Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.07.1963, Blaðsíða 24
55 ára og 20 stundir, þegar hann verður sextug-
ur. Lengd kennslustundar skal vera 45 mínútur.
3. Stýrimanna- og vélskólakennarar: allt að
27 kennslustundir vikulega, er fækki í 22 stund-
ir, er kennari verður 55 ára og 17 stundir, er
kennari verður sextugur. Lengd hverrar kennslu-
skal vera 45 mínútur.
4. Menntaskólakennarar, kennaraskólakenn-
arar og kennarar sérgreinaskóla fyrir kennara-
efni: 24—27 kennslustundir, er fækki í 22 stund-
ir, er kennari verður 55 ára og 17 stundir, er
kennari verður sextugur. Lengd hverrar kennslu-
stundar skal vera 45 mínútur.
Kennsluskylda söngkennara í barnaskólum og
gagnfræðaskólum og kennara afbrigðilegra barna
skal vera % af kennsluskyldu almennra kennara.
Kennsluskylda annarra kennara, svo og skóla-
stjóra, haldist óbreytt frá því, sem nú er.
Sé hver kennslustund lengri eða skemmri en
hér er fram tekið, skal vikuleg kennsluskylda
breytast í hlutfalli við það.
Kennurum er skylt að hafa umsjón með nem-
endum í stundahléum eftir nánari ákvörðun
skólastjóra og kennarafundar.
2. grein.
Um daglegan vinnutíma skulu gilda þessi
ákvæði:
1. 48 stunda vinnuvika skal unnin á tímanum
frá kl. 8,00 til kl. 12,00 og kl. 13,00 til kl. 18,00
alla virka daga, nema laugardaga, þá kl. 8,00 til
kl. 12,00.
2. 44 stunda vinnuvika skal unnin á tíman-
um frá kl. 8,00 til kl. 12,00 og kl. 13,00 til kl. 17,00
alla virka daga, nema laugardaga, þá kl. 8,00 til
kl. 12,00.
3. 38 stunda vinnuvika skal unnin á tímanum
frá kl. 9,00 til kl. 12,00 og kl. 13,00 til kl. 17,00
alla virka daga, nema laugardaga, þá kl. 9,00 til
kl. 12,00
4. 36 stunda vinnuvika og skemmri skal unn-
in á tímanum frá kl. 8,00 til kl. 12,00 og kl. 13,00
til kl. 17,00 alla virka daga, nema laugardaga, þá
kl. 8,00 til kl. 12,00.
Um það, hvenær starfstími hefjist, skal ákveða
í samráði við starfsmennina með samþykki við-
komandi starfsmannafélags.
Heimilt er að haga vinnudegi með öðrum hætti
en að framan greinir, ef aðilar eru um það sam-
mála.
A tímabilinu frá 1. júní til 30. september ár
hvert er heimilt, með samkomulagi forstöðu-
manna hlutaðeigandi stofnana og starfsmanna, að
fella niður vinnu á laugardögum, enda lengist
dagvinnutími aðra daga vikunnar, svo að full
vinnuvika náist á 5 dögum.
3. grein.
Eigi skulu ákvæði þau, er að framan getur,
valda því, að daglegur vinnutími nokkurs starfs-
manns lengist frá því, sem nú er.
Þær starfsstéttir og starfsmenn, sem ákvæði 1.
og 2. gr. taka ekki til, skulu halda þeim vinnu-
tíma, sem verið hefur hingað til.
4. grein.
Vinnutími starfsmanna skal vera samfelldur
eftir því, sem við verður komið vegna eðhs starfs-
ins. Verði eyða í daglegum, samfelldum starfs-
tíma kennara, skal greiða fyrir hverja kennslu-
stund í slíkri eyðu, laun, er nemi Vi hluta dag-
vinnukaups samkv. 8. gr.
Breytingar og frávik frá þeim vinnutíma, sem
hér er ákveðinn, skulu því aðeins gerð, að sam-
þykki viðkomandi starfsmannafélags liggi fyrir.
5. grein.
Matartímar skulu, eftir því sem við verður
komið, vera frá kl. 12,00 til kl. 13,00. kl. 19,00 til
kl. 20,00 og kl. 3,00 til kl. 4.00, og teljast þeir eigi
til venjulegs vinnutíma.
Kaffitímar teljast til venjulegs vinnutíma, og
skulu þeir hjá þeim, er hafa 48 og 44 stunda
vinnuviku vera tvisvar á dag miðað við venju-
legan vinnutíma, 20 mínútur í hvert sinn, þó eigi
nema einu sinni á laugardögum.
Hjá þeim er skemmri vinnuviku hafa, er á
hinum fasta daglega vinnutíma einn kaffitími,
20 mínútur, þó ekki á laugardögum.
I næturvinnu og helgidagavinnu skulu kaffi-
tímar vera í sama hlutfalli og á hinum daglega
vinnutíma. Þeir, sem vinna á reglubundnum
vinnuvökum, skulu ekki fá sérstaklega matar-
eða kaffitíma, nema tíðkast hafi til þessa.
Heimilt er að fella niður kaffitíma og stytta
matartíma með samkomulagi fyrirsvarsmanns
viðkomandi stofnunar og starfsmanna, enda sé
slíkt samþykkt af viðkomandi starfsmannafélagi.
6. grein.
Frídagar eru allir helgidagar Þjóðkirkjunnar,
sumardagurinn fyrsti og 17. júní. Ennfremur að-
fangadagur jóla og gamlársdagur frá kl. 13,00
beri þá upp á virkan dag, svo og eftirtaldir dag-
24 ÁSGARÐUR