Fréttablaðið - 26.06.2021, Page 56
Drífa Atladóttir og Hrafn-
hildur Sigmarsdóttir blanda
saman austrænum fræðum
jógavísinda við vestræn vís-
indi í námskeiðum og ferðum
sem þær halda undir nafninu
Íslenskar seiðkonur. Þær
leggja áherslu á mýkt, mildi
og að fólki sé ekki ýtt út í eitt-
hvað sem það vill ekki.
„Hugmyndin að baki Seiðkonum
var að okkur fannst vanta þessa
nálgun, að blanda saman aust-
rænum fræðum í jógavísindunum
við vestræn vísindi og rannsóknir.
Við erum báðar með akadem-
ískan bakgrunn. Drífa í uppeldis-,
menntunar- og lýðheilsufræðum
og ég í mannfræði og sálfræði og
við vildum nýta þá styrkleika,“
segir Hrafnhildur.
Hún segir að nafnið komi frá
konum sem voru taldar óstýri-
látar, sjálfstæðar og oft á undan
sinni samtíð .
„Okkur fannst nafnið fallegt og
við vildum heiðra þessar konur,“
segir Drífa.
Þær eru með ólíkan bakgrunn
og gera í raun allt aðra hluti dags-
daglega. Hrafnhildur starfar hjá
Bjarkarhlíð við að aðstoða þol-
endur of beldis og Drífa rekur og á
Jóga stúdíó í Ánanaustum.
„Ég hef tekið eftir því í minni
vinnu hversu miklu máli skiptir
að vera með áfallamiðaða nálgun
og það var eitthvað sem við Drífa
vorum sammála um alveg frá upp-
hafi. Að skapa öruggt rými þar sem
fólk getur mætt til okkar alger-
lega á sínum forsendum. Það er
engin krafa gerð um tjáningu eða
að gefa upp ástæðu fyrir komu,“
segir Hrafnhildur og leggur mikla
áherslu á orð sín.
Hún segir að þær leggi ekki ein-
ungis áherslu á andlega hlutann
heldur einnig lífeðlisfræðileg ferli
eins og taugakerfið þegar kemur
að streitustjórnun og úrvinnslu
áfalla. Þær leggja áherslu á að
útskýra á mannamáli hvernig
taugakerfið skiptist í drifkerfi og
sef kerfi og hvernig áföll og erfið
upplifun geta sett jafnvægi kerf-
anna úr skorðum.
Drifkerfið ofurnæmt og ráðandi
Hrafnhildur segir að margt í vest-
rænu samfélagi, eins og langvinn
streita, áföll, kvíði, heimilisof beldi
og of beldi í nánum samböndum,
geti haft þau áhrif að drif kerfi
okkar verði ofurnæmt og ráðandi.
„Það eru fjölmargar rannsóknir
sem sýna fram á að afleiðingarnar
af því að vera með drif kerfið í
sífelldri spennu eru þær að líkam-
inn getur þróað með sér fjölmarga
heilsufarsbresti og örmagnast. Það
er það sem er að gerast með svo
margar konur í okkar samfélagi.
Þær eru bara að klessa á veggi með
algjörlega tóman orkutank,“ segir
Hrafnhildur.
Drífa segir þær einbeita sér að
konum. Það hafi ekki verið það
sem þær ákváðu í upphafi en nám-
skeiðin hafi þróast þannig og þeim
þyki orkan sem fylgi konum sterk,
heilandi og falleg.
„Við erum að hjálpa fólki að
virkja hinn hluta taugakerfisins,
sem er sef kerfið. Það virkar best
þegar líkaminn er í algerri slökun
og hvíld. Þá lækkar blóðþrýstingur
og hægist á hjartslætti. Sef kerfið
hjálpar líkamanum og huganum að
búa til kjöraðstæður svo að líkam-
inn geti heilað sig sjálfur, gert við
sig í friði,“ segir Drífa.
Þær nota bæði yin jóga og jóga
nidra, sem eru gagnreyndar aðferð-
ir til að virkja sef kerfið og kyrra
drifkerfið. Þær nota einnig skálar,
trommur, gong og áfallamiðaða
hugleiðslu, sem þýðir að ekki er
um að ræða beinskeitt, afgerandi
eða krefjandi inngrip.
Konur klessa á veggi með tóman tank
Drífa Atladóttir
og Hrafnhildur
Sigmarsdóttir
eru íslenskar
seiðkonur.
MYND/SUNNA BEN
Drífa og Hrafnhildur nota trommur í vinnu sinni með
konunum sem koma á námskeiðin þeirra. MYND/SUNNA BEN
Þær segja að
það eigi ekki að
ýta fólki út í að
gera upp erfið
áföll.
MYND/SUNNA BEN
Þær nota einnig gong á námskeiðunum MYND/SUNNA BEN
Fá aðstoð við tjáningu
„Það er gert ráð fyrir því að þú hafir
upplifað eitthvað erfitt og okkur ber
að nálgast þig þannig,“ segir Hrafn-
hildur.
Drífa segir að þannig skapi þær
aðstæður þar sem tilf inninga-
úrvinnsla geti farið fram á eigin for-
sendum fólks í öruggu rými.
