Ég er svo glöð að sumarið sé komið. Nú get ég farið að njóta golfsins af kappi í góða veðrinu. Síðastliðið ár hef ég stundað OsteoStrong og er mjög ánægð með hvað styrkurinn hefur aukist hjá mér. Ég hef ekki verið í annarri hreyfingu en það er ólíkt mér,“ segir Jóhanna Elínborg, sem starfar sem viðskiptafræðingur. „Æfingarnar taka mjög stuttan tíma þannig að maður áttar sig ekki alveg strax á því hversu maður er í raun að beita sér mikið. Árangurinn er ótrúlegur,“ segir hún. „Ég er bæði hraðari í yfirferð og snarpari eftir að ég byrjaði að stunda OsteoStrong auk þess að vera léttari á mér. Eitt af því sem ég elska að gera á sumrin er að stunda golf. Það varð rosalega mikil breyting á mér á stuttum tíma í golfinu. Ég lækkaði forgjöfina um tvo á stuttum tíma.“ Beinþynning erfist Jóhanna segist hafa byrjað í OsteoStrong því hún vildi fyrir­ byggja beinþynningu. „Ég horfði upp á mömmu mína mjaðma­ brjóta sig en fyrir hana var það byrjunin á endalokunum. Það var mjög sárt að horfa upp á það. Ég veit að það er langtímaverkefni að vinna upp beinþéttni en ég stunda OsteoStrong sem forvörn,“ segir hún. „Ég hef ekki enn látið mæla breytingu á beinþéttni en hef tekið eftir breytingum, líkaminn er farinn að vinna vel með mér. Vöðv­ arnir hafa styrkst og mér finnst ég líta betur út. Ég hef lent í því að detta og meiða mig en hef náð mér alveg ótrúlega hratt aftur. Áverkar eftir byltur sem ég hélt að myndu halda aftur af mér í lengri tíma hafa horfið á nokkrum dögum. Allur bati hjá mér er svo ótrúlega hraður og ég þakka það þessari uppbyggingu sem OsteoStrong hefur veitt mér,“ segir Jóhanna. Flottur vöðvi „Eitt sem er mjög skemmtilegt. Þegar ég fékk Pfizer­sprautuna þá heilsaði mér hjúkrunarfræðingur­ inn sem átti að sprauta mig mjög glaðlega og sprautaði mig hratt og örugglega. Þegar hún var að fara þá klappar hún svona fallega á öxlina á mér og segir „flottur vöðvi“ og ég get ekki þakkað það öðru en OsteoStrong,“ segir Jóhanna og brosir. „Þetta er staðreynd. Ég er bara með alveg ofboðslega flotta vöðva á handleggjum og flott vaxtarmót þótt ég segi sjálf frá. Þegar hjúkrunarfræðingurinn nefndi þetta við mig datt mér í hug að líklegast væri betra að sprauta mann ef vöðvarnir eru sterkir. Í öllu atinu í Höllinni gaf hún sér tíma til þess að segja þetta við mig,“ segir Jóhanna glaðlega. Síðasta ár í vinnu Jóhanna ætlar að ferðast um landið í sumar og stefnir á Vesturland. „Ég stunda sund reglulega og ég ætla að njóta allra þessara dásam­ legu sundlauga sem maður finnur um allt land. Ég nýt þess mjög að vera í þessum flottu laugum okkar. Ég hef sömuleiðis alltaf dansað mikið. Var í sýningarflokki Þjóð­ dansafélags Reykjavíkur og dans­ aði með þeim í um 20 ár. Þetta var heilmikil starfsemi á sínum tíma og ég dansaði gömlu dansana allar helgar. Á laugardögum dansaði maður til korter í eitt og hljóp svo heim í strætó. Núna dansa ég allt of lítið en bregð mér þó í Zumba Gold. Covid hefur svo sem breytt þessu öllu saman svo ég hef bara verið í lágmarks ástundun undan­ farið ár,“ segir hún. „Það er leiðinlegt hvað margt hefur þurft að sitja á hakanum. Ég hlakka til í haust þegar engar Covid­hömlur verða lengur. Þá getur maður aftur farið að hlakka til að stunda þá hreyfingu sem er skemmtileg, OsteoStrong, Zumba og æfingar hjá Óperukórnum í Reykjavík sem Garðar Cortes leiðir. Vonandi getum við svo flutt sálumessu eftir Mozart í desember. Henni þurfti að fresta í fyrra og ég get eiginlega bara ekki annað ár án þess að syngja þetta stórkostlega verk með yndislegum kórfélögum og mögnuðum stjórnanda.“ Frír prufutími OsteoStrong býður upp á frían prufutíma þar sem fólk getur kynnst æfingunum og prófað tækin. OsteoStrong er í Hátúni 12. Bóka má tíma á osteo strong.is og í síma 419 9200. ■ OsteoStrong útheimtir ekki langan tíma í æfingum. Þjálfunin er stutt en gefur góðan árangur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Meðal þess sem OsteoStrong gerir er að auka þol og þrek ásamt því að styrkja vöðva og bein. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þeir sem stunda golf finna mikinn mun á sér á vellinum eftir ástundun hjá OsteoStrong. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Golf og OsteoStrong Niðurstöður könnunar sem gerð var á reyndum iðkendum í golfi leiddu í ljós verulega bætingu í golfi með ástundun Osteo­ Strong eftir aðeins mánaðar ástundun. Meðaltals bæting á snúningsgetu axla var um 13 gráður, hröðun kylfuhauss um 8,05 km á klst. og hraði golf­ bolta jókst um 14,5 km á klst. Jafnvægið er eitt af því fyrsta sem meðlimir taka eftir að auk­ ist. Meðal bæting er 77% á fimm skiptum. Jafnvægi er lykilatriði fyrir þá sem vilja ná árangri í golfi. Það hjálpar til dæmis við að enda sveifluna með þungann framar á fótum. Svíinn Sophila Gustafson, sem er fimmfaldur meistari á LPGA­mótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi, lífstíðarmeð­ limur á Evrópumótaröðinni, þeirri sterkustu í Evrópu, og vann 23 alþjóðlega titla á sínum keppnisferli, var svo ánægð með OsteoStrong að hún gerð­ ist einn af eigendum Osteo­ Strong í Svíþjóð og Danmörku. Jafnvægið er eitt af því fyrsta sem meðlimir taka eftir að aukist. 2 kynningarblað A L LT 26. júní 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.