Fréttablaðið - 26.06.2021, Page 30
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
Tónlistarmaðurinn og súpu-
kokkurinn Daníel Óliver
hefur fundið sína hillu í
tónlistinni. Hann tileinkar
ástinni sinni nýja lagið Feels
like home, enda líður honum
eins og heima í faðmi hans.
Líka í Vík þar sem hann
rekur vinsælt súpueldhús.
„Vík er æðislegt þorp; opinn, vina-
legur og skemmtilegur bær. Hér
er dásamlegt að búa, bæði út af
náttúrufegurðinni og fjölmenn-
ingarlegu samfélaginu sem hér er.
Hingað kemur fólk til starfa frá
öllum heimshornum, kolfellur
fyrir Vík og sest hér að. Þannig er
það hjá okkur í Súpufélaginu og
það indæla fólk er orðið eins og
vinir okkar og fjölskylda,“ segir
tónlistarmaðurinn Daníel Óliver
þar sem hann stendur yfir súpu-
pottunum í Súpufélaginu í Vík og
sker niður ferska, íslenska sveppi
ofan í rjómalagaða sveppasúpu
sem hann lagar frá grunni.
Vík í Mýrdal er í brennidepli
nýjustu sjónvarpsþáttaraðar
Baltasars Kormáks, Kötlu, sem nú
er í sýningu á Netflix.
„Ég hámhorfði á Kötlu á einum
og sama deginum. Ég viðurkenni
að það var hrollvekjandi að horfa
á heimabæinn sinn í þessum
álögum og þegar ég kláraði seríuna
seint um kvöld fór ég út í göngu-
túr og þá fór verulega um mig. Ég
varð smeykur við tilhugsunina um
að Katla færi að gjósa, sem getur
alltaf gerst, og sú tilfinning var
óþægileg því þættirnir höfðu áhrif
á mig. Annars brostu Víkurbúar út
í annað að óraunverulegu ösku-
magninu í þáttunum því ef Katla
gysi yrði svo mikil aska á þökum
húsanna í Vík að þau hryndu, eins
og gerðist í gosinu í Heimaey. Samt
alveg ótrúlega flottir þættir og
ég heyri að Víkurbúar eru mjög
ánægðir með þá,“ segir Daníel.
Heimilið er í hjörtum fólksins
Á öldum ljósvakans hljómar nú
nýjasta lag Daníels Ólivers, Feels
like home, oft á dag.
„Lagið fjallar um það að finna
heimili í öðru fólki. Mér finnst það
áhugavert því sjálfur lifi ég tvö-
földu lífi, til skiptis í Vík og í Sví-
þjóð, og báðir staðirnir eru heimili
mitt. Heimili manns er þó ekki
bundið stöðunum sjálfum heldur
fólkinu sem maður tengist í lífinu.
Ég missi af því sem gerist hjá fólk-
inu mínu á báðum stöðum þegar
ég er fjarri og því er svo mikilvægt
að eiga heimastað í fólkinu sínu,
því þegar maður kemur til baka
er eins og maður hafi aldrei kvatt
Varð smeykur undir Kötlu eftir Kötlu
Daníel Óliver á nú eitt af vinsælustu
lögum sumarsins. MYND/GÜLCAN GETIN
Daníel Óliver
með móður
sinni, Margréti
Reynisdóttur,
og systur, Krist-
rúnu Friðsemd,
í Súpufélaginu
þeirra í Vík í
Mýrdal.
MYND/UNNUR
MAGNA
né farið. Það var kveikjan að Feels
like home og ég tileinka lagið fal-
lega manninum mínum sem þarf
að bíða mín mánuðum saman í
Svíþjóð en þegar við svo hittumst
er eins og það hafi gerst í gær. Slík
er tilfinningin, eins og að koma
heim,“ útskýrir Daníel.
Í nýja laginu kveður við nýjan
tón hjá Daníel en lagið er það fyrsta
sem heyrist af nýrri plötu hans sem
kemur út með hnígandi sól.
„Já, ég virðist hafa fundið mína
fjöl. Ég hef alltaf haft gaman af
popptónlist frá seventís-, eitís- og
næntís-tímabilunum, reyndi að
blanda áhrifum frá þeim í nýju
lögin og finnst það koma vel út. Ég
hef lengi leitað að mínu eigin sándi
og það hefur örugglega tekið mig
ein tíu ár, en nú í fyrsta sinn datt ég
inn á lag sem bæði ég og hlustend-
ur hafa gaman af, og sem passar
mér mjög vel og er rosa mikið ég.“
Til í Eurovision með tröllatrú
Feels like home er líka fyrsta lag
Daníels Ólivers sem fer beint inn á
vinsældalista Rásar 2.
„Það er náttúrlega mjög spenn-
andi og óneitanlega gaman að fá
svo góða byrjun. Það hvetur mann
áfram til að gera vel,“ segir Daníel
og gleðst við.
„Þetta er líka fyrsta lagið sem
ég sem og nær til ólíkra aldurs-
hópa. Ég fæ mikil viðbrögð frá
ungu fólki en líka þeim sem eru
eldri en foreldrar mínir, og lagið
höfðar eflaust líka til þeirra sem
voru yngri á eitís-tímabilinu. Það
er frábært að geta tekið eldri tón-
list og vafið henni í nýjan búning
sem virkar áratugum seinna. Nú
fer eitís-æði yfir heiminn á ný og ég
verð líka að þakka kanadíska tón-
listarmanninum The Weeknd fyrir
að opna fyrir eitís-áhrif í popp-
tónlist vestra. Líka Peter, sem er
aðalútsetjarinn minn og forfallinn
eitís-aðdáandi. Honum tekst alltaf,
hvort sem hann reynir eða ekki, að
koma eitís-áhrifum í lögin og þau
leyna sér ekki í Feels like home,
með fölskum hljóðgervli í byrjun,“
segir Daníel sem notaði heims-
faraldurinn til að taka upp nýju
plötuna í Svíþjóð.
