Fréttablaðið - 26.06.2021, Síða 74

Fréttablaðið - 26.06.2021, Síða 74
Samkomufrelsinu fegin ætlar þungarokkssveitin Dimma að fylgja sjöttu breiðskífu sinni, Þögn, eftir með tón- leikahaldi og takmarkalausu stuði víða um land. Tilefnið er enda ærið þar sem platan rýfur fjögurra ára þögn og Ingó Geirdal gítarleikari fullyrðir að hún sé sú besta hingað til. „Dimma gaf síðast út plötuna Eld- raunir 2017 þannig að það má segja að við rjúfum þögnina núna með þessari sjöttu breiðskífu okkar,“ segir gítarleikarinn Ingó Geirdal um nýju plötuna, sem ber viðeig- andi titil, Þögn. Þögn er jafnframt fyrsta hljóð- versskífa Dimmu síðan trommar- inn Egill Örn Rafnsson fyllti skarð Birgis Jónssonar, sem er f loginn á braut og er nú skýjum ofar sem for- stjóri f lugfélagsins Play. „Það er bara nákvæmlega þann- ig og Egill Örn kom mjög sterkur inn í hljómsveitina síðla árs 2018. Við erum allir búnir að þekkjast í tuttugu ár eða svo og ég, Silli og Stefán höfum allir spilað með Agli á einhverjum tímapunkti þannig að þetta small alveg saman strax á fyrstu æfingu. Aldrei verið betri Við erum nú á því, svo ég segi það bara alveg heiðarlega, að þetta sé okkar besta plata til þessa. Ég er ekkert að segja þetta bara vegna þess að hún er nýjust eða neitt slíkt. Þetta hljómar kannski hrokafullt en ég er bara að segja það af ein- lægni og heiðarleika. Þetta gekk bara svo gríðarlega vel og hljóm- sveitin er náttúrlega orðin sautján ára gömul þannig að það væri nú eitthvað skrýtið ef hún batnaði ekki með árunum,“ segir Ingó og hlær. „Það er bara okkar mat og margra annarra að bandið hafi aldrei verið betra en akkúrat núna og mér finnst það heyrast og skila sér mjög vel á plötunni og stór þáttur í því er að við erum búnir að gera þetta svo lengi og að við höfum gefið okkur góðan tíma í þetta,“ heldur Ingó áfram og einlægnin leynir sér ekki. Dimma rís upp úr þögninni Dimma er skipuð Silla bassaleikara, Agli tromm- ara, Stefáni söngvara og Ingó gítarleik- ara, sem segir bandið í topp- formi eftir ára- langa keyrslu. „Við erum búnir að vera alveg meðvitaðir um að þegar platan kæmi út yrðu menn að vera í formi og erum það allir núna.“ MYND/ ÓLÖF ERLA EINARSDÓTTIR Ingó í stuði með Bubba 2015 en er jafnvel hress- ari nú, enda bíta árin ekki á þungarokkara. FRÉTTABLAÐIÐ/ PJETUR Rauðvínsleginn vínill „Já, já, já. Algjörlega,“ segir Ingó aðspurður hvort Dimma hafi á síð- ustu fjórum árum fundið vel fyrir þrýstingi og eftirvæntingu þéttra og traustra aðdáenda sveitarinnar eftir nýju efni. „Upphaflega stóð til að gefa plöt- una út 2019 og svo 2020 en þetta eru búnir að vera skrítnir tímar og þetta tafðist allt en við náðum líka að nýta okkur það til góðs með því að gefa okkur meiri tíma við vinnslu plötunnar. Bæði í upptökur og hljóðblöndun.