Fréttablaðið - 26.06.2021, Qupperneq 65
Aftur-
hjóla-
drifna
útgáfa
MG R
Electric
er búin
tveimur
rafmót-
orum við
drifrásina
að aftan.
Framkvæmdir eru hafnar að
nýju bílasölusvæði að Krók-
hálsi 7. Um er að ræða nýtt og
fullkomið bílasölusvæði sem
mun bjóða upp á gríðarlega
gott úrval af notuðum bílum
frá öllum helstu bílamerkjum.
njall@frettabladid.is
Nýja bílasölusvæðið mun bera
heitið K7 sem vísar í Krókháls 7.
Þar verða 5 bílasöluhús og hefur K7
meðal annars gengið frá samningum
við Öskju – notaða bíla, Bílaland BL,
Bílabankann og Bílamiðstöðina.
Staðsetningin á nýja bílasölu-
svæðinu er sérlega góð á milli Hest-
háls – þar sem BL er með sölu og
þjónustu fyrir Jagúar og Land Rover
– og Krókháls, þar sem Bílaum-
boðið Askja er til húsa, en Askja er
umboðsaðili Mercedes-Benz, Kia
og Honda. Aðgengi á milli Hestháls
og Krókháls er því aukið sem bætir
aðgengi viðskiptavina að fyrirtækj-
um á svæðinu. Í hverfinu er því að
byggjast upp miðstöð bílaviðskipta
og verður þetta nýja bílasölusvæði
góð viðbót við þá flóru sem þegar er
staðsett þar.
Aðgengi á nýja bílasölusvæðið
er bæði frá Krókhálsi og Hesthálsi.
Hleðslustöðvar verða á svæðinu
enda rafbílasala að aukast á kom-
andi árum. Fullkomin lýsing er á
svæðinu og mikið verður lagt upp úr
snyrtilegum frágangi. Lóðin er rúm-
lega 23 þúsund fermetrar að stærð
og gert er ráð fyrir 800 stæðum. Það
er Arkís sem sér um hönnun svæðis-
ins og gert er ráð fyrir opnun á K7 í
haust. ■
Nýtt bílasölusvæði rís
við Krókháls 7
Tölvugerð loftmynd af svæðinu
sýnir lágreistar byggingar sem henta
þessu svæði vel.
njall@frettabladid.is
Porsche 911 GT2 RS hefur sett nýtt
hraðamet á Nurburgring fyrir fram-
leiðslubíl. Porsche bætti eldra met
um 4,747 sekúndur svo að nýtt met
er 6 mínútur, 43,3 sekúndur og var
meðalhraðinn 186 km á klst. Bíll-
inn sem átti fyrra met var Merce-
des-AMG GT Black Series. Sá sem
setti metið var tilraunaökumaður
Porsche að nafni Lars Kern, en hann
hefur áður sett met fyrir Porsche á
Nurburgring á Panamera og GT3.
Porsche GT2 RS bíllinn var með
sérstökum Manthey keppnisbúnaði
sem er sérhannaður fyrir Porsche
framleiðslubíla. Gerðar voru breyt-
ingar á undirvagni, loftf læði og
bremsum en ekkert gert til að auka
kraft bílsins. Magnesíum-felgur léttu
bílinn um 11,4 kíló og sérstök vind-
hlíf og loftdreifari úr koltrefjum gerðu
sitt til að auka niðurþrýsting bílsins.
Einnig var komið fyrir nýjum væng að
aftan ásamt breytingum á framvæng
og hjólskálum. Sérstakar keppnis-
bremsur fóru undir bílinn og átt var
við fjöðrunarbúnað sem er stillan-
legur fyrir brautarakstur. Keppnis-
búnaður Manthey er oft notaður af
GT eigendum á brautardögum og
telst því löglegur, hægt er að panta
hann gegnum söluaðila Porsche. ■
Porsche setur nýtt met
á Nurburgring
Porsche 911 GT2 RS bíllinn ásamt Lars Kern sem var ökumaður á Nurburgring.
njall@frettabladid.is
Breytingafyrirtækið Hennessey í
Bandaríkjunum hefur sett á markað
sérstaka útgáfu af Dodge Ram pall-
bílnum sem kallast Mammoth 1000
TRX. Talan þúsund er tilvísun í afl
bílsins sem er 1.012 hestöfl en bíll-
inn er búinn 6,2 lítra V8 vél með
keflablásara.
