Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Síða 2

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Síða 2
2/ forustugrein _______FRÁ STJÓRN BSRB Svigrúm til launajafnréttis Kröfur B.S.R.B. hafa verið lagðar fram. Þær marka fyrst og fremst stefnu í baráttu launafólks fyrir auknu jafnrétti. Auknu jafnrétti verður ekki náð nema með því að breyta tekjuhlutföllum, hækka laun þeirra verst settu, færa tekjur frá gróðamönnum til hinna lægst launuðu og jafna tekjur launafólks innbyrðis. Þessa stefnu hefur B.S.R.B. sett fram. Kröfur bandalagsins mótast af henni. En nú er ekki svigrúm til launahækkana, segir ríkisstjórnin í yfirlýsingum sínum. Þá er rétt að spyrja, hvenær hefur, að dómi valdhafa, verið svigrúm til bættra lífskjara. Stjórnmálamenn í stjórnarandstöðu krefjast kjarabóta fyrir hina verst settu, en þegar þeir eru komnir í valdastólana, segja þeir einum rómi: Ekkert svigrúm. — Þá vilja þeir semja við samtök launafólks um ýmsar framfarir á sviði félagsmála gegn því, að dregið sé úr launakröfum. Auðvitað hljóta launþegasamtök að vega og meta allar að- stæður í þjóðfélaginu, þar á meðal kjarabætur, sem þjóðfélags- legar umbætur skapa. Það hefur aldrei staðið á því, að launafólk taki mið af slíku. En þá verður líka að hafa í huga, hvaðan fjármunir koma til að greiða þessar umbætur. Opinberir starfsmenn inna af hendi þjónustu í þjóðfélaginu, sem hvorki einstaklingarnir né atvinnureksturinn geta án verið. Hjá því verður ekki komist að reka sjúkrahús, skóla, halda uppi löggæslu, framleiða og dreifa raforku, reka vatnsveitur, hafnir og halda uppi margskonar annarri opinberri þjónustu. Það er fárán- legur og fljótfærnislegur áróður, að þessi störf séu þýðingarlítil. í nútímaþjóðfélagi verður framleiðsluatvinnuvegunum ekki haldið uppi nema víðtæk og fullkomin þjónusta sé innt af hendi af hálfu hins opinbera. Þessi störf eru orðin svo þýðingarmikill hlekkur í þjóðfélagskeðjunni að taka verður fullt tillit til þess. Það þýðir ekki að afgreiða opinbera starfsmenn með einföldum full- yrðingum um, að ekki sé neitt svigrúm. B.S.R.B. mun ekki skorast undan þátttöku í sameiginlegu átaki allra til að leysa verðbólguvandann, hvaða ríkisstjórn sem tekst að sameina krafta landsmanna um það mál. Samtök okkar hafa mótað jafnréttiskröfur á mörgum sviðum þjóðlífsins. Við höldum ótrauð áfram þeirri baráttu, og svigrúm er fyrir hendi þar sem vilji er til. Kristjdn Thorlacius Eftirlaunafólk fær einnig 10% frádráttarheimildina í lögum um tekju- og eignaskatt frá 1978, sem tóku gildi nú í ársbyrjun, er ákvæði um heimild launafólks til að velja á milli þess að draga frá tekjum vaxtagjöld, lífeyris- sjóðsiðgjald, stéttarfélagsgjald og iðgjald af líftryggingu eða sleppa þessum frádráttar- liðum og setja í staðinn frádrátt 10% af launum. Samkvæmt lögunum átti þessi heimild ekki við eftirlaunafólk. Þegar skattalögin voru til meðferðar á Alþingi í janúar s.i., ræddi B.S.R.B. við for- mann fjárhagsnefndar neðri deildar um, að þarna hefði skapast misrétti, sem þyrfti leiðréttingar við. I framhaldi af þessu skrif- aði B.S.R.B. bréf til fjárhagsnefndar neðri deildar, þar sem segir: „B.S.R.B. fer þess því eindregið á leit við nefndina að hún beiti sér fyrir, að í skatta- lögin verði sett ákvæði um að heimild til 10% frádráttar nái einnig til þeirra, er taka eftirlaun og/eða lífeyri frá lífeyrissjóðum og almannatryggingum.“ Ásgarður vill vekja athygli á því að þessi breyting, sem B.S.R.B. beitti sér fyrir, náði fram að ganga á Alþingi. Vilmundur Gylfason og Árni Gunnarsson fluttu um þetta breytingatillögu, sem Alþingi sam- þykkti. Merkt norrænt rannsóknarstarf BSRB hefur borist bréf frá íslenskri skipulagsnefnd, sem starfar að norrænni samvinnu um rannsóknir á orsakasambandi atvinnu og fósturskemmda. Forstöðu í þessu hefur af íslands hálfu Hrafn Friðriksson, yfirlæknir, sem er forstöðu- maður Heilbrigðiseftirlits ríkisins. Erindinu fylgdi ósk um samstarf bandalagsins við rannsóknir þessar og um styrk til að standa undir þeim kostnaði, sem af rannsóknum hlýst. Bandalagsstjórnin telur ávinning af þess- um rannsóknum og tilnefndi þrjá fulltrúa til að mæta á fundum um málið. Hins vegar er það skoðun stjórnarinnar, að svona rannsóknir eigi að vera kostaðar af opinberum aðilum. Þess má geta, að bandalagið fær árlega fjölmargar beiðnir um styrkveitingar til verkefna eða félaga, sem eru alls góðs makleg. Hefur verið mörkuð sú stefna að bandalagið sinnti ekki slíkum styrkbeiðnum, en vildi með starfi reyna að stuðla að góðu málefni eftir því sem kostur væri.

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.