Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.07.1963, Side 4
BANDALAGSTÍÐINDI
Málflutningur fyrir Kjaradómi
Eins og fram kemur í greinargerð kjaradóms,
þá var mál ríkisstarfsmanna þingfest 24. apríl s. 1.
Kjararáð, sem lögum samkvæmt fer með mál-
ið af hálfu B. S. R. B. tilnefndi sem málflytjend-
ur þá Kristján Thorlacíus, Guðjón B. Baldvins-
son og Harald Steinþórsson. Auk þess unnu að
málinu Guðmundur Ingvi Sigurðsson sem lög-
fræðilegur ráðunautur og þeir Hrólfur Asvalds-
son og Ólafur Vilhjálmsson sem hagfræðilegir
ráðunautar.
Þann 6. maí lögðu málflytjendur fram kröfu-
gerð og greinargerð sóknaraðila ásamt dóms-
skjölum. 16. maí lagði svo málflytjandi ríkis-
stjórnarinnar Jón Þorsteinsson fram kröfugerð
og greinargerð varnaraðila. Fengu málflytjend-
ur B. S. R. B. viku frest til að skila athugasemd-
um sínum, sem reyndust löng greinargerð og
var lögð fram 23. maí. Varnaraðila var síðan
gefinn kostur á að skila athugasemdum sínum
og gerði hann það 30. maí. Var þar með lokið
hinum skriflega málflutningi, sem var all um-
fangsmikill. Greinargerðir voru um 200 vélrit-
aðar síður, og hafa öll bandalagsfélög fengið
afrit af þeim. Dómsskjöl, sem lögð voru fram
voru um 80.
Krafa um 5 % hækkun frá
1. febrúar
Stjórn B. S. R. B. samþykkti á fundi sínum
29. apríl s. 1. að gera kröfu til ríkisstjórnarinn-
ar um 5% launahækkun til ríkisstarfsmanna frá
1. febrúar s. 1. með vísun til bráðabirgðaákvæða
í lögum nr. 55/1962 um samningsrétt opinberra
starfsmanna.
Samkomulag tókst ekki um afgreiðslu þess-
arar eðlilegu og sjálfsögðu kröfu, þótt vitað sé,
að um 90% af stéttarfélögum hefur fengið þessa
launahækkun. Málið fer því til úrskurðar Kjara-
dóms.
3. júlí var mál þetta þingfest hjá Kjaradómi og
fengu aðilar frest til 29. júlí að skila greinargerð-
um.
Innheimta á skatti til B. S. R. B.
A síðasta bandalagsþingi var aukin skatt-
greiðsla til B. S.R. B. og ákveðið að hún skyldi
vera 3%c — þrjú promille — af föstum launum.
Var þetta óhjákvæmilegt vegna stórhækkaðs
reksturskostnaðar vegna samninganna.
Fyrirkomulag innheimtu hefur verið nokkuð
mismunandi hjá einstökum bandalagsfélögum.
Algengast er, að skattur til B. S. R. B. hafi þegar
verið greiddur fyrir fyrri hluta ársins, en síð-
ari hlutinn verði greiddur þegar hin nýju laun
verða komin til framkvæmda. Félögin hafa sum
þegar innheimt félagsgjald það, sem þau hafa til
sinnar starfsemi.
Verður reynt að lokinni síðustu greiðslu að
gefa hverjum heildarkvittun fyrir félagsgjaldi
sínu. Allar nánari upplýsingar um þetta gefur
skrifstofa B. S. R. B. Bræðraborgarstíg 9, símar
13009 og 22877.
Mótmæli til útvarpsráðs
„Stjórn B. S. R. B. mótmælir harðlega þeirri
ákvörðun meirihluta útvarpsráðs að bregða útaf
þeirri venju, að formaður Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja og forseti Alþýðusambands
Islands flytji ávörp í dagskrá útvarpsins 1. maí.
Stjórn B. S. R. B. telur þessa ákvörðun frek-
lega skerðingu á þeim réttindum launþegasam-
takanna, sem þau hafa notið um langt skeið.“
Samþykkt með 10 atkv. gegn einu á fundi 29
apríl.
4 ÁSGARÐUR