Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Blaðsíða 4
4
nt^RMÁlA
BAÐUNETTlti
m
Beðið
SVARI
Mynd þessi er tekin í herbergi samninganefndar ríkisins á sáttafundi. Þar eru (talið frá
vinstri) Baldur Möller, Guðmundur Karl Jónsson, Þorsteinn Geirsson formaður samninga-
nefndar, Brynjólfur Ingólfsson, Steingrímur Pálsson, Indriði H. Þorláksson, Skúli Hall-
dórsson og Sigurður Helgason.
Kjaramálastefna
ríkisstjómar.
Ný ríkisstjórn undir forsæti Gunnars
Thoroddsen tók við 8. febrúar 1980. í
stjórnarsáttmála hennar er lýst yfir, að hún
muni leita eftir samkomulagi við aðila
vinnumarkaðarins, en ekki setja lög um al-
menn laun, nema allir aðilar innan hennar
séu sammála um það, enda verði haft sam-
ráð við samtök launafólks.
Jafnframt fylgdi með, að hún vildi í
tengslum við kjarasamninga beita sér fyrir
ráðstöfunum eins og íbúðabyggingum,
byggingu dvalarheimila aldraðra, dagvist-
unarheimila o.fl. og átti það að verða „til að
draga úr almennum peningalaunahækkun-
um.“!!
„Ekki svigrúm“
Formaður og varaformaður samninga-
nefndar BSRB ræddu við nýskipaðan fjár-
málaráðherra Ragnar Arnalds strax á fyrsta
starfsdegi hans í ráðuneytinu. Hvöttu þeir
til að samningaumleitunum ríkisins og
bandalagsins yrði hraðað eins og frekast
væri kostur.
Skömmu síðar (13. febr.) birti eitt dag-
blaðanna eftirfarandi ummæli eftir fjár-
málaráðherra:
„EN HITT ER ALVEG LJÓST, AÐ
MIÐAÐ VIÐ ÞÆR STRÖNGU
VERÐLAGSFORSENDUR, SEM
MENN HAFA SETT SÉR Á ÞESSU
ÁRI, ÞÁ ER EKK.I SVIGRÚM TIL
ALMENNRA GRUNNKAUPS-
HÆKKANA. ÞAÐ SJÁ ALLIR.“
I. Samninganefnd BSRB beinir því til allra
ríkis- og bæjarstarfsmannafélaga, að þau
gangist á næstunni fyrir almennum fundum
félagsmanna um væntanlega kjarasamn-
inga, þar sem staðan í samningamálum og
hugsanleg verkfallsboðun verði rædd og
hvatt til samstöðu um:
a) verndun vísitölukerfis á laun allra opin-
berra starfsmanna,
kjósa 8 manna nefnd til þess að taka þátt í
viðræðum við fulltrúa ríkisstjórnarinnar
áður en samningaviðræður á vegum sátta-
semjara hefjast.
Jafnframt felur samninganefndin for-
manni og varaformanni nefndarinnar að
ræða við ríkissáttasemjara og óska eftir því
við hann, að fundir á vegum sáttanefndar
með deiluaðilum hefjist sem allra fyrst eftir
næstu helgi.
Fyrstu viðbrögð BSRB.
Samninganefnd BSRB hélt fund þriðju-
daginn 19. febrúar 1980 og ræddi stöðuna í
kjaramálum opinberra starfsmanna. Eftir-
farandi tillögur voru samþykktar með öll-
um greiddum atkvæðum:
b) aukinn rétt til samninga og verði gildis-
tími samnings umsaminn hverju sinni,
c) félagsleg réttindi starfsmanna og sam-
takanna,
d) að náð verði þeim kaupmætti, sem um
var samið í síðustu samningum, og aukið
jafnrétti í launamálum.
II. Samninganefnd B.S.R.B. samþykkir að