Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.11.1966, Síða 23
Blaðað í fundargerðabók B.S.R.B.
Á fyrsta fundi nýkjörinnar bandalags-
stjómar var Magnús Eggertsson endur-
kjörinn ritari og Einar Ólafsson endur-
kjörinn gjaldkeri.
☆
Bandalagsstjórn hefur kjörið nefnd í
samræmi við ályktun, sem gerð var á
síðasta bandalagsþingi, til að gera tillög-
ur um ráðstöfun á húsbyggingasjóði
bandalagsins og athuga um kaup á hús-
eign. Þessir skipa nefndina: Einar Ólafs-
son, form., Sigfinnur Sigurðsson, Ari Jó-
hannesson, Ingólfur Geirdal og Marteinn
Sívertsen.
☆
Skipuð hefur verið nefnd til að at-
huga um undirbúning námskeiðs varðandi
hagsmuna-, skipulags- og fi’æðslumál op-
inberra starfsmanna. í nefndinni eiga
sæti: Karl Guðjónsson, form., Einar Ól-
afsson, Guðjón B. Baldvinsson, Gunnar
Gíslason og Sigurður Haukur Guðjóns-
son.
☆
25. ára afmæli bandalagsins er í febrú-
ar n. k. í tilefni þess var kjörin nefnd
til að athuga, á hvem hátt þessara tíma-
móta yrði minnst. Þessir voru kjömir:
Sigfinnur Sigurðsson, formaður, Gunnar
Bjamason, Hrefna Sigvaldadóttir, Sig-
urður Ingason og Þorsteinn Óskarsson.
☆
Fjármálaráðherra hefur fallizt á þá ósk
B.S.R.B. að skipa nefnd til að endurskoða
lög nr. 38/1954 um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins, og óskað eftir að
bandalagið tilnefndi tvo menn í slíka
nefnd.
Bandalagsstjórn samþykkti að tilnefna
í þessu skyni Harald Steinþórsson og
Eyjólf Jónsson.
☆
Gerður hefur verið samningur milli
Starfsmannafélags ríkisstarfsmanna og
samgöngumálaráðuneytis um kjör vita-
varða, þar sem fimm tilgreindir vitaverð-
ir eru viðurkenndir fastráðnir starfsmenn
samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna.
FERÐASKRIFSTOFA RÍKISINS
veitir hvers konar ferðaþjónustu. •—
Skipuleggur ferðir fyrir einstaklinga
og hópa. — Selur farseðla með flug-
vélum, lestum, skipum og hílum hvert
á land sem er. — Útvegar gistingu
erlendis. — Örugg fyrirgreiðsla — eng-
inn aukakostnaður.
FERÐASKRIFSTOFA RÍKISINS
Laekjargötu 3. Reykjavík.
Sími 11540
ÁSGARÐUR 23