Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.07.1963, Blaðsíða 23

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.07.1963, Blaðsíða 23
Kjaradómur kveður upp dóm sinn 3. júlí 1963: Frá vinstri: Svavar Pálsson (endurskoðandi), Eyjólíur Jónsson (skrifstofustjóri), Sveinbjörn Jónsson (hsestaréttarlögmaður), Benedikt Sigurjónsson (hæstaréttarlögmaður) og Jóhannes Nor- dal (bankastjóri). (Ljósm. Ari Kárason). II. Eftirfarandi reglur skulu gilda um vinnutíma ríkisstarfsmanna, yfirvinnu, yfirvinnukaup og önnur kjör, er hér skipta máli. 1. grein Vikulegur starfstími starfsmanna ríkisins, sem hin föstu laun eru greidd fyrir, skal vera sem hér segir: A. 48 stundir. Verkstjórar og verkamenn við hvers konar úti- vinnu, starfsmenn á ríkisbúum, ráðsmenn og ráðskonur, fólk við eldhússtörf, bifreiðastjórar og þeir, sem vinna á reglúbundnum vinnuvök- um og ekki eru taldir annars staðar. B. 44 stundir. Lögreglumenn, fangaverðir, tollverðir, slökkvi- liðsmenn, hjúkrunarfólk, aðstoðarfólk við hjúkr- un, starfsmenn ó verkstaeðum, við birgðavörzlu, vöruafgreiðslu, iðnað og iðjustörf, vélgæzlu og önnur hhðstæð störf. C. 38 stundir. Starfsmenn á skrifstofum. teiknistofum, rann- sóknarstofum, eftirlitsstofnunum, söfnum og aðr- ir, sem hliðstæð störf stunda. D. 36 stundir. Sjúkrahúslæknar, sjúkraþjálfarar, starfsfólk við röntgen eða geislavirk efni. Ennfremur eftir- taldir starfsmenn, er vinna á reglubundnum vinnuvökum: Talsímamenn, símritarar, loft- skeytamenn, veðurfræðingar, flugumferðarstjór- ar og aðrir, er hliðstæð störf stunda. E. Kennarar 1. Barnaskólakennarar: allt að 36 kennslu- stundir er fækki í 30 stundir ó því skólaári, sem kennari verður 55 ára og í 24 stundir, þegar hann verður sextugur. Lengd hverrar kennslustundar skal vera 40 mínútur. 2. Gagnfræ'ðaskólakennarar, húsmæðraskóla- kennarar, iðnskólakennarar: allt að 30 kennslu- stundir, er fækki í 25 stundir, er kennari verður ÁSGARÐUR 23 A

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.