Að sögn Hennessey er ætlunin
að framleiða 200 slíka bíla; þegar
er búið að selja meira en helming
þeirra, en bílinn segja þeir vera afl-
mesta og sneggsta pallbíl sem fram-
leiddur hefur verið.
Pallbíll Hennessey er byggður á
Dodge Ram 1500 TRX en talsvert
er búið að eiga við Hellcat vélina í
honum. Kominn er nýr blásari og
innspýting og er bíllinn nú aðeins
3,2 sekúndur í hundraðið. Kvart-
míluna fer hann svo á aðeins 11,4
sekúndum. Sérstakur kælibúnaður
er við vélina ásamt öflugu olíudælu-
kerfi með sérstökum síum. Breyt-
ingar á ytra byrði eru breyttir stuð-
aðar, díóðuljósabúnaður, 20 tommu
felgur og 37 tommu dekk. Bíllinn
mun geta dregið tæp fjögur tonn.
Með breytingum kostar pallbíllinn
18,5 milljónir en hann verður í boði
á þeim markaðssvæðum sem selja
Dodge bíla.■
Mammoth 1000 fljótasti pallbíllinn
Mammoth pallbíllinn er aðeins 3,2 sekúndur að ná 100 kílómetra hraða.
MG frumsýndi í mars tvær
nýjar kynslóðir rafbíla sem
koma á Evrópumarkað á
árinu. Annar bílanna er
rafknúni jepplingurinn
MG Marvel R Electric sem
kemur í sýningarsalinn hjá
BL við Sævarhöfða í október
og verður verð bílsins frá
5.990.000 kr.
MG Marvel R Electric er tæplega
4.700 mm langur, rúmir 1.900 mm
á breidd og 1.700 mm á hæð og
mælist hjólhafið um 2.800 mm sem
gerir farþegarýmið rúmgott fyrir
farþega og farangur. Í afturhjóla-
drifnu útgáfunni er að auki 150
lítra farangurspláss undir hlífinni
að framan. Þá er Marvel R Electric
búinn 19,4 tommu snertiskjá fyrir
afþreyingar- og upplýsingastjórnun
og rúmlega 12 tommu stafrænu
mælaborði.
Fjórhjóladrifin útgáfa MG Marvel
R Electric er búin þremur rafmót-
orum; einum að framan og tveimur
að aftan. Bíllinn er 288 hestöf l,
drægi rafhlöðunnar er um 370 km
og snerpan úr kyrrstöðu í 100 km/
klst. 4,9 sekúndur. Afturhjóladrifna
útgáfa MG R Electric er búin tveimur
rafmótorum við drifrásina að aftan.
Bíllinn er 180 hestöfl, drægið um
402 km og snerpa úr kyrrstöðu í 100
km/klst. 7,9 sekúndur. Hámarks-
MG Marvel R Electric
kynntur í október
MG Marvel R Electric verður frumsýndur hjá BL við Sævarhöfða í október.
Upplýsingaskjárinn í miðjustokk Marvel R er 19,4 tommur.
hraði MG Marvel R Electric er tak-
markaður við 200 km/klst. óháð
útfærslum.
Í MG Marvel R Electric er 70 kWst
rafhlaða sem unnt er að hlaða úr
5% í 80% á aðeins 43 mínútum.
Þá er bíllinn búinn svokölluðu
vehicle-to-load rafkerfi sem leyfir
meðal annars tengingu við annað
og ótengt rafkerfi, til dæmis til að
knýja loftdælu eða hlaða fartölvu
eða rafskutlu. MG Marvel R Electric
er búinn sívirkum nútíma öryggis-
búnaði, m.a. MG Pilot-kerfinu sem
inniheldur fjórtán mismunandi
öryggiskerfi sem vara við aðsteðj-
andi eða mögulegum hættum í
umferðinni. Þá er dráttargeta jepp-
lingsins allt að 750 kg sem hentar
léttum kerrum eða tjaldvögnum. ■
Njáll
Gunnlaugsson
njall
@frettabladid.is
Betri vefn með Lín Design
Bet i svef með Lín De ign
Betri svefn
með Lín Design
www.lindesign.is
LAUGARDAGUR 26. júní 2021 Bílar 37FRÉTTABLAÐIÐ