Fréttablaðið - 26.06.2021, Qupperneq 68
Það má sennilega segja
að þessi tónlist falli inn
í hinn norræna jazz-
ramma.
Kvartettinn Move heldur tón
leika í Kaldalóni, Hörpu, mið
vikudaginn 30. júní klukkan
20.00.
Kolbrún Bergþórsdóttir
„Þetta er kvartett sem varð til upp
úr þeirri hugsun hvort ákveðin
réttritunarstefna stjórni sköpun
og túlkun á tónlist og hversu mikið
megi leita. Má leita að hinu ranga og
getur hið ranga orðið rétt ef hlustun
og skilningur manna er orðinn nógu
víður?“ segir Óskar. „Við félagarnir
viljum vera frjálsir og leitandi. Við
viljum gefa hverjum og einum leyfi
til að vera hann sjálfur en samt inni
í hóp þar sem við þurfum hver á
öðrum að halda.“
Á tónleikunum verða f lutt lög
eftir Óskar. „Árið 2017 byrjaði ég að
semja lög fyrir þennan kvartett og
það tók mig tvö ár að komast á stað
þar sem ég var farinn að semja tón
list sem mér fannst virka.“
Reif kjaft
Spurður hvernig lög þetta eru segir
hann: „Þau eru melódísk, en geta
bæði verið ögn þunglyndisleg og
fjörug. Þau eru breiðari heldur en
einhver ein stefna. Þegar maður er
að fást við tónlist sem inniheldur
ekki orð þá er mjög erfitt að lýsa
henni, því inni í manni býr hún á
sérstað sem engin orð ná utan um.
Það má sennilega segja að þessi
tónlist falli inn í hinn norræna jazz
ramma.“
Óskar byrjaði snemma að leika á
saxófón. „Ég get ekki útskýrt hvað
það var sem dró mig fyrst að saxó
fóninum. Það var eitthvað innra
með mér sem kallaði á það. Ég átti
ekki að fá að læra á saxófón, ég átti
ellefu ára gamall að læra á klarí
nett. En ég þráaðist við og reif smá
kjaft, fékk að byrja og gafst ekki upp
og hef ekki enn þá gefist upp. Mér
finnst ég samt alltaf vera á einhvers
konar byrjunarreit. Ég er alltaf að
læra.“
Mismunandi nálgun
Spurður hvað sé svo sérstakt við
saxófóninn sem hljóðfæri segir
hann: „Það sem er heillandi við
saxófón er að hann er blæbrigða
ríkt hljóðfæri, það er hægt að spila
á hann á mjög ólíkan hátt og með
mismunandi nálgun.“
Óskar hefur verið atvinnumaður
í tónlist síðan hann var sautján ára.
„Það hefur stundum verið erfitt en
um leið óskaplega gefandi. Það er
líka upplifun að kynnast starfandi
tónlistarmönnum, sem er athyglis
vert og afar skemmtilegt fólk.“ n
Vil vera frjáls og leitandi
Ég er alltaf að læra, segir Óskar Guðjónsson saxófónleikari. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Move
Kvartettinn skipa Óskar Guð-
jónsson saxófónleikari, Eyþór
Gunnarsson píanóleikari,
Valdimar Kolbeinn Sigur-
jónsson kontrabassaleikari
og Matthías M.D. Hemstock
trommuleikari.
+ + + = 19.990 kr.
A L LT ÓTA K M A R K A Ð
Kolbrún Bergþórsdóttir
Sunnudaginn 27. júní kl. 16 mun
píanóleikarinn Hjörtur Ing vi
Jóhannsson flytja eigin verk undir
nafninu 24 myndir í Hallgríms
kirkju í Saurbæ, Hvalfirði.
Á þessum tónleikum spinnur
Hjörtur á staðnum stuttar tón
smíðar úr öllum tóntegundum, á
píanó í ákveðinni röð, auk þess að
flytja valin lög sem áður hafa komið
út, sem hluta af verkefninu. n
Hjörtur Ingvi í Saurbæ
Hjörtur Ingvi flytur eigin verk.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Á Sönghátíð í Hafnarborg í dag,
laugardaginn 26. júní kl. 17, f lytur
Schola Cantorum íslenska kórtón
list undir stjórn Harðar Áskels
sonar. Yfirskrift tónleikanna er
Vina spegill.
Á sunnudag, 27. júní kl. 17, eru
tónleikarnir Íslensk kventónskáld
á dagskrá Sönghátíðar. Björk Níels
dóttir sópran, Erla Dóra Vogler
mezzósópran, Eyjólfur Eyjólfsson
tenór, Hafsteinn Þórólfsson baritón
og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanó
leikari, f lytja tónlist eftir Þórunni
Guðmundsdóttur, Jórunni Viðar,
Hildigunni Rúnarsdóttur, Ingi
björgu Bjarnadóttur, Ingibjörgu
Azimu Guðlaugsdóttur og Elínu
Gunnlaugsdóttur. n
Söngur í Hafnarborg
Hörður Áskelsson.
40 Menning 26. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