Fréttablaðið - 26.06.2021, Page 66

Fréttablaðið - 26.06.2021, Page 66
Í Kling & Bang má sjá litríka og áhugaverða sýningu sem leggur undir sig alla þrjá sal­ ina. Sýningin er sameiginlegt verk Önnu Hrundar Másdótt­ ur, Steinunnar Önnudóttur og Ragnheiðar Káradóttur. „Ég sá tengingu í verkum okkar og finnst þær vera frábærir listamenn, og fékk hugmyndina um að við myndum vinna saman. Ég hafði verið með hefðbundna samsýningu í huga, þar sem verk okkar væru hlið við hlið. En þegar við fórum að spjalla þá kviknaði hugmyndin um að gera allt saman,“ segir Ragn­ heiður. Á sýningunni eru bæði innsetn­ ing og ljósmyndir. Innsetningin er litrík og minnir á glaðlegt lands­ lag, en þó býr eitthvað óhuggulegt undir. „Eitt af því sem tengir okkur er að við vinnum á fagurfræðilegum forsendum og nýtum innsæið, en fegurðin býr í mörgum ólíkum áferðum og efnum, líka í því sem við að öllu jöfnu upplifum sem ógeðslegt eða ljótt,“ segir Steinunn. „Því er breiddin í verkunum mikil, og þó að bjartir og fagrir litir grípi augað fyrst, er þarna einnig að finna ýmsan óhugnað.“ Mótsagnir í verkunum Um titil sýningarinnar, Feigðarós, segir Ragnheiður: „Titillinn Feigðar­ ós vísar til þessa þekkta minnis, að f ljóta sofandi að feigðarósi. Maður sér fyrir sér einstakling sem flýtur áhyggjulaus, en er um leið með afmarkað sjónarhorn og ekki með­ vitaður um allt sem er að gerast í kringum hann. Þetta er lýsandi fyrir það ástand sem mörg okkar eru í.“ Steinunn heldur áfram: „Það sem okkur var einna mest hugleikið var togstreitan á milli þess að vera meðvitaður um samtímamál og þátttakandi í því sem er að gerast í heiminum, en finna á sama tíma innri frið og njóta líðandi stundar. Bjartir litir og óhugnaður Listakonurnar sýna í þremur sölum Kling & Bang. FRÉTTABLAÐIÐ/ ÓTTAR Innsetningin er litrík og minnir á glaðlegt lands- lag en þar býr líka óhugnaður. Fegurðin býr í mörgum ólíkum áferðum og efnum, líka í því sem við að öllu jöfnu upplifum sem ógeðs- legt eða ljótt. Steinunn Önnudóttir. Þetta tvennt sem maður vill hafa að leiðarljósi í lífinu fer ekki saman og vinnur svolítið hvort á móti öðru. Þessar mótsagnir endurspeglast í verkunum og gátu af sér titilinn.“ Hún segir ástandið í umhverfis­ málum vera þeim hugleikið og vera af sama meiði. „Við sem lista­ menn þurfum oft að standa frammi fyrir erfiðum spurningum um það hvort við eigum að leyfa okkur að nota þessi og hin efni sem skaða umhverfið og elta þannig okkar listrænu sýn, eða hvort við eigum að takmarka okkur við það sem er umhverfisvænt og fórna þannig hugmyndum okkar og sköpunar­ þörf.“ Um innsetninguna hlykkjast lækur eða kræklótt vatn. Í því gutlar þykkur vökvi sem minnir á jarð­ hræringasvæði hér á landi, nema hvað áberandi bleikur litur er á vatninu. „Ég bjó í Bandaríkjunum og þar er þekkt og vinsælt maga­ meðal, Pepto bismol, sem er bleikt og þykkt. Sá litur greip augað sam­ stundis,“ segir Anna Hrund. „Ég hef séð myndir af vötnum, til dæmis Lake Hillier, með svona ónáttúru­ lega bleikum lit sem vakti hrifn­ ingu mína. Í þeim tilfellum eru það þörungar sem gefa af sér þennan lit, en ég tengdi litinn strax við þennan seigfljótandi, bleika vökva sem Bandaríkjamenn drekka til að lina verki.“ Yfirborð og gervi Í myrkvuðum sal við lok sýningar­ innar má sjá seríu ljósmyndaverka sem virðast f ljóta á litríkum bak­ grunni. Á ljósmyndunum er að finna hluti sem minna á ýmsar óræðar leifar sem maðurinn skilur eftir sig í umhverfi sínu. „Í myndunum finnum við hlut­ um, sem við bjuggum til, stað úti við og búum til sviðsetningar inni við fyrir fundna náttúrulega hluti,“ segir Ragnheiður. „Í þessum verkum erum við mikið að hugsa um yfir­ borð og gervi, hvað sé manngert og hvað náttúrulegt og hvar eigi að draga línuna,“ segir Steinunn. Samhliða sý ning u nni, sem stendur til 4. júlí, kom út bókverk með textum eftir Bergþóru Snæ­ björnsdóttur, Guðrúnu Evu Mín­ ervudóttur, Gunnar Theodór Egg­ ertsson og Tyrfing Tyrfingsson. Textarnir spinna hliðarheim við sýninguna og gefa áhorfandanum tækifæri til að staldra lengur við verkin. Bókverkið er fáanlegt í Kling & Bang. ■ Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is 38 Menning 26. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 26. júní 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.