Platan er nú í hljóðblöndun en
tónlisina vinnur Daníel í samstarfi
við Peter og annan sænskan mann
sem hann eignaðist að vini þegar
þeir námu allir upptökustjórn í
Svíþjóð.
„Það er skrýtin en skemmtileg
tilfinning að heyra nýja lagið sitt
spilað hér og þar, og ég reyni að
njóta þess á meðan það endist. Enn
áhugaverðari tilfinning er þegar
maður verður þess var að fólk
syngur með lögunum manns. Það
fyllir mann stolti.“
Daníel hyggur á útgáfutónleika
þegar nýja platan kemur út og
er strax með þrjá tónleikastaði
í huga; Reykjavík, Stokkhólm
og Súpufélagið í Vík, þar sem er
stórkostlegur hljómburður. Hann
hefur tvisvar tekið þátt í undan-
keppni Eurovision hér heima.
„Í fyrsta sinn komumst við í
úrslit með lag sem ég hafði trölla-
trú á og var viss um að við tækjum
alla leið, en í seinna skiptið með
lag sem mér fannst mjög fallegt
en hefði ekki sjálfur valið að fara
með og floppaði. Maður verður
að treysta innsæinu og velja sinn
vitjunartíma vel, og ef ég reyni
aftur verð ég með lag sem ég hef
óbilandi trú á.“
Kærastinn kemur í haust
Gestagangurinn á veitingastað
Daníels Ólivers, Súpufélaginu í Vík,
er mikill þessa dagana.
„Það er vitlaust að gera og gesta-
fjöldinn eins og Covid hafi aldrei
gerst; stöðugt streymi íslenskra
ferðalanga í sumarfríi og svo erlent
ferðafólk, mestmegnis Amerík-
anar,“ upplýsir Daníel sem lagar
dýrindis súpur alla daga, og langt
fram á kvöld.
„Ég hef alltaf verið mikill súpu-
kall og þar er íslenska kjötsúpan í
mestu dálæti. Hún er alltaf í boði
hér í Vík, en ég elda hana aldrei í
Svíþjóð því þar er svo erfitt að fá
gott lambakjöt,“ segir Daníel, sem
er jafnan með fimm til sex súpur
í boði, einnig samlokur, heima-
bakað brauð og kökur, kaffi og
kokteilbar.
„Ég nýt þess að elda og taka á
móti gestum. Staðurinn er hálf-
gerð félagsmiðstöð því Víkurbúar
koma hingað oft til að fá sér kaffi
og hingað kemur skemmtileg
blanda alls konar fólks og innan
um margir sem maður kannast
við og þekkir. Hér hittist fólk fyrir
jöklaferðir með Zipline og í húsinu
er líka Icelandic Lava Show. Því er
alltaf líf og fjör hjá okkur.“
Með Daníel í Súpufélaginu er
móðir hans, Margrét Reynisdóttir,
og systir hans, Kristrún Friðsemd.
„Mamma er frá Vík og hér býr
öll stórfjölskyldan. Súpufélagið
varð fjögurra ára í maí og verður
vonandi lengi til enn, við stöndum
vaktina alla daga og finnst það
alltaf jafn gaman. Það kemur
svo sem fyrir að ég taki lagið yfir
pottunum en líka að fjölskyldan
spili lögin mín fyrir gestina, sem
er mjög súrrealískt, en þau eru svo
stolt af mér og vilja veg minn sem
mestan,“ segir Daníel og hlær.
Fyrir kemur líka að fólk kannist
við tónlistarmanninn Daníel
Óliver á veitingastaðnum.
„Já, og um daginn kom danskt
par sem sagðist hafa haldið með
mér í Söngvakeppninni 2015 og
vildi endilega fá mynd af mér
sveittum í svuntunni. Þá er mikið
rennerí af alls konar fólki í súpu-
disk en ég er svo ómannglöggur
og þekki ekki alltaf fræga fólkið
innan um. Ég heyri bara af því frá
hinum.“
Fram undan er íslenskt sumar
án sænska kærastans, Daniels
Nyback.
„Daniel er auðvitað alls ekki
sáttur við endalausa fjarveru mína
og orðinn mjög leiður á þessu.
Hann er því að hugsa um að flytja
til Víkur í október og við ætlum að
taka ár hér heima. Hann hefur auð-
vitað oft komið til Víkur, þekkir
hér alla og finnst Ísland vera sitt
annað heimili. Ég verð því yfir
súpupottunum í sumar og klára
plötuna, fer svo út og næ í Daniel,
og svo tökum við okkur pásu frá
Svíþjóð.“ ■
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI +D3 FYRIR HEILSUNA
Arctic Star sæbjúgnahylki+D3 innihalda yfir fimmtíu
tegundir af næringarefnum og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húð- próteins og insúlíns
• Stuðla að eðlilegri upptöku kalsíums
og fosfórs
• Stuðla að viðhaldi beina, tanna og vöðva
• Stuðla að bættri starfsemi ónæmis-
kerfisins
• D-vítamín hefur hlutverki að gegna við
frumuskiptingu.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA,
Framleiðandi er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fast á
www.arcticstar.is
Arctic Star Sæbjúgnahylki +D3
Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum,
Hagkaupum, og Fjarðakaup.
4 kynningarblað A L LT 26. júní 2021 LAUGARDAGUR