Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.07.1963, Blaðsíða 26

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.07.1963, Blaðsíða 26
skóla og aðra framhaldsskóla og skólastjóra barnaskóla, sem starfa í 8 mánuði, skal miða við 9 mánaða starf, 7 mánuði, skal miða við 8 mánaða starf, og 6 mánuði, skal miða við 7 mánaða starf. Eigi skal þessi lenging tímans, sem laun eru miðuð við, hafa áhrif á daglega eða vikulega kennsluskyldu kennara frá því, sem nú er, en tilkall á skólinn til starfa kennara fyrir og eftir hinn árlega, reglulega kennslutíma, sem þessari lengingu tímans nemur, ef þörf krefur. Sé árlegur starfstími skóla styttri en 6 mán- uðir, skulu laun vera hlutfallsleg miðuð við 6 mánaða skóla. 14. grein. Menntamálaráðuneytið ákveður í samráði við fjármálaráðuneytið og Bandalag starfsmanna rikis og bæja, sérstaka þóknun þeim skólastjór- um, sem hafa á hendi stjórn í tví- eða þrískip- uðum skólum. 15. grein. Ríkisstarfsmenn, aðrir en þeir, sem um getur í 2. málsgrein, eiga rétt til greiðslu þóknunár fyrir yfirvinnu, hafi hlutaðeigandi yfirmaður sérstaklega óskað þess, að sú vinna yrði af hendi leyst. Forstöðumenn stofnana eiga ekki rétt á yfir- vinnugreiðslu samkvæmt 1. málsgrein. Þurfi þeir þó að vinna verulega yfirvinnu vegna embætt- isanna, er heimilt að greiða þeim sérstaka þókn- un til viðbótar mánaðarlaunum þeirra. Slíka greiðslu ákveður fjármálaráðuneytið með sam- komulagi við viðkomandi starfsmann og vitund Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. 16. grein. Þegar aldurhækkanir eru ákveðnar, skal taka tillit til starfsaldurs hlutaðeigandi starfsmanns við sambærileg störf hjá öðrum en ríkinu. Sveinbjörn Jónsson, Ben. Sigurjónsson, Svavar Pálsson, Jóhannes Nordal Eyjólfur Jónsson. ffiféeiéaí t /n&tíuft Vinningum fjölgar úr 1200 i 1800 •f...— 26 ÁSGARÐUR

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.