Fréttablaðið - 26.06.2021, Síða 52
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria
@frettabladid.is
Það gerist ekki oft að veðrið
sé álitlegra á sunnanverðu
horninu en fyrir norðan eða
austan en það á víst að vera
sól og blíða á sunnanverðu
landinu í dag.
Það er víst að veðurguðirnir geta
ekki blessað alla landvættina sam-
tímis. Því er ekki hjólhýsaveður
og ekki æskilegt að vera að ferðast
langt frá borginni. En það má vel
kíkja í smá bíltúr á suðvestur-
horninu og skella sér í spássitúr í
bæjunum þar eða úti í guðsgrænni
náttúrunni.
Það má til dæmis kíkja upp í
Reykjadal fyrir ofan Hveragerði
og baða sig í hlýjum læk eða heilsa
upp á hana Guðlaugu, heita pott-
inn í sjávarmálinu við Akranes.
Esjan er að vanda sívinsæl til
gönguferða en fjölmörg önnur
fjöll er að finna á Suðurlandinu.
Akrafjall er líka stórskemmtilegt
til fjallgöngu sem og Hafnarfjall
sem býður upp á yfir 800 metra
hækkun og gríðarlegt útsýni yfir
Borgarfjörðinn. Svo stendur Helga-
fell í Hafnarfirði alltaf fyrir sínu.
Grilllykt í loftinu
Vindinn á þó að lægja víðast hvar
seinnipartinn og þá er um að gera
að fýra upp í grillunum og skella
einhverju góðmeti á olíubornar
grindurnar. Fiskur hentar ekki
síður á grillið en kjöt og þá koma
risarækjur sterkar inn.
Risarækju- og ananastakó
Risarækjur, stórar (um 21/25 í
kílói)
Ananas, ferskur
Sriracha-sósa (og jógúrt eða
majones)
Mjúkar hveiti- eða maístakóskeljar
Meðlæti
Kóríander
Fetaostkubbur
Tómatar
Avókadó
Romaine eða annað brakandi salat
Grísk jógúrt
Lime
Þíðið risarækjur, um tvær fyrir
hverja takóskel. Skerið ferskan
ananas í jafnmarga bita í svipaðri
stærð. Þerrið rækjurnar og setjið í
skál með ananasbitunum. Sprautið
sriracha-sósu yfir og veltið rækjum
og ananas um þar til sósan þekur
hvern bita. Látið standa á meðan
meðlæti er skorið. Ef þið viljið
milda marineringuna er hægt að
Rækileg sunnansæla
Gönguleiðin
upp í Reykjadal
er gullfalleg og
þar má sjá fal-
lega hveri vítt
og breitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Rækjutakó
klikkar ekki á
grillið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Það verður
gaman að kíkja
í Árbæjarsafn á
sunnudaginn.
MYND/LISA
SHANNEN
skella matskeið af grískri jógúrt eða
majonesi út í blönduna.
Næst eru rækjurnar þræddar
upp á grillspjót og ananasinn
sömuleiðis. Hafið í huga að
ananasinn þarf lengri tíma til að
eldast. Svo er ekkert eftir nema að
grilla á miðlungs/háum hita og
njóta.
Gott er að bera fram með
mjúkum takóskeljum úr hveiti eða
maís, hituðum á pönnu eða á grill-
inu, söxuðu kóríander, söxuðum
tómötum, niðurskornu avókadó,
brakandi kálsalati, kurluðum feta-
osti (ekki í olíu) og grískri jógúrt.
Kreistið svo lime yfir allt.
Sunnudagur til sælu
Sunnudagurinn ætti að vera
mildur, að minnsta kosti á höfuð-
borgarsvæðinu, og þá er um að
gera að skella sér í menningarferð í
Árbæjarsafn. Sunnudagur til sælu
er yfirskrift sunnudagsins 27. júní
á Árbæjarsafni en þá býðst gestum
að upplifa ferðalag aftur í tímann.
Dagskráin hefst klukkan 13 og
stendur til klukkan 16. Starfs-
fólk safnsins klæðist fatnaði sem
tíðkaðist á 19. öld og sinnir ýmsum
störfum sem nauðsynleg eru á
hverjum bæ. Húsfreyjan í Árbæ
býður upp á nýbakaðar lummur,
á baðstofuloftinu situr kona við
tóskap og í safnhúsi sem nefnist
Miðhús er prentari að störfum.
Landnámshænurnar vappa um
safnsvæðið og í haga eru kindur
og lömb. í Dillonshúsi er heitt á
könnunni og heimabakað góð-
gæti. Ókeypis aðgangur fyrir börn,
öryrkja og menningarkortshafa.
Safnið er opið í allt sumar frá
klukkan 10–17. ■FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
FERÐAST Í SUMAR
Þriðjudaginn 1. júlí gefur Fréttablaðið út sérblaðið: Ferðast í sumar.
Fyrsta helgin í júlí er ávallt ein stærsta ferðahelgi sumarsins og ætlum
við því að vera tilbúin fyrir ferðaþyrsta Íslendinga sem ætla að bruna um
landið í leit að sól og gleði.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við:
Jóhann Waage, sölu- og markaðsfulltrúa
Sími 550 5656 / johannwaage@frettabladid.is
6 kynningarblað A L LT 26. júní 2021 LAUGARDAGUR