Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.07.1963, Blaðsíða 6
FL Byrjunar- Kaup á Kaup á Kaup á Eftir Eftir
Kaup 2. ári 3. ári 4. ári 10 ár 15 ár
17. 11270 11890 12550 13240 13970 14730
18. 11890 12550 13240 13970 14730 15540
19. 12550 13240 13970 14730 15540 16400
20. 13970 14730 15540 16400 17300
21. 14730 15540 16400 17300 18250
22. 15540 16400 17300 18250 19260
23. 17300 18250 19260 20320
24. 19260 20320 21430
25. 22610
26. 23860
27. 25170
28. 26550
II. Vinnutími o. fl.:
Vinnutími, svo og greiðsla fyrir yfirvinnu,
verði ákveðin í samræmi við samþykkt Kjara-
róðs um vinnutima o. fl. frá 2. febrúar 1963, svo-
hljóðandi:
1. gr.
Vikulegur vinnutími skal vera 40 stundir hjá
eftirtöldu starfsfólki ríkis og ríkisstofnana:
a) Þeim er starfa við birgðavörzlu, vöruaf-
greiðslu, iðnað (iðjustörf), útivinnustörf,
bréfburð, húsvörzlu, næturvörzlu, eldhús-
störf, á verkstæðum, ríkisbúum og við önn-
ur sambærileg störf, sem ekki falla undir
aðra liði. Vinnutími þessara starfsmanna sé
á dagvinnutimabilinu virka daga aðra en
laugardaga.
b) Lögregluþjónum, fangavörðum, slökkvi-
liðsmönnum, tollvörðum, hjúkrunarkonum,
aðstoðarfólk við hjúkrun, vélgæzlumönn-
um, og við önnur hliðstæð störf, þar sem
vinnuvöktum er skipt, en ekki eru talin
annars staðar.
2. gr.
Vikulegur vinnutími skal vera 38 stundir hjá
þeim sem starfa i skrifstofum, teiknistofum,
söfnum, við tollgæzlu, þegar ekki eru vinnu-
vökur, eftirlitsstörf og önnur hliðstæð störf.
Daglegur vinnutími sé á tímabilinu 9—17 virka
daga nema 9—12 á laugardögum.
Á tímabilinu 1. maí til 30. september skulu
þessir starfshópar undanþegnir vinnu á laugar-
dögum, en sé þess enginn kostur vegna fyrir-
komulags vinnunnar, þá hefji þeir ekki vinnu
fyrr en kl. 13 á mánudegi. Vinnutími yfir sum-
armánuðina styttist sem þessu nemur.
3. gr.
Vikulegur vinnutími skal vera 36 stundir hjá
eftirtöldum starfshópum:
a) Þeim er vinna reglubundnar vinnuvökur
hjá Póst- og símamálastjórninni, ríkisút-
varpinu, flugmálastjórninni og veðurstof-
unn, enda séu þeir ekki taldir annars stað-
ar.
b) Sjúkrahúslæknum, sjúkraþjálfurum, þeim
sem starfa við röntgen eða geislavirk efni
og á rannsóknarstofum.
4. gr.
Vikulegur kennslustundafjöldi kennara skal
vera sem hér segir:
a) í barnaskólum allt að 36 kennslustundir, en
fækki í 30 stundir á því skólaári, sem kenn-
ari verður 55 ára og í 24 stundir er hann
verður sextugur. Lengd kennslustunda sé
40 mínútur.
b) í gagnfræðaskólum, húsmæðraskólum, iðn-
skólum og öðrum framhaldsskólum, sem
ekki eru tilgreindir annars staðar, allt að
30 kennslustundir, en fækki í 25 stundir, er
kennari verður 55 ára og í 20 stundir, er
hann verður sextugur. Lengd kennslustunda
sé 45 mínútur.
c) I stýrimannaskóla og vélskóla allt að 27
kennslustundir, en fækki í 22 stundir, er
kennari verður 55 ára og 17 stundir, er
hann verður sextugur. Lengd kennslu-
stunda sé 45 mínútur.
d) I menntaskólum, kennaraskóla og sérgreina-
skólum fyrir kennaraefni 24—27 stundir, en
fækki í 22 stundir, er kennari verður 55 ára
og 17 stundir, er hann verður sextugur.
Lengd kennslustunda sé 45 mínútur.
6 ÁSGARÐUR