Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.07.1963, Side 5
Úr dómabók Kjaradóms
Ár 1963, miðvikudaginn 3. júlí, var Kjaradóm-
ur settur og haldinn af hinum reglulegu dóm-
endum, í hýbýlum dómsins að Laugavegi 18, hér
í borg.
Tekið var fyrir kjaradómsmálið nr. 1/1963.
Kjararáð fyrir hönd starfsmanna ríkisins
gegn
fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs
og í því kveðinn upp svohljóðandi
d ó m u r :
Mál þetta, sem rekið hefir verið samkvæmt
ákvæðum IV. kafla laga nr. 55 frá 28. apríl 1962
um kjarasamninga opinberra starfsmanna, var
þingfest fyrir Kjaradómi hinn 24. april s. 1., en
tekið til dóms eftir flutning 'hinn 28. f. m.
Samkvæmt ákvæðum 3. tl. 2. mgr. 29. gr. laga
nr. 55/1962 skyldi Kjaradómur hafa tekið mál
þetta til meðferðar hinn 1. marz 1963, en með
bréfum fjármálaráðherra til dómsins dags. 24.
febrúar, 14. marz, 30. marz og 16. apríl þ. á.,
frestaði hann, með heimild í 29. gr. laganna fyr-
irtöku málsins til 24. apríl s. 1., en þann dag var
málið þingfest, svo sem áður greinir.
Samkvæmt ákvæðum 3. tl. 2. mgr. 29. gr. lag-
anna skyldi dómurinn hafa lokið störfum 1. júlí
1963, en með bréfi fjármálaráðherra dags. 29. f.
Fl. Byrjunar- Kaup á
Kaup 2. ári
1. 4800
2. 5050
3. 5330 5620
4. 5620 5930
5. 5930 6260
6. 6260 6600
7. 6600 6960
8. 6960 7350
9. 7350 7750
10. 7750 8180
11. 8180 8630
12. 8630 9100
13. 9100 9600
14. 9600 10130
15. 10130 10690
16. 10690 11270
m., færði hann tímamark þetta til 4. júlí 1963.
Aðilar hafa fengið fresti til að gera kröfur, rita
greinargerðir og koma að gögnum. Hafa þeir
ritað tvær greinargerðir hvor. Þá hefur dómur-
inn kvatt aðila á sinn fund, lagt fyrir þá spurn-
ingar og rætt málið við þá.
Aðilar hafa lýst því yfir, að samkomulag hafi
orðið um það, að launaflokkar ríkisstarfsmanna
skyldu vera 28. Skyldu lægst laun vera greidd í
fyrsta flokki, en hæst í 28. flokki. Þá hafa aðil-
ar lýst því yfir, að þeir hafi orðið sammála um,
hversu skipa skyldi ríkisstarfsmönnum í fyrr-
greindum 28 launaflokka.
I.
í málinu, eins og það hefur verið lagt fyrir
Kjaradóm, hefir Kjararáð vegna starfsmanna
ríkisins, hér eftir nefndur sóknaraðili, haft uppi
þessar kröfur:
I. Laun:
Mánaðarkaup starfsmanna ríkisins verði
ákveðið í samræmi við launastiga, sem sam-
þykktur var á fundi Kjararáðs 8. apríl 1963, svo-
felldur:
Kaup á Kaup á Eftir Eftin
3. ári 4. ári 10 ár 15 ár
5930 6260 / 6600 6960
6260 6600 6960 7350
6600 6960 7350 7750
6960 7350 7750 8180
7350 7750 8180 8630
7750 8180 8630 9100
8180 8630 9100 9600
8630 9100 9600 10130
9100 9600 10130 10690
9600 10130 10690 11270
10130 10690 11270 11890
10690 11270 11890 12550
11270 11890 12550 13240
11890 12550 13240 13970
ÁSGARÐUR 5