„Það er svo valdeflandi þegar þú
færð að gera hlutina á þínum for-
sendum. Ekki að þér sé stillt upp
í hópi og þú krafin um einhverja
tjáningu. Það er mörgum óþægilegt
og þegar þú hefur lent í áfalli getur
það haft þau áhrif að þú bara mætir
ekki aftur,“ segir Drífa.
Þær segja að hafi fólk þörf á að
tjá sig eða fá aðstoð við krefjandi
tilfinningar eða upplifun, þá leggi
þær áherslu á að vera til staðar
þegar viðburði eða námskeiði
lýkur.
„Þar kemur fagþekking okkar
og sérfræðikunnátta að góðum
notum. Oftar en ekki hef ég bent
konum á að panta tíma hjá okkur í
Bjarkarhlíð og þar er hægt að greina
vandann í öruggu rými og koma
fólki í viðeigandi stuðningsúrræði
ef það kýs svo,“ segir Hrafnhildur
og Drífa tekur undir það.
„Fólk kemur til okkar á sínum for-
sendum og vinnur þar af leiðandi
einnig á sínum forsendum og þess
vegna koma sumar konur aftur og
aftur. Það er svo fallegt að sjá hvern-
ig fólk er að hjálpa sér sjálft,“ segir
Drífa.
Spurðar hvernig viðburðum þær
standa fyrir, segja þær að það séu
stakir viðburðir, námskeið, og utan-
lands- og innanlandsferðir.
„Við stöndum, meðal annars, fyrir
námskeiði sem heitir Seiðkonu-
hringur. Það námskeið snýst um
kerfisbundna eftirtekt og afvopnun
á krefjandi tilfinningum í öruggu
rými og er ákveðið þema tekið fyrir
í hverjum tíma,“ segir Hrafnhildur.
Þær segja að vegna Covid-19 hafi
þær auðvitað ekki komist í utan-
landsferðirnar, en í staðinn hafi þær
skipulagt ferðir í Sólheima í Gríms-
nesi þar sem konur geta dvalið heila
helgi, endurnært sig og hlaðið.
„Þar tökum við námskeiðið
okkar, Seiðkonuhring, á styttri
tíma og dagskráin er þéttari, mikið
er í boði, nóg af hvíld og maturinn
æðislegur,“ segir Hrafnhildur.
Engin jóga-steríótýpa
Þær segja að fólk þurfi ekki að vera
andlega þenkjandi til að koma á
námskeiðin, eða uppfylla einhvers
konar fyrirfram ákveðna formgerð
af fólki sem stundar jóga.
„Við rekum okkur oft á að það séu
skilaboðin þarna úti, að þú þurfir að
vera svo rosalega andlega þenkjandi,
vegan og allur pakkinn til þess að
stunda líf í jóga-anda, en það er ekki
rétt. Allir hafa þörf fyrir hvíld og
endurheimt á orku. Þú getur verið í
jóga og haft áhuga á því án þess að
vera nokkuð andlega sinnaður og
hvatinn getur verið bara að vinna
með taugakerfið,“ segir Hrafnhildur.
Þær segja að öll nálgun á nám-
skeiðum þeirra felist í áfallamiðaðri
hugleiðslu og hreyfingum og það sé
stöðug áhersla á að gera það í mýkt
og mildi. Aukið tilfinningalæsi er
lykillinn að því að losna við erfiðar
tilfinningar.
„Það er ekkert verið að ýta fólki
í að gera upp erfið áföll. Svoleiðis
vinna á að eiga sér stað hjá sérhæfð-
um fagaðilum og heilbrigðiskerfinu.
Góður ásetningur, heillandi skrípa-
leikir eða ofmat á eigin ágæti eru
ekki næg forsenda til að vinna með
fólki sem er að vinna úr áföllum.
Þegar kemur að því að aðstoða fólk
við úrvinnslu f lókinna áfalla og
alvarlegra geðraskana verða leið-
beinendur að þekkja takmörk sín og
vísa til fagaðila,“ segir Hrafnhildur og
bætir við:
„Við leggjum áherslu á að tilfinn-
ingar líkt og reiði, skömm, kvíði
og vanlíðan megi koma upp. Þetta
eru tilfinningar sem eru orðnar allt
of neikvætt gildishlaðnar, sem er
miður, því þær eru eðlilegar og eru
bara tilfinningar sem eru partur af
eðlilegri og heilbrigðri tilfinninga-
flóru. Okkur ber að þekkja þær og
leyfa þeim að koma til okkar. Til-
finningar eru bara upplifun. Þær
eru ekki einkennandi fyrir okkur,
heldur eru þær einungis lýsandi
fyrir það sem þú ert að upplifa
hverju sinni og við eigum ekki að
hræðast þær, heldur þekkja þær
svo við getum gripið til heilbrigðra
bjargráða þegar þær koma til okkar
með offorsi.“
Hún segir að úrvinnsla erfiðra
tilfinninga krefjist alltaf hugrekkis
og finnst það mikil forréttindi að
fá að starfa við þetta með konum á
Íslandi, bæði í Bjarkarhlíð og með
Seiðkonum.
Næsta ferð Seiðkvenna á Sólheima
í Grímsnesi verður 27. til 29. ágúst.
Viðburðir og námskeið hefjast með
haustinu og allar nánari upplýsingar
er að finna á islenskarseidkonur.is ■
Lovísa
Arnardóttir
lovisaa
@frettabladid.is
28 Helgin 26. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