“ Þögn er að sjálfsögðu fáanleg á helstu streymisveitum eins og Spot ify en rokkhundarnir í Dimmu eru af gamla skólanum og gefa því vitaskuld einnig út á geisladiski og vínil. „Við erum nefnilega mjög „old school“ og höldum okkur bara við það,“ segir Ingó og hlær. „Það er svo mikið af fólki sem hlustar á Dimmu sem er að safna plötunum þannig að hún er komin út í glæsilegum geisladiskapakka með 20 blaðsíðna bæklingi með myndum og öllum textum. Og svo er hún aðeins pressuð í 300 ein- tökum á rauðvínslitaðan vínil sem er væntanlegur núna um miðjan júlí,“ segir Ingó og lætur fljóta með að drjúgur hluti upplagsins sé þegar uppseldur í forsölu á Plötubúðin.is. „Þess vegna erum við að leggja mikið í þetta. Ólöf Erla Einarsdóttir, grafískur hönnuður hjá Svart, hefur gert öll umslög fyrir okkur frá og með Vélráðum sem kom út 2014. Það eru nú flestir sammála um að umslagið á Þögn sé okkar besta hingað til og hún á allan heiðurinn af því.“ Ótakmarkað stuð Dimma ætlar að fylgja Þögn eftir með tónleikaferð víða um land í sumar og haust sem nær hápunkti með útgáfutónleikum í Eldborgar- sal Hörpu föstudaginn 8. október. „Heldur betur. Algjörlega,“ segir Ingó þegar hann er spurður hvort mannskapurinn bíði ekki óþreyju- fullur eftir því að komast á svið og rokka feitt fyrir almennilegan áhorfendaskara eftir margra mán- aða takmarkanir. „Við erum nýbyrjaðir að geta spilað aftur en höfum þó verið að spila við þessar takmarkanir sem nú er búið að aflétta og það má eigin- lega segja að með útgáfutónleik- unum munum við ekki bara fagna plötunni heldur líka nýjum tímum,“ segir Ingó og hlær við tilhugsunina um takmarkalaust stuð. Bandið fer að hugsa sér til hreyf- ings í næsta mánuði en fer, eins og önnur allt öðruvísi hljómsveit íslensk, hljóðlega af stað. „Við verð- um á ferðinni í júlí en ætlum ekkert að mjólka þetta algjörlega í sumar og dreifum þessu á haustið líka. Við munum halda nokkra svona smærri útgáfutónleika úti á landi, meðal annars á Græna hattinum á Akur- eyri og í Valaskjálf á Egilsstöðum, þannig að við verðum í toppformi á stóru útgáfutónleikunum í Eldborg 8. október. Hávær upprisa Dimma ætlar að spila Þögn eins og hún leggur sig á stóru tónleikunum. „Eftir hlé munum við svo leika öll okkar vinsælustu og þekktustu lög þegar eldri sleggjur verða teknar. „Það verður öllu tjaldað til og við höfum nú ekki verið þekktir fyrir að spara mikið þegar við höfum verið að halda þessa útgáfutónleika okkar þannig að þetta verður mikið sjónar- spil sem við erum að leggja drögin að núna.“ Dimma er ekki heldur beinlínis þekkt fyrir þögn þannig að titill plötunnar virðist vera í einhvers konar þversögn við innihaldið. „Já, það má kannski segja það, en þrjár síðustu plöturnar, Myrkraverk, Vél- ráð og Eldraunir, mynda eiginlega ákveðinn þríleik þar sem umfjöll- unarefnið er allt svona frekar myrkt og drungalegt,“ segir Ingó. „En á Þögn kveður svolítið við nýjan tón og þema plötunnar er eig- inlega upprisa og kviknaði svolítið út frá því að Þögn var fyrsta lagið sem var samið fyrir plötuna og upprisan hefst oft með því að rjúfa þögnina.“ ■ Það er bara okkar mat og margra annarra að bandið hafi aldrei verið betra en akkúrat núna og mér finnst það heyr- ast og skila sér mjög vel á plöt- unni. Þórarinn Þórarinsson thorarinn @frettabladid.is 46 Lífið 26. